Frjáls verslun - 01.02.2007, Qupperneq 27
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 27
FORSÍÐUVIÐTAL • ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR
læra fjármál, stjórnun, markaðsfræði o.s.frv. Seinna árið hafa nem-
endur hins vegar algjört valfrelsi og geta því ákveðið að sérhæfa sig
á ákveðnu sviði eða sviðum innan viðskiptafræðinnar. Margir leggja
t.d. mikla áherslu á fög tengd fjármálum eða stjórnun. Harvard
er þó einkum þekktur fyrir að kenna nemendum að verða góðir
stjórnendur. Þó að kennsla í fjármálum og markaðsfræði sé góð, þá
eru aðrir háskólar þekktari fyrir að veita framúrskarandi menntun
á þeim sviðum.
Námið er nánast einvörðungu byggt á raunhæfum verkefnum.
Fyrir hvern tíma lesa nemendur raunhæft verkefni sem yfirleitt snýst
um ákveðið fyrirtæki og tiltekin vandamál sem stjórnendur þess glíma
við. Í tímanum leiðir síðan prófessorinn umræður
milli nemenda þar sem mismunandi sjónarmið um
hvernig taka eigi á vandamálunum eru rökrædd.
Það eru yfirleitt 80 manns í hverjum tíma og því
geta umræðurnar orðið mjög fjölbreyttar og líf-
legar.
Í öllum fögum eru 50% af einkunn byggð á
þátttöku nemenda í umræðum. Það er því mjög
mikilvægt fyrir nemendur að geta komið sjón-
armiðum sínum á framfæri á skýran, skipulegan
og sannfærandi hátt. Hugsunin er sú að þessir
kennsluhættir séu til þess fallnir að þjálfa leiðtogahæfileika nemenda
þar sem þeir læri að greina vandamál hratt, taka skýra afstöðu til
vandamála og miðla þeirri afstöðu til annarra með ákveðnum hætti.
Eins og svo margir aðrir háskólar í Bandaríkjunum, leggur Har-
vard mikla áherslu á að aðstoða nemendur við að skipuleggja stafsferil
sinn. Öflug ráðningarskrifstofa er rekin á vegum viðskiptaskólans
þar sem nemendur geta fengið upplýsingar um mismunandi starfs-
greinar og aðstoð við gerð á starfsferilsskrá og við undirbúning fyrir
viðtöl. Áður en nemendur hefja nám við skólann eru þeir látnir taka
svokallað „Myers Briggs“-persónuleikapróf. Niðurstöður úr því geta
gefið hugmynd um hvers konar störf eru best við hæfi viðkomandi og
eru sérfræðingar til staðar til að hjálpa nemendum við að túlka þessar
niðurstöður. Síðan eru sérstök fög innan skólans sem nemendur
geta valið og snúast einvörðungu um það að hjálpa nemendum að
skipuleggja starfsferil sinn.“
McKINSEY Í LONDON
Víkjum þá aftur að árunum í London hjá bandaríska ráðgjafarisanum
McKinsey. Það er mikil ásókn í störf hjá þessu þekktasta ráðgjafafyrir-
tæki í heimi. Frá skrifstofunni í London eru starfsmenn að vinna úti
um allan heim. Áslaug vann víða um heim á vegum fyrirtækisins
þótt hún byggi í London allan tímann. Hún vann t.d. í Arabaríkinu
Quatar meira en fjóra mánuði samfellt.
„Ég kom aðeins í þrjú skipti til London á þeim tíma sem ég vann
í Quatar. En þegar ég vann innan Evrópu og nær London flaug ég á
vinnustað á mánudagsmorgnum og aftur til London á fimmtudags-
kvöldum. Ég vann síðan á föstudögum á skrifstofunni í London.“
McKinsey er með mjög alþjóðlega og athyglisverða starfsmanna-
stefnu. Áslaug segir að hún hún felist í því að fyrirtækið birti á Net-
inu lista yfir þau verkefni sem eru að hefjast á hverjum tíma víða um
heim.
