Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2007, Blaðsíða 23

Frjáls verslun - 01.07.2007, Blaðsíða 23
viðtalForsíðu Skeljungur keypti færeyska Shell í vor. Hafa þau kaup gengið eftir vonum? „Skeljungur er eina félagið sem fær að nota Shell-vörumerkið án þess að vera í eigu Shell eða rekið sem „franchising“. Shell óskaði eftir að við kæmum að kaupunum þó að margir væru um hituna og Skeljungur keypti svo færeyska Shell. Það fyrirtæki er með helm- inginn af færeyska eldsneytismarkaðnum. Plastprent, fyrirtæki sem Fons á stóran hlut ásamt fleirum, er svo að opna söluskrifstofu í Færeyjum.“ Hverjar eru horfurnar hjá Northern Travel Holding? „Það er mjög spennandi fyrirtæki. Iceland Express og Sterling eru í eigu Northern Travel og halda bæði áfram að vaxa. Sterling flýgur á hundrað áfangastaði og við trúum að fyrirtækið skili hagnaði á þessu ári, held það sé engin oftrú að það verði. Það verður þá í fyrsta skipti í fjölda ára sem það gerist – tapið var átta milljarðar króna fyrir skömmu. Við slógum saman Mærsk og Sterling, ætli við höfum ekki bjargað um þúsund störfum. Það heyrist ekki mikið nefnt í Dan- mörku en við finnum velvild neytenda. Við stefnum að því að Sterl- ing vaxi og verði áfram stærsta lággjaldaflugfélag á Norðurlöndum. Ticket tilheyrir líka Northern Travel og er ein stærsta ferðasam- steypa á Norðurlöndum. Ticket og Sterling eiga mikla framtíð fyrir sér.“ Fons hefur nýlega keypt hlut til viðbótar í 365 – þú hefur þá væntanlega trú á því fyrirtæki? „Þetta var gott fyrirtæki fyrir þremur árum, þá voru gerð mistök, nú eru komnir nýir stjórnendur og ég hef fulla trú á þeim.“ Hjá Baugi er framsækið fólk Þú vinnur mikið með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Baugi, hvernig kynntust þið Jón Ásgeir? „Við höfum þekkst í tæp tuttugu ár. Þegar Bónus byrjaði voru slagsmál milli Sölufélagsins og Bónuss – en ég hreifst af þeim feðgum og vildi gjarnan vinna með þeim. Það sam- starf stóð fram á minn síðasta dag hjá Sölufélaginu. Í stað slagsmála kom samvinna og það var ein af mínum bestu ákvörðunum. Fons vinnur náið með Baugi og við höfum verið saman í verkefnum hér. Það er gott að vinna með Baugi, þarna er framsækið fólk sem hefur sýnt að það kann til verka. Ég hef unnið náið með nýjum forstjóra fyrirtækisins, Gunnari Sigurðssyni, og við þekkjumst vel. Þar sýndi Jón Ásgeir enn einu sinni hversu framsýnn hann er. Gunnar er tiltölulega ungur, þekkir Baug mjög vel og ég tel að það hafi verið hár- rétt ákvörðun að fá hann til starfa einmitt á þessum tíma.“ Hvernig lýsirðu viðskiptamanninum og persónunni Jóni Ásgeiri? „Hann er eldklár, það stenst enginn honum snúning. Ef hann væri skákmaður væri hann með mörg þúsund fleiri elo-stig en aðrir. Í við- F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7 23 Við Íslendingar höfum almennt verið heppnir með fjárfestingar okkar hér – þó ég sé reyndar ekki viss um að „heppni“ sé rétta orðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.