Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2007, Blaðsíða 106

Frjáls verslun - 01.07.2007, Blaðsíða 106
106 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7 Nýir vestrar eru ekki á hverju strái og gallharðir vestraaðdá- endur verða yfirleitt að leita í smiðju John Waynes eða Clint Eastwoods til að finna vestra við hæfi. Á undanförnum árum hafa verið gerðir fáeinir bandarískir vestrar en þeir hafa ekki náð hylli almennings. Þeir síðustu sem einhverja athygli vöktu, án þess að ná þó mikilli aðsókn, voru American Outlaws (2001) og Open Range (2003), sem Kevin Costner leikstýrði og lék aðalhlutverkið í. Það var einmitt Kevin Costner og Clint Eastwood sem blésu lífi í vestraglæðurnar sem fyrir voru í upphafi tíunda áratugarins þegar þeir sendu frá sér Dances With Wolves (1990) og Unforgiven (1992), sem margir eru á að séu með bestu vestrum sem gerðir hafa verið. Eldurinn varð samt aldrei að neinu báli og alvöru vestrar voru fáséðir á tíunda áratugnum. Nú gerist það að tveir vestrar af stærri gerðinni verða frum- sýndir í Bandaríkjunum í sept- ember og verður gaman að sjá hvort kvikni í glæðunum á ný. Myndirnar eru 3:10 To Yuma og The Assassination of Jesse James by the Coward Robert Ford, nafn sem örugglega á ekki eftir að verða myndinni til framdráttar. Eins og nafnið bendir til fjallar sú mynd um hinn fræga útlaga Jesse James og endalok hans, en það gerði American Outlaws einnig. Það er Brad Pitt sem leikur Jesse James í þetta skiptið. Áður en kemur að Jesse James verður 3:10 to Yuma frumsýnd, sem ég hef mun meiri trú á en frumraun Brad Pitts í vestrum. Útlaginn og bóndinn Það eru sjálfsagt einhverjir sem kannast við nafnið 3:10 To Yuma enda er um endurgerð að ræða. Forverinn var gerður 1957, fyrir nákvæmlega fimmtíu árum. Þá léku Glenn Ford og Van Heflin aðalhlutverkin en nú eru það Russell Crowe og Christian Bale sem bregða sér í hlutverk útlag- ans og bóndans. 3:10 To Yuma gerist í Arizona seint á nítjándu öld. Frægur útlagi, Ben Wade (Russell Crowe), og glæpagengi hans LOKS ER VON Á GÓÐUM VESTRA 3:10 til Yuma með Russell Crowe og Christian Bale í aðalhlutverkum er endur- gerð 50 ára gamals vestra. Veiði: Er í nokkrum veiðifélögum Björk Þórarinsdóttir, fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Kaupþings, fór í fyrsta skipti í laxveiði árið 2004. Þá var maríulaxinn dreginn á land og í þessari veiðiferð kviknaði mikill áhugi á laxveiði. Núna er Björk í þremur veiðifélögum sem hvert um sig hefur sína sérstöðu. „Það sem heillar mig við laxveiðina er útiveran og að vera í góðum hópi. Auk þess gleymir maður stund og stað og kemst í snertingu við náttúruna. Þá gildir einu þótt lítið veiðist og að úti sé vosbúð og þoka. Það er til að mynda gaman að stúdera ána og finna fisk. Veiðimennskan snýst um glímuna við laxinn og að hafa betur.“ Björk segir að Laxá í Aðaldal standi upp úr en þar segir hún vera væna fiska og mikla náttúrufegurð. Hún hefur hins vegar veitt mest í Langá. Í sumar fékk Björk tækifæri til þess að prófa lundaveiðar sem hún lýsir sem einstakri upplifun. Björk segir að laxveiði sé það skemmtilegasta sem hún gerir. ,,Sumarið er tíminn - ég fer inn í veturinn með þessar skemmtilegu sumarminningar.“ Björk Þórarinsdóttir: ,,Það sem heillar mig við veiðina er úti- veran og að vera í góðum hópi. Auk þess gleymir maður stund og stað og kemst í snertingu við náttúruna.“ Lífsstíll KVIKMYNDIR: HILMAR KARLSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.