Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2007, Side 24

Frjáls verslun - 01.07.2007, Side 24
24 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7 skiptunum fer hann að eins og skákmaður, skoðar marga leiki fram í tímann og er alltaf búinn að tefla mörgum fleiri leikjum að aðrir. Jón Ásgeir er frumkvöðull í útrásinni hér í Bretlandi. Þegar hann var að byrja að reyna að kaupa Arcadia var Ísland ekki til á viðskipta- kortinu hér í Bretlandi – og hér er eitt af stærstu hagkerfum heims. Hann er einstaklega traustur maður og með þykkan skráp. Hann hefur mætt þvílíkum mótvindi undanfarin ár vegna dómsrannsóknar og málaferla. Mér hefur þótt pólitískur óþefur af því máli frá fyrsta degi og það þýðir ekkert fyrir Sjálfstæðisflokkinn að reyna að þvo hendur sínar af því að þarna voru menn, honum ekki þóknanlegir, sem komust áfram. Þetta er skömm fyrir flokkinn og ég trúi ekki öðru en Baugsmenn verð sýknaðir. Það er ekki alltaf auðvelt að ná í Jón Ásgeir en við finnum okkur stundum tíma hér, fáum okkur þá kannski að borða saman og rissum eitthvað á servíetturnar. Iceland-hugmyndin kom upp á svona fundi.“ Skoski fjárfestirinn Tom Hunter er annar sem þú hefur unnið með. Hvernig lýsirðu honum, kannski engin tilviljun að Skotinn nær vel til Íslendinganna? „Ég hef hitt hann nokkrum sinnum og hann er traustur samstarfsaðili og gífurlega aðlaðandi persóna. Já, hann er mikill Skoti og það skiptir máli. Hann er mikill Íslandsvinur, með stóru emmi. Hann á með okkur í Booker-keðjunni, situr í stjórn Booker. Hann hefur séð hæfileika Jóns Ásgeirs og nýtt sér samstarfið við hann sér og sínu félagi til framdráttar.“ Þáttur íslensku bankanna í útrásinni vanmetinn Hvað einkennir íslenska fjárfesta umfram aðra? „Ég vil trúa því að það ríki vinátta milli þeirra. Þeir geta dáðst að vel- gengni hver annars án öfundar. Við erum allir Íslendingar í London þó að við séum að gera ólíka hluti. Ég held hins vegar að þáttur íslensku bankanna í útrásinni sé vanmetinn: þeir eru hjartað í þessu öllu saman. Ef ekki eru peningar kaupir enginn neitt. Ef bankanna hefði ekki notið við hefði útrásin ekki orðið. Rótin að henni fólst í einkavæðingu bankanna sem leysti mikinn kraft úr læðingi. Það er ekki langt síðan og samt er Kaupþing orðinn einn af hundrað stærstu bönkum í heimi – og þeir eru alls ekki hættir. Ef við gefum okkur að einhver íslensku bank- anna geri mistök og kúrfan snúist við þá hefði það auðvitað áhrif en ég held samt að þessi hætta á miklum áhrifum á aðra sé liðin hjá. Hún var vísast til staðar áður, en tæplega lengur. Sama er með áhættu fyrirtækjanna við yfir- tökur. Yfirtökur þeirra voru kannski allar skuld- settar í byrjun en dæmin hafa gengið upp. Eflaust mun þeim ekki takast allt, það væri eitthvað undarlegt ef svo væri og einhver mistök hljóta verða gerð. Þá er bara að vona að tjón verði í lágmarki. Áhættan er ekki jafnmikil núna og hún var framan af.“ Íslenska útrásin hefur skapað gríðarlega reynslu og þekkingu, það felst mikill mannauður í útrásinni. Það eru enn miklir möguleikar. Útrásin hefur alls ekki náð hámarki, held ég. Helstu eignir Fons á Íslandi: Fyrirtæki í eigu Fons: Skeljungur, Orkan, Securitas. Fyrirtæki að hluta í eigu Fons: Plastprent (65%), Stoðir (21%, stærsta fasteignafélag á Norðurlöndum), 365, Teymi, Glitnir. Helstu eignir Fons erlendis: Iceland (30%), Woodward (40%), Hamleys (35%), Julian Graves and Whittard of Chelsea (20%), Booker (11%). Northern Travel Holding (42%). Það félag á danska lággjaldaflugfélagið Sterling, Iceland Express og Hekla Travel í Danmörku, 51% í breska leigu- flugfélaginu Astraeus og 29% hlut í sænsku ferðaskrifstofunni Ticket. Pálmi situr í stjórnum margra fyrirtækja og er meðal annars stjórnarformaður í Iceland, Sterling og Julian Graves and Whittard of Chelsea. VIÐSKIPTAVELDI PÁLMA Viðskiptaveldi Pálma Haraldssonar, þessa 47 ára Reykvíkings sem ólst upp í Sundahverfinu í Reykjavík og hefur frá því í bernsku haldið með Þrótti, er stórt og víðfeðmt. Pálmi situr í stjórnum margra fyrirtækja. Hann rekur veldi sitt í gegnum eignarhalds- félagið Fons sem hann á með viðskiptafélaga sínum til margra ára, Jóhannesi Kristinssyni í Lúxemborg. Eignir Fons nema um 100 millj- örðum króna og eigið fé félagsins er um 50 milljarðar kr.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.