Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2007, Side 61

Frjáls verslun - 01.07.2007, Side 61
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7 61 skýranlegum leiðum en ég var snemma ákveðinn í að læra hana ef ég ætlaði á annað borð að læra eitthvað,” sagði Tryggvi. Ráðinn sem forstjóri Askar Capital Í nóvember 2006 höfðu fulltrúar Milestone samband við Tryggva og sögðust vilja ná tali af honum og biðja hann að mæta á fund. „Ég hélt í fyrstu að þetta væri ósköp venjulegur fundur þar sem biðja ætti Hagfræðistofnun um ráðgjöf eða að vinna fyrir sig verkefni og ég mætti á fundinn með því hugafari. Það fór þó öðruvísi því eftir tveggja tíma fund í hagfræði. Annar eiginleiki sem líka hefur reynst honum vel er hvað hann er viljasterkur og duglegur. Ef Tryggvi þarf að gera eitthvað gengur hann með festu til verks og klárar það hvort sem það er í starfi eða heima fyrir. Eitt af því sem er skemmti- legt í fari Tryggva er að hann fær reglulega skemmtilegar dellur og getur fengið áhuga á öllum sköpuðum hlutum en svo er eins og hann klári dell- una og snúi sér að öðru. Ég hef sjálfur dellu fyrir góðum vínum og hef safnað þeim og smitaði hann af þeim áhuga. En hann var fljótur að stinga mig af og áður en ég vissi var ég orðinn eins og sauðkind í bílljósum og farinn að flytja inn heilt bretti af víni eftir rannsóknarleiðangur Tryggva erlendis þar sem hann fann efnilegan vínframleiðanda. Tryggvi er afskaplega bón- góður og viljugur þegar kemur að því að hjálpa vinum sínum. Ég og bræður mínir settum upp söngleik þegar mamma var sjö- tug og þegar það vantaði mann í mannlegan pýramída þar sem við röðuðum okkur hver upp á annan var Tryggvi boðinn og búinn til að hjálpa okkur. Þarna stóð hann, þjóðargersemin og mannvitsbrekkan, rammur að afli með okkur kjöthleifana mörg hundruð kíló að þyngd og blés ekki úr nös. Hann var reyndar svo skemmtilegur í veislunni að mamma vildi helst af öllu ættleiða hann og við bræðurnir héldum að hann væri týndi bróðirinn sem for- eldrar okkar höfðu aldrei sagt okkur frá,“ sagði Gunnar. Axel Hall: Sveigjanlegur og fastur fyrir Axel Hall aðjúnkt við Viðskipta- deild Háskólans í Reykjavík var samstarfsmaður Tryggva hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands í tíu ár. ,,Tryggvi er einn af þeim sem hafa haft sterk áhrif á mig í lífinu og er um margt óvenjulegur maður. Hann er skarpgáfaður, mann- glöggur og ræðst yfirleitt ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Einn af hans sterk- ustu kostum er hvað hann á auðvelt með að umgangast fólk og hann er naskur á að laða fram hæfileika samstarfs- fólks í einstökum verkefnum. Hann gengur hreint til verks og er óragur að blása í herlúðra ef þörf krefur en er um leið fljótur að rétta fram sáttarhönd og hreinsa loftið þegar mál hafa verið til lykta leidd. Tryggvi er hreinskilinn en það er kostur sem hefur bæði aflað honum vina óvildarmanna. Tryggvi er mikill fjölskyldu- maður og ég hef haft lúmskt gaman af því í seinni tíð að sjá Tryggva fást við uppeldi unglinganna. Þarna er maður sem sjálfur hefur kynnst svo mörgu í lífinu og sér í gegnum allt múður. Tryggvi er óhræddur við að nota eigin reynslu þegar kemur að því að vera góður uppalandi, er bæði sveigjan- legur og fastur fyrir. Starfsferill Tryggva sem hljóðmaður í pönki og rokki, klippari á Stöð 2, og í fræða- störfum innan háskóla er ekki hefðbundinn. Tryggvi sýnir líka enn í verki að hann ætlar ekki að staðna í starfi. Það er frekar fátítt að menn sem hafi náð hæstu stöðum á akademískum vettvangi söðli um og varpi sér í djúpu laugina í viðskiptalíf- inu líkt og Tryggvi gerði í fyrra. Karakterinn í Tryggva minnir mig stundum á ævintýrið um drenginn sem kunni ekki að hræðast. Hann glúpnar ekki fyrir neinu og höfum við margt brallað saman,“ sagði Axel. Tryggvi hefur mikla ánægju af því að ferðast og úthald hans í því efni er mun meira en mitt. Við fórum einu sinni til Úganda til ráðgjafarstarfa fyrir opinbera stofnun þar. Flogið var til Afríku yfir nótt og ferðin tók um hálfan sólarhring. Við áttum fund með heima- mönnum stuttu eftir komuna til Kampala. Mér er sérstaklega minnisstætt að ég leit út eins og draugur þegar við komum á fundinn en Tryggvi var eins og nýsleginn túskildingur,“ sagði Axel. Á unglingsárunum fyrir austan var Tryggvi fremstur meðal jafningja hvað almennan töffaraskap varðaði, hann hafði sig í frammi og var áberandi. Þegar pönkið var við lýði var Tryggvi í ekta svörtum leðurjakka. T R Y G G V I Þ Ó R H E R B E R T S S O N Í N Æ R M Y N D
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.