Frjáls verslun - 01.07.2007, Side 6
6 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7
komið yfir 5,0 þannig að þá verðlögðu sumir fjárfestar
sparisjóðinn á yfir 100 milljarða króna. Með hluta-
félagavæðingunni núna er verið að færa þennan stofnfjár-
markað yfir á hlutabréfamarkað.
EÐLILEGA hafa talsverðar umræður verið um hin
gjörbreyttu skiptihlutföll í Spron í tengslum við hluta-
félagavæðinguna og hvers vegna svo mikil áhersla hafi
verið lögð á að keyra upp hlut stofnfjáreigenda með
auknu stofnfé á undanförnum árum – sem hafa gjör-
breytt hlutföllunum og rúmlega það – ekki síst þegar svo
góð afkoma hefur verið af sparisjóðnum.
ÞAÐ ER ennfremur athyglisvert að skoða hvernig
málum væri háttað ef Kaupþing hefði keypt Spron
undir lok ársins 2003 eins og búið var að semja um
– en Alþingi stöðvaði söluna með sérstökum lögum um
sparisjóðina og mátti heyra á þingmönnum á þeim tíma
að þeir væru að koma í veg fyrir græðgisvæðingu stofn-
fjáreigenda í Spron.
KAUPÞING ætlaði að kaupa Spron á 9 milljarða. Þar
af áttu stofnfjáreigendur að fá 3 milljarða og sjálfseign-
arsjóðurinn 6 milljarða. Kaupþing var því að kaupa bæði
hlut stofnfjáreigenda og hlut sjálfseignarsjóðsins og ætl-
aði að greiða fyrir með eigin bréfum. Búið var að stofna
sérstakan menningarsjóð utan um hlut sjálfseignarsjóðs-
ins og átti hann að hafa fyrrnefnda 6 milljarða til umráða
í byrjun. Þessi menningarsjóður hefði orðið geysisterkur
bakhjarl við menningar- og líknarmál í landinu.
MÖNNUM hefur reiknast til, út frá hækkun gengis
hlutabréfa í Kaupþingi, að þessi menningarsjóður stæði
núna í 25 til 30 milljörðum króna – svona eftir því
hversu miklu fé hefði verið veitt úr honum. Sjálfseign-
arsjóðurinn fær núna hins vegar 9 milljarða króna í
tengslum við hlutafélagavæðingu Spron og ætla verður
að það fé renni til menningar- og líknarmála. þessi tala
miðast við að markaðsvirði Spron sé 60 milljarðar.
EFTIR stendur að alþingismenn hafa hlunnfarið
menninguna í landinu um 15 til 20 milljarða króna
með því að koma í veg fyrir söluna á Spron til Kaup-
þings í lok ársins 2003 – og allt undir formerkjum um
að koma í veg fyrir græðgisvæðingu stofnfjáreigenda.
Menningin tapaði á þessu inngripi alþingismanna, en
stofnfjáreigendur stórgræddu!
Jón G. Hauksson
STOFNFJÁREIGENDUR í Spron fögnuðu innilega á
fundi sínum í Borgarleikhúsinu hinn 21. ágúst sl. þegar
þeir samþykktu að breyta sparisjóðnum í hlutafélag.
En í raun voru stofnfjáreigendur í Spron að fagna öðru
og meira; þeir voru loksins orðnir eigendur að spari-
sjóðnum. Áður áttu þeir ekki sparisjóðinn; núna eiga þeir
hann. Sjálfseignarsjóðurinn, sem áður var stærsti eigandi
sparisjóðsins, er núna með 15% hlut og í miklum minni-
hluta. Sparisjóðirnir hafa verið sjálfseignarstofnanir og
eins og nafnið bendir til eiga þær stofnanir sig sjálfar.
FUNDURINN í Borgarleikhúsinu markaði fleiri
djúp spor; hann var fyrsta stóra skrefið í þá átt að breyta
öllum sparisjóðum landsins í hlutafélög. Þannig blasir
við að á næstu misserum verða aðeins fjórir sparisjóðir
í landinu; Spron, Byr, Sparisjóðurinn í Kefla-
vík og Sparisjóður Mýrasýslu. Núna eru 23
sparisjóðir, en sú var tíð að þeir voru yfir 40
talsins.
RÁÐGJAFARFYRIRTÆKIÐ Capacent
samdi skýrslu um Spron fyrr á árinu í tengslum
við hlutafélagavæðinguna og fann það út að
markaðsvirði Spron hinn 31. mars sl. væri
um 60 milljarðar króna. Takið eftir að sum-
arið 2002 var Spron verðlagður á um 6 millj-
arða. Munurinn er tífaldur. Þetta er ótrúlegur
munur og skýrist af miklum hagnaði, auknu
stofnfé og væntingum um að hlutafélagavæð-
ingin skili auknum verðmætum.
Í SKÝRSLUNNI komst Capacent að þeirri nið-
urstöðu að eignarhlutur stofnfjáreigenda næmi 85% af
hlutafénu, eða 51milljarði, en hlutur sjálfseignarsjóðs-
ins væri 15%, eða 9 milljarðar. Þetta er byltingarkennd
breyting frá árinu 2002 þegar hlutur sjálfseignarsjóðsins
var 89% en stofnfjáreigenda 11%.
EIN helsta skýringin á þessum gjörbreyttu hlutföllum
er að Spron hefur aukið stofnfé sitt á undanförnum árum
úr 485 milljónum króna í 20,5 milljarða og hefur þetta
aukna stofnfé komið inn í sérstökum stofnfjárútboðum
sem efnt hefur verið til. Hinn 31. mars sl. var eigið fé
Spron komið í 30,5 milljarða og þar af var stofnféð 20,5
milljarðar og annað fé 10 milljarðar.
SPRON hefur rekið sérstakan markað fyrir stofnfé
þar sem stofnfjáreigendur hafa getað selt stofnfé sitt. Um
tíma í sumar var gengi stofnfjárins á þessum markaði
SPRON VERÐUR HLUTAFÉLAG:
Stofnfjáreigendur orðnir eigendur
RITSTJÓRNARGREIN
Var Alþingi
að hlunnfara
menninguna í
landinu um 15 til 20
milljarða króna með
því að koma í veg
fyrir söluna á Spron
til Kaupþings í lok
ársins 2003?