Frjáls verslun - 01.01.2010, Qupperneq 105
Fólk
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 105
Ístarfi mínu ber ég ábyrgð á markaðs- og kynningarmálum Sjóvár. Í markaðs-deildinni berum við ábyrgð á þróun og
framkvæmd markaðs- og auglýsingastefnu
Sjóvár og störfum þétt með söluteymi fé-
lagsins. Í markaðsdeildinni er einnig vefteymi
sem vinnur að þróun ytri og innri veflausna,
með sérstaka áherslu á þróun á þjónustu við
viðskiptavini og starfsmenn félagsins.
Ég hóf störf hjá Sjóvá 1998 og hef verið svo
heppinn að fá að þróast í starfi hjá fyrirtækinu.
Fyrsta starfið var í tjónaskoðunarstöð þar sem
ég seldi tjónabíla og þaðan yfir í tjónadeild
þar sem ég var rannsókna- og forvarnafulltrúi.
Síðan lá leiðin í verkefnastjórnun og ég
starfaði einnig á fyrirtækjasviði. Ég tók svo
við stöðu kynningarstjóra 2007 og verð
markaðsstjóri í janúar 2008.
Það hefur verið mikill kraftur og at í
kringum markaðs- og kynningarstarf Sjóvá
síðustu mánuði og misseri. Þessa dagana tekur
verkefni tengt vildarþjónustu Sjóvá mestan
tíma en árið í ár er sextánda árið sem við
endurgreiðum tjónlausum viðskiptavinum
hluta af iðgjöldum sínum. Greiðslan er kölluð
Stofnendagreiðsla og henni fylgir alltaf mikil
sölu- og markaðsherferð. Upphaf hvers árs er
því alltaf mjög skemmtilegur og spennandi
tími fyrir okkur í markaðsdeildinni en ekki
síður í öðrum deildum félagsins.“
Sigurjón ólst upp í Vestmannaeyjum,
stundaði sjómennsku og fór í Menntaskólann
að Laugarvatni. „Svo fór ég að vinna í
bakaríinu hjá pabba og lærði bakarariðnina
í Iðnskólanum og varð með því fimmti
ættliðurinn í fjölskyldunni sem lagði fyrir sig
baksturinn. Að námi loknu vann ég hjá föður
mínum í Magnúsarbakaríi í Vestmannaeyjum.
Síðan lá leiðin til Danmerkur þar sem ég
hóf nám í konditor. Á meðan dvölinni ytra
stóð áttum við hjónin von á okkar fyrsta
barni og langaði að koma heim. Dvölin ytra
varð því styttri en áætlað var. Þegar heim
var komið ákvað ég að skipta um gír og
réð mig hjá Sjóvá. Frá því ég hóf störf hjá
fyrirtækinu hef ég verið duglegur að sækja
mér meiri menntun, tók m.a. diploma í
mannauðsstjórnun frá HÍ og alþjóðlegt próf
í verkefnastjórnun, Six Sigma (Black Belt) og
í vor klára ég MBA nám frá HR.“
Eiginkona Sigurjóns, Margrét Sara
Guðjónsdóttir, er einnig frá Vestmannaeyjum
og eiga þau tvær dætur. Stærsta áhugamál
Sigurjóns fyrir utan fjölskylduna er ljós-
myndun og allt sem tengist ljósmyndun,
áhugamál sem hann stundar af miklum
metnaði. „Ljósmyndaáhuginn og áhugi á að
ferðast um landið með fjölskyldunni tengist
mjög vel. Ég á geysimikið safn ljósmynda
og myndbanda af fjölskyldu og vinum. Ég
hef mikinn metnað fyrir aðgengi, skipulagi
og öryggi á þessu safni enda mikil verðmæti
þarna sem ég hef verið duglegur að varðveita
og sinna. Ég hef einnig verið með námskeið í
ljósmyndun fyrir starfsmenn Sjóvá.
Fjölskyldan tekur þátt í þessu áhugamáli
mínu og hefur jafngaman af að ferðast um
landið og ég. Við hjónin erum alltaf búin að
gera plan fyrir hvert sumar og tökum fyrir
ákveðna landshluta og einbeitum okkur að því
að kynnast sögu og náttúru á hverjum stað.
Einnig erum við með sumarbústað í Gríms-
nesinu sem langafi minn og nafni byggði og
förum þangað eins oft og kostur er.
Þess má svo geta að ég er meðlimur í
Fyrirmyndarbílstjórafélaginu sem er
vinahópur frá Vestmannaeyjum. Við höfum
verið vinir frá því við vorum litlir peyjar,
förum reglulega í skemmti- og fjölskylduferðir
enda höfum við mjög gaman af að skemmta
sjálfum okkur og öðrum.”
markaðsstjóri Sjóvár
SIGURJÓN ANDRÉSSON
Sigurjón Andrésson.
„Við hjónin erum alltaf búin
að gera plan fyrir hvert sumar
og tökum fyrir ákveðna
landshluta og einbeitum okkur
að því að kynnast sögu og
náttúru á hverjum stað.“
Nafn: Sigurjón Andrésson.
Fæðingarstaður: Akureyri,
10. desember 1970.
Foreldrar: Hrafnhildur
Ástþórsdóttir og Andrés
Sigmundsson
Maki: Margrét Sara
Guðjónsdóttir.
Börn: Hrafnhildur Svala, 12 ára
og Hekla Sif, 9 ára
Menntun: Iðnmenntun, (Bakari),
diploma í mannuðsstjórnun,
Verkefnastjórnun Six Sigma
(Black Belt), stundar MBA nám
við Háskólann í Reykjavík,
útskrift vor 2010.