Frjáls verslun - 01.02.2007, Síða 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7
F R A M B O Ð I Ð T I L Ö R Y G G I S R Á Ð S I N S
- Ýmsir velta því stundum fyrir sér hvort þörf sé lengur á Sam-
einuðu þjóðunum og hvort tími þeirra sé ekki liðinn, enda séu
þau máttlaus þegar á reyni eins og hafi sýnt sig í Íraksstríð-
inu. Hvernig svarar þú svona gagnrýni?
„Ég tel mikla þörf á að hafa Sameinuðu þjóð-
irnar áfram og sterkari. Hvað annað betra
höfum við? Fyrir smá og meðalstór ríki geta
SÞ skipt sköpum. Það má sjálfsagt alltaf deila
um hversu skilvirkt alþjóðakerfið er. Horn-
steinn þess er þó SÞ og sérstofnanir þeirra. En
hvað annað betra hafa lítil og meðalstór ríki
til að verja hagsmuni sína? Sameinuðu þjóð-
irnar leggja áherslu á lög og rétt; að það gildi
þjóðaréttur í samskiptum þjóða og að ríki hafi
sinn rétt. Það hafa auðvitað verið víða vanda-
mál og því miður hefur alþjóðasamfélagið í
einstaka tilvikum verið allt of svifaseint, eins og gerðist í Rúanda með
hörmulegum afleiðingum.“
- Loftslagsmál - gróðurhúsaáhrif - eru áberandi í alþjóðlegri
umræðu. Eru þau ekki að verða einn stærsti málaflokkurinn
innan SÞ?
„Það hefur orðið bylting í viðhorfi fólks til umhverfismála á síð-
ustu árum og þetta er óhemjustór málaflokkur innan Sameinuðu
þjóðanna. Umhverfismálin koma auðvitað mjög víða við – og
loftslagsbreytingar eru aðeins hluti af vandanum. Mengun almennt
er mikið áhyggjuefni, hvort heldur er loftmengun (sbr. Kyoto-
samkomulagið), mengun í sjó eða á jörðu. Umfjöllun um þennan
málaflokk – umhverfismálin – er stöðugt að verða umfangsmeiri
innan SÞ og mikilvægi sjálfbærrar þróunar að verða öllum ljós, þar á
meðal hvað varðar fiskveiðar og endurnýjanlega orkugjafa, en þar er
Ísland í fararbrodd.
En það eru ótal önnur mál sem eru ofarlega á baugi. Ég nefni
þar stóraukna friðargæslu, SÞ er nú með 18 friðargæslusveitir vítt
og breitt um heiminn. Þetta er mikið og kostnaðarsamt starf og fer
vaxandi. Við Íslendingar höfum tekið aukinn þátt í friðargæslu, t.d.
á Balkanskaga og í Afganistan. Við leggjum þar og víðar okkar af
mörkum. Þróunarsamvinna er og hefur verið umfangsmikill þáttur í
starfseminni og þar höfum við Íslendingar lagt lóð á vogarskálarnar
– komum mun meira við sögu en áður.“
- Þú varst endurkjörinn einn af fjórum varaforsetum í hinu
umfangsmikla efnahags- og félagsmálaráði (ECOSOC) SÞ núna
í janúar. Hvaða þýðingu hefur þetta varaforsetasæti haft fyrir
okkur Íslendinga?
„Þetta er ein af sex aðalstofnunum SÞ og undir hana heyra mörg
stór mál, eins og þróunaraðstoð, mannréttindamál, efnahagsmál,
jafnréttismál, umhverfismál, vinnumál og áfram mætti telja. Ég hef
haft mikla ánægju af að gegna varaformennsku í ráðinu, þetta hefur
verið mikil vinna – en mesta þýðingin fyrir okkur Íslendinga er sú
að við höfum haft meiri áhrif í ráðinu en ella, auk þess sem sýnileiki
okkar hefur verið meiri – sem vonandi kemur sér vel varðandi fram-
boð okkar til öryggisráðsins. Ísland var kjörið í ECOSOC 2005-2007
og þar sitja 54 ríki. Áður hefur Ísland setið í ECOSOC 1985-87 og
1997-99.“
- Íslendingar hafa látið að sér kveða í
hafréttarmálum á vettvangi SÞ. Er það
á þeim vettvangi sem áhrif okkar hafa
verið mest hjá stofnuninni?
„Þar hafa áhrif Íslands verið mjög mikil.
Það er erfitt að kveða upp úr um hvar áhrifa
okkar hafi gætt mest í svona samstarfi. En haf-
réttarmálin snerta efnahagslega afkomu okkar
beint og við höfum þar bein áhrif með stöð-
ugri eftirfylgni og baráttu. Ég held að á engan
sé hallað þegar ég segi að Hans G. Andersen,
sendiherra og raunar fastafulltrú Íslands hér um skeið, hafi á sínum
tíma unnið þrekvirki í hafréttarmálum á vettvangi SÞ og haft meiri
áhrif í þessum málaflokki en nokkur annar Íslendingur. En vissulega
hafa margir aðrir lagt sín lóð á vogarskálina.“
- Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar árið 1945 í lok seinni
heimsstyrjaldarinnar og voru hugsaðar m.a. sem friðarsamtök;
að varðveita frið í heiminum og koma í veg fyrir stórátök. Það
er varla hægt að segja að þetta markmið hafi tekist.
„Það er auðvitað víða ófriðvænlegt í heiminum – og verður e.t.v.
á meðan lífsgæðum er jafn misskipt og raun ber vitni. En ég fullyrði
að án SÞ hefðu verið fleiri ófriðarblikur á lofti undanfarna áratugi
og hver veit hversu miklu verra hefði getað gerst án samtakanna. SÞ
hafa unnið gríðarlegt starf í öryggis- og afvopnunarmálum en þar er
mikið starf óunnið ennþá. Það hefur vissulega ekki tekist að koma í
veg fyrir átök í einstaka löndum, en heimsstyrjaldir hafa ekki verið
háðar frá því að SÞ voru stofnaðar og merkir áfangar hafa náðst í
mörgum málum. Staða Sameinuðu þjóðanna endurspeglar stöðu í
heiminum hverju sinni og samtökin verða aldrei meira en það sem
þátttökuríkin koma sér saman um að SÞ skuli vera,“ segir Hjálmar
W. Hannesson sendiherra.
„Fjárhagsáætlunin fyrir
framboðið hljóðar upp á
um 400 milljónir króna.
Það er sá kostnaður sem
fer í aðdragandann og eins
við það að sitja í tvö ár í
öryggisráðinu.“
Aðalritarar SÞ frá upphafi. Tveir fyrstu voru Norðmaðurinn Tryggve
Lie (1946-52) og Svíinn Dag Hammarskjöld (1953-61). Kjör þeirra
sýnir þá virðingu sem Norðurlöndin hafa notið innan SÞ.