Frjáls verslun - 01.07.2007, Blaðsíða 31
D A G B Ó K I N
legt virði félagsins né framtíðar-
möguleika þess.
Bandaríski fjárfestingabank-
inn JP Morgan var fenginn sem
óháður ráðgjafi til að meta til-
boðið og var niðurstaðan sú að
tilboð Novators teldist áhuga-
vert fyrir hluthafana. Að ráðum
bankans ákvað stjórnin því að
mæla með tilboðinu.
Í yfirlýsingu, sem Björgólfur
Thor sendi frá sér, sagði hann
það ánægjulegt að stjórn
Actavis og ráðgjafar hennar, JP
Morgan, teldu tilboðið áhuga-
vert og sanngjarnt og að þessi
óháði aðili, sem þekkti félagið
mjög vel, skyldi mæla með til-
boðinu við hluthafa þess.
Þeir stjórnarmenn sem
lögðu mat á tilboðið voru
Sindri Sindrason, Magnús
Þorsteinsson og Baldur
Guðnason.
17. júlí
4 þús. hluthafar
fengu 190
milljarða tékka
Þennan dag var sagt frá því
að Novator hefði eignast 90%
hlutafjár í Actavis og þar með
væri yfirtakan í höfn þar sem
eftirstandandi hluthöfum væri
skylt að selja, samkvæmt
lögum. Jafnframt var þess
getið að 4 þúsund hluthafar
í Actavis, sem hefðu ákveðið
að taka tilboði Novators,
fengju tékka senda heim til
sín, að andvirði 190 milljarða
króna.
Morgunblaðið hafði eftir
Björgólfi Thor að hann væri
mjög sáttur og að félagið hefði
gefið mjög vel af sér gagnvart
hluthöfum síðustu árin.
„Eftir viku munu tæplega
fjögur þúsund manns fá sendan
tékka, 190 milljarðar króna
koma inn í hagkerfið sem er
ákaflega gaman. Þetta hefur
verið mjög vænleg fjárfesting,“
sagði Björgólfur Thor.
23. júlí
Novator
með 99,66%
hlutafjár í Actavis
Lokahnykkurinn í fréttaflutningi
sumarsins af yfirtöku Novators
var í kringum 23. júlí þegar
sagt var frá því að 99,66%
hluthafa í Actavis hefðu tekið
tilboði Novators og þeir fengju
greitt fyrir hlut sinn miðvikudag-
inn 25. júlí.
Magnús
Þorsteinsson.
Sindri Sindrason.
Baldur Guðnason.
31