Frjáls verslun - 01.07.2007, Blaðsíða 98
98 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
SilfurSport:
SagaClass í heimi líkamsræktarstöðva
XE
IN
N
SS
0
7
08
0
07
Hátún 12 • 105 Reykjavík • Sími 551 0011 • www.silfursport.is • silfursport@silfursport.is
LEGGÐU
GRUNNINN
að heilbrigðri sál í hraustum líkama
Spennandi og skemmtilegur kostur bættist nýlega við flóru líkamsræktar-stöðva borgarinnar, en það er Silfur-
Sport í Hátúni 12. Eigandinn, Jóhanna
Eiríksdóttir, hafði lengi gengið með þennan
draum í maganum:
„Ég lét svo til skarar skríða og opnaði
stöðina í byrjun febrúar. Það má segja að
þetta sé sérgrein mín og ég steig því það stóra
skref að hætta starfi mínu sem flugfreyja
og fara á fullt í þennan rekstur. Ég er sjálf
búin að æfa í 20 ár, er bæði Íslandsmeistari í
kraftlyftingum og vaxtarrækt, og hef því góða
hugmynd um það hvernig góður tækjasalur
á að vera.
Ég ákvað að leggja áherslu á að vera með
stöð sem hefur upp á að bjóða gott úrval
brennslutækja og er þá m.a. með það fólk
í huga sem hefur knappan tíma til æfinga.
Tilvalið er fyrir þann hóp að skjótast hin-
gað í hádegishléinu þar sem greiður aðgan-
gur er að öllu, eins og tækjunum, ekki
er yfirfullt af fólki og síðast en ekki síst,
næg bílastæði. Fyrir mörgum er tíminn jú
peningur.
Hér er líka aðstaða fyrir kraftlyftinga-
menn sem er einangruð frá tækjasalnum
og hún er með gluggum - svo aðrir gestir
stöðvarinnar geti séð þá og dáðst að þeim,“
segir Jóhanna brosandi. ,,Ég er á móti því að
sérhæfa líkamsræktarstöðvar og finnst miklu
skemmtilegra að mismunandi hópar geti
stundað ræktina saman. Fljótlega munum
við stækka við okkur og bætum kjallaranum
við. Þangað verða sturturnar færðar, þar
verður gufa og jafnvel pottar líka. Aðgangur
að gufu og pottum mun að sjálfsögðu vera
öllum opinn sem æfa á stöðinni.“
Glerveggur með gullkornum
Jóhanna hefur komið all sérstæðum
glervegg fyrir í salnum sem aðskilur
brennslutækin og lyftingatækin. Hún lét
sandblása á hann fleygar setningar sem
sterkustu menn Íslands hafa látið falla í
gegnum tíðina.
Hvaðan kom hugmyndin?
Jóhanna segist hafa verið lengi í Kraftlyft-
ingasambandinu, er reyndar formaður þess
núna, og hafi ekki komist hjá því að heyra
ýmislegt velta upp úr kraftajötnunum: „Þessi
gullkorn mega alls ekki gleymast og sem
betur fer hafa margir skrifað þau niður. Ég
fór því á stúfana og safnaði nokkrum saman.
Meðal gullkorna sem varðveist hafa og röt-
uðu á vegginn góða eru:
„Ég er mældur í fermetrum
- ekki á hæðina.“
„Betra að vera stuttur og stinnur
- en langur og linur.“
Dekrað við alla
„Allir þekkja hversu hvimleitt getur verið
að uppgötva í ræktinni að sjampóið eða
næringin hefur gleymst heima. Þess vegna
bjóðum við upp á afnot af slíkum vörum,
auk þess sem við erum með hreinsikrem og
ýmislegt fleira. Mér finnst gaman að dekra
við viðskiptavini og lít á SilfurSport sem
SagaClass í heimi líkamsræktarstöðva.“
Jóhanna Eiríksdóttir er formaður Kraftlyftingasambands Íslands og eigandi SilfurSports.
„Ég er sjálf búin að æfa
í 20 ár, er bæði Íslands-
meistari í kraftlyftingum
og vaxtarrækt, og hef því
góða hugmynd um það
hvernig góður tækjasalur
á að vera.“