Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2007, Side 90

Frjáls verslun - 01.02.2007, Side 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 Sá auglýsingatengdi viðburður í fyrra, sem dómnefnd ÍMARK þótti heppnast best, var skautasvell sem Tryggingamiðstöðin kom upp á Ingólfstorgi á jólaföstunni í tilefni af 50 ára afmæli sínu. Svellið var opið fyrir gesti og gang- andi í nokkrar vikur og var fjölsótt eftir því, enda ekki á hverjum degi sem fólki býðst að fara á skauta í hjarta nyrstu höfuðborgar í heimi. Svellið lagði TM í samvinnu við Reykjavík- urborg og Orkuveituna – en það voru þeir Óskar Magnússon, forstjóri TM, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sem opnuðu herlegheitin. Á aðventunni var svo boðið upp á kennslu í íshokkí og krullu, listsýningar á skautum, dansleik og sitthvað fleira skemmti- legt. „Við hjá Tryggingamiðstöðinni höfum markað þá stefnu að allar viðameiri upp- ákomur á okkar vegum tengist miðborginni með einum eða öðrum hætti. Miðborgin og Kvosin eru samofin ímynd TM enda hafa höfuðstöðvar okkar verið í Aðalstræti í 50 ár,“ segir Pétur Pétursson, framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu. „Í tilefni afmælisins í fyrra fannst okkur tilhlýðilegt að gera eitthvað virkilega óvenjulegt og duttum þá niður á þessa skemmtilegu hugmynd um skautasvellið. Sumarið 2005 tókum við þátt í Menningarnótt og þá fluttum við Draugasetrið á Stokkseyri í heilu lagi til Reykjavíkur og héldum heilmikla sýningu á alls konar Mórum og Skottum hér í Aðalstrætinu. Settum höf- uðstöðvar okkar í búning draugahúss og fengum fyrir verðlaun Ímark 2005 í flokki umhverfisgrafíkur. Við erum því ánægð með þann árangur sem við höfum náð í þessari keppni og miðborgarstefna okkar í markaðs- málum hefur sannað gildi sitt. Segja má að báðir þessir viðburðir TM beri vott um sam- félagslega ábyrgð okkar því ekki nutu þeirra einungis viðskiptavinir félagsins heldur höf- uðborgarbúar allir og eins landsbyggðarfólk sem fjölmennir til Reykjavíkur á Menningarnótt og fyrir jól. Auglýsingaherferðir VR síðustu ár hafa vakið athygli, enda verið allt í senn, frumlegar, fyndnar og fróðlegar. Mörgum kom því ekki á óvart að félagið ynni til lúðraverðlauna Ímark í báðum flokkum almannaheillaauglýsinga, nú annað árið í röð. „Auglýsingar okkar eru ekki unnar eftir ákveðinni sigurformúlu,“ segir Gunnar Páll Pálsson, formaður VR. „Þetta er samspil margra þátta, enda höfum hjá VR lagt okkur fram um að fylgjast með þróun á vinnumarkaði bæði hér heima og erlendis. Út frá því höfum við reynt að finna hvar eldurinn brennur heitast - og vekjum athygli á málum í herferðum okkar samkvæmt því. Hér skiptir miklu að eiga gott samstarf við auglýsingastofu, en Fíton hefur framleitt og komið með frumlegar útfærslur sem virka vel. Það er sífellt erfiðara að ná til fólks og því teljum við vel útfærðar auglýsingar rétta leið til að kynna okkar mál og vinna þeim brautargengi.“ Dottandi yfir veislumat Hvíldartími var yfirskrift verðlaunaauglýsingar VR í ljósvakaflokki almannaheillaauglýsinga. Þar sást kona dottandi yfir veislumatnum heima í stofu á aðfangadagskvöldi – örþreytt eftir jólatörn við verslunarstörf. „Vinnutími okkar Íslendinga er, eins og rannsóknir sýna, með því lengsta sem þekkist í öllum hinum vestræna heimi. Við viljum tryggja að fólk sé meðvitað um rétt sinni til hvíldartíma. Það á ekki síst við í desember þegar álag er mikið. Almennt teljum við mikilvægt að jafnvægi sé á milli vinnu og fjölskyldulífs. Sveigjanlegur vinnutími og fjarvinna eru meðal áfanga sem þarna hafa náðst – nokkuð sem ekki má fórna í önnum jólamánaðarins.“ Legsteinar í Kringlunni Dapurleg eftirmæli hét auglýsinga VR sem sigraði í flokki almannaheillaauglýsinga prent- miðla. Auglýsingin var mynd af tveimur leg- steinum sem jafnframt var komið fyrir inni á gólfi í Kringlunni og áletrun steinanna sýndi hve æpandi mikill launamunur kynjanna er, með til- liti til ævitekna. „VR hefur barist kröftuglega gegn launamun kynjanna og náð miklum árangri síðasta áratug- Á ísnum á aðventu VIÐBURÐIR ALMANNAHEILLAAUGLÝSINGAR - LJÓSVAKAMIÐLAR Frumlegar, fyndnar og fróðlegar ALMANNAHEILLAAUGLÝSINGAR - PRENTMIÐLAR Legsteinarnir í auglýsingum VR sýndu svart á hvítu hvað launamunur kynjanna er sláandi. inn. Með tilkomu markaðslauna hafa konur styrkt stöðu sína á vinnumarkaði og sækja hærri laun og hlunnindi í auknum mæli. Við- horfsbreyting í þjóðfélaginu er samt það sem öllu skiptir, við verðum að sjá jafnrétti í raun,“ segir Gunnar Páll og bætir við að VR muni að sjálfsögðu fara í auglýsingaherferð á þessi ári. Uppi séu mörg brýn málefni sem félagið þurfi að berjast fyrir - og athygli á þeim verði vakin með vönduðum auglýsingum sem eru að verða aðalsmerki félagsins. Óskar Magnússon forstjóri TM sýndi góð til- þrif þegar skautasvellið var opnað.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.