Frjáls verslun - 01.07.2007, Blaðsíða 50
KYNNING50 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7
I
nnovit er sjálfstætt starfandi nýsköpunar- og frumkvöðlasetur sem
stofnað var í janúar 2007. Hjá Innovit er lögð höfuðáhersla á að
byggja upp opinn og skapandi vettvang fyrir ungt, hugmyndaríkt
og vel menntað fólk og skapa því góða og hvetjandi umgjörð til
að öðlast reynslu og ná árangri á sínu sviði. Nýsköpun, stofnun
fyrirtækja og hagnýting rannsókna eru forsendur áframhaldandi
velgengni, endurnýjunar og útrás íslenskra fyrirtækja. Með starfsemi
Innovit er lagður grunnur að stuðningi við unga frumkvöðla með
góðri umgjörð og margvíslegri þjónustu. Framkvæmdastjóri Innovit
og einn stofnenda er Andri Heiðar Kristinsson:
„Frumkvöðlar á Íslandi eru margir og áberandi, en það er nú svo
að hlutfall háskólamenntaðra manna í þessum hópi er mjög lágt ef
við miðum við Bandaríkin, Bretland og Norðurlönd þar sem mun
fleiri þekkingar- og hátæknifyrirtæki eru stofnuð. Sú staðreynd var
meðal annars til þess að við stofnuðum Innovit, að auka hlutfall
háskólamenntaðs fólks í frumkvöðlastarfsemi.“
Fjórþætt starfsemi
Andri Heiðar segir starfsemina fjórþætta. „Í fyrsta lagi bjóðum við
skrifstofuaðstöðu fyrir sprotafyrirtæki þar sem slík fyrirtæki geta
sótt um að fá inni hjá okkur. Þessa þjónustu veitum við ókeypis í
tiltölulega stuttan tíma til að hjálpa mönnum yfir erfiðasta hjallann
og taka fyrstu skrefin.
Fræðsla, ráðgjöf og námskeið er annar þátturinn. Við ætlum
okkur að vera opin út á við, fara í skólana, halda fyrirlestra og koma á
námskeiðum og vera þegar á heildina er litið mjög sýnileg í þjóðfélag-
inu. Það hefur vantað í íslenska menntaumhverfið að kynna betur
hvernig á að stofna fyrirtæki og hver tækifærin eru.
Þriðji þátturinn er sumarvinna við nýsköpun. Þetta er svið þar
sem við ætlum að efla tengsl háskólanna við atvinnulífið og koma
kraftmiklum nemendum á framfæri og kveikja neistann hjá nem-
endum á yngri námsstigum. Við ráðum inn til okkar fólk í sumar-
störf til að vinna að gerð viðskiptaáætlana eða vinna að afmörkuðum
spennandi nýsköpunarverkefnum í tengslum við fyrirtæki.
Fjórði þátturinn, sem við erum mjög stolt af og munum kynna
betur í haust, er Frumkvöðlakeppni fyrir háskólanemendur sem
verður haldin í vetur. Fyrirmyndin er fengin hjá MIT háskólanum í
Bandaríkjunum og við lögum hana að íslenskum aðstæðum. Mun-
urinn á frumkvöðlakeppninni okkar og öðrum keppnum er að í stað
þess að skila inn einni tillögu með ákveðnum lokafresti er um þriggja
mánaða ferli að ræða þar sem byrjað er að skila inn hugmynd á einum
til tveimur blaðsíðum, síðan fá keppendur til baka athugasemdir og
Innovit:
Stuðningur við háskóla-
menntaða frumkvöðla
Andri Heiðar
Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri
Innovit ásamt
verkefnisstjórunum
Magnúsi Má
Einarssyni
og Stefaníu
Sigurðardóttur.