„Starfsmenn geta sótt um að komast í verkefni þótt þeir þurfi
að vinna frá annarri skrifstofu McKinsey en þeirri sem þeir eru
almennt á. Þeir geta þannig valið verkefni sem þeim finnst áhuga-
verð og gefa þeim færi á að öðlast reynslu á alþjóðlegum vettvangi.
McKinsey er með þúsundir vel menntaðra einstaklinga í vinnu og
leggur mikið upp úr því að þjálfa starfsmenn, fara reglulega yfir
hvernig þeir standa sig og hjálpa þeim að bæta sig í starfi.
Matskerfið sem McKinsey notar er mjög virkt og yfirmenn funda
samviskulega með viðkomandi starfsmanni til að fara yfir matið á
honum. Þetta verður líka til þess að ungt fólk getur
gengið að því sem vísu að standi það sig vel skili það
sér áfram til frekari metorða innan fyrirtækisins.“
Áslaug segir að mörg af stærstu fyrirtækjum Bret-
lands og Bandaríkjanna séu með öflug framgangs- og
matskerfi – líkt og McKinsey – og þessi kerfi stuðli
óbeint að jafnrétti kynjanna varðandi framgang í
stjórnunarstöður þótt kerfið sé ekki hugsað í sjálfu sér
sem jafnréttistæki.
„Í þessum matskerfum er lagt upp úr að mat
á einstökum starfsmönnum mótist af því að þeir
séu hæfir einstaklingar en ekki að þeir séu karlar eða konur. Þarna
fá konur tækifæri og eygja möguleika á frekari frama. En þessi kerfi
virka bara upp að vissu marki á frambrautinni – því ennþá er það
þannig í Bretlandi sem og Bandaríkjunum að mun færri konur eru í
æðstu stjórnunarstöðum en karlar.“
Um verkefnin innan McKinsey segir Áslaug að þau snúist almennt
um „stóru myndina“ í fyrirtækjum – stóru ákvarðanirnar sem for-
stjórar fyrirtækjanna láta sig varða.“
„McKinsey vinnur mest fyrir stórfyrirtæki og vinnan felst mjög oft
í stefnumótun og skipulagi fyrirtækja. Hvernig er strúktúrinn? Hvernig
er skipuritið innan fyrirtækisins? Hvernig skiptist það í deildir? Hvers
konar strúktúr-breytingar þarf að gera á fyrirtækinu? Hvernig er verð-
stefna þess, hátt verð eða lágt verð? Hvernig eru markaðsmál þess?
Hvar eru bestu tækifærin? Í hvaða löndum eru helstu markaðarnir og
bestu tækifærin til að vaxa? Hvernig er kúltúrinn innan fyrirtækisins?
Hvernig er stjórnunarteymið samsett? Hvernig stendur forstjórinn
sig? Hvaða ný svið henta fyrirtækinu að fara inn á? Hvernig er starfs-
mannastefnan? Heldur fyrirtækið sig í því sem það kann best eða dreifir
það kröftunum á nýjum og áhættusömum sviðum? Er fjármögnun fyr-
irtækisins rétt skipt á milli gjaldeyrismarkaða? Áfram væri sjálfsagt hægt
að telja. En þetta snýst allt um stóru myndina.“
- Þú vannst í Arabaríkinu Quatar meira en fjóra mánuði?
Hvernig var að vera vestræn kona þar, t.d. varðandi siði í
hegðun og klæðaburð á vinnustað og í samkvæmum?
„Það var auðvitað margt mjög ólíkt því sem maður á að venjast í
vestrænum löndum. Ég þurfti að passa mig mikið í klæðaburði og
þurfti t.d. alltaf að vera í buxum eða skósíðu pylsi og síðerma skyrtu.
Ég þurfti sem betur fer ekki að vera með slæðu til að hylja hárið eða
andlitið en nánast allar konurnar sem eru búsettar í Quatar eru það.
„Heppni og tilviljanir
ráða oft úrslitum þótt
fólk telji sig búið að
kortleggja menntun
sína, möguleika og
markmið. “