Frjáls verslun - 01.02.2007, Blaðsíða 117
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 7 117
Af einhverjum óskilgreindum ástæðum er maður alltaf svangur í
sumarbústaðnum og endalaust hægt að sitja og borða. Það getur
verið gott að eiga þægilegar uppskriftir til að grípa í þegar mikið
liggur við, að ekki sé talað um þegar gesti ber óvænt að garði og fjöl-
skyldan hefur klárað allt kexið og brauðið daginn áður.
Vöfflur eru auðvitað hefðbundnar og þægilegar. Pönnukökur líka,
en svo er til nokkuð sem ég kalla einfaldlega vestfirskar hveitikökur
og eru afskaplega einfaldar í tilbúningi.
Það sem til þarf er:
Hveiti, u.þ.b. ½ kg
Sykur, u.þ.b. 25 gr (sykurmagn fer eftir smekk – sumum þykir
gott að hafa mikinn sykur og öðrum gott að hafa lítinn)
Lyftiduft, 4 tsk
Mjólk, um það bil 3-4 dl, eða blanda af mjólk, súrmjólk, und-
anrennu eða jafnvel jógúrt (ósætri). Ef súrmjólk er notuð má nota
matarsóda í stað hluta af lyftiduftsins en það er ekki skylda.
50 gr smjörlíki eða 1 dl olía, bragðlaus
½ - 1 tsk salt
Kaffitími í sumarbústaðnum
Þurrefnin eru sett
saman í skál og blandað
vel. Smjörlíkið mulið út í
og mjólkinni hellt saman
við smátt og smátt. Deigið
á að vera þannig að það sé
vel meðfærilegt og ef það
er of þurrt má bæta út í það vökva en ef það er of blautt má nota
meira hveiti. Auðvitað má hafa heilhveiti að hluta eða spelt ef fólk
vill það heldur en við það verða kökurnar heldur þyngri.
Deigið er flatt út, frekar þykkt, og kringlóttar kökur stungnar
út (ágætt að nota matardisk eða súpudisk sem mál). Steikt á með-
alheitri pönnu. Mér hefur reynst best að nota ekki fitu á pönnuna
heldur steikja á henni þurri. Það er þó persónubundið en athugið að
áferðin verður allt önnur ef notuð er fita við steikinguna.
Af því að deigið er þykkt, er það nokkra stund að stikna í gegn
og gott að passa upp á hitann svo að það brenni ekki.
Þetta er ljúffengt með ýmsu áleggi og langbest heitt með íslensku
smjöri.
Þráðlaust
net í bústaðinn
Stressaðir bisnessmenn og netháðir unglingar þurfa nú ekki lengur
aðþjástaf netfráhvarfi þegar farið er í bústaðinn og ekki er tengi fyrir
síma ástaðnum. Nokkur fyrirtæki hafa komið upp sendum og mótt-
tökurum fyrirþráðlaust net víða um land. Þegar um þétta byggð er
að ræða, er gott aðnota svokallaða heita reiti í kringum senda sem
draga að jafnaðistyttra. WBS og EMAX hafa sett upp kerfi fyrir
fjölþátta þjónustu; internet, síma, myndveitu, sjónvarp og fleira, víða
um land. Með mótttökubúnaði þeirra nást merki í allt að 20 km
fjarlægð, en það kemur sér vel þar sem ekki er þéttbyggð. Viðskipta-
vinir eru bæði bændur og sumarhúsaeigendur.Vodafone hefur komið
upp sendum á fjórum stöðum á Suðurlandi og næst orðið netsam-
band á helstu sumarbústaðasvæðunum þar, m.a. á Þingvöllum,
Laugarvatni, Biskupstungum, Holtum, Grímsnesi og í Grafningi.
Síminn býður einnig þjónustu um þráðlaust net, en enn sem komið
er þaðekki víða, og einnig bjóða nokkur smærri fyrirtæki slíka þjón-
ustu sem þáoftast er bundin við ákveðin svæði.
Nettengdar tölvur eru ómissandi - finnst sumum.