Frjáls verslun - 01.11.2007, Blaðsíða 122
122 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
s
tjórnun, stefnumótun, markmiðssetning, áætlana
gerð. Hversu oft heyrum við ekki minnst á þessi
orð þegar rætt er um viðskipti. En viðskipti eru líka
tilviljun, að grípa tækifærið þegar það býðst; að vera
réttur maður á réttum stað. Svavar Guðmundsson
var réttur maður á réttum stað þegar hann lenti í fellibyl í
Flórída árið 2004 og þurfti ásamt tíu öðrum að flýja inn
í fataskápa á meðan vindhviður Kára gengu yfir. Þá vissi
hann ekkert um kaffi. Núna veit hann allt um kaffi og selur
Íslendingum, Dönum og Englendingum dýrasta kaffi í heimi.
Fyrirtæki hans, sem selur dýrasta kaffi í heimi til Danmörku
og Englands, er í Hafnarfirði. Það heitir Latino Iceland
Market ehf. og á sér þá sérstæðu sögu að tveir menn hittust
inni í fataskáp í Bandaríkjunum árið 2004.
Það kom til af því að Svavar Guðmundsson, eigandi
fyrirtækisins, var staddur ásamt fjölskyldu sinni í Flórída þegar
fellibylurinn Charley gekk þar yfir. Þann dag fór fjölskyldan
í heimsókn til frænku Svavars sem þá var búsett ytra og var í
fyrsta sinn að kynna þau fyrir eiginmanni sínum frá Panama,
dr. Luis Rabelo. Í Bandaríkjunum er fólki ráðlagt að halda sig í
gluggalausu herbergi á meðan fellibylir ganga yfir og því hafðist
fólkið við, alls tíu manns, inni í fataskáp í rúma tvo tíma.
Besta kaffiræktarland í heimi
Kynni þeirra Svavars og Luis Rabelo leiddu til þess að smám
saman fóru þeir að fikra sig áfram í viðskiptahugleiðingum og
ákváðu loks að kýla á að senda einn kaffigám hingað, eftir að
hafa kynnt vöruna fyrir helstu kaupmönnum hérlendis. „Kaffi
er jú mesta verslunarvara heims á eftir olíu og sama hvort fólk
er í heimsókn í Kenýa, Kanada eða Íslandi er alls staðar boðið
upp á kaffi,“ segir Svavar.
SeLur ÍSLendingum og dönum dýraSta kaffi Í Heimi:
Hófst með felliByl
Svavar Guðmundsson lenti í fellibylnum Charley
á flórída árið 2004 og þurfti ásamt tíu öðrum að
hafast við inni í fataskáp í tvo tíma. en þar hófust
hins vegar samræður um kaffi og nú hefur Svavar
sambönd í kaffiheiminum sem fáir aðrir hafa.
Hann selur kaffið geisha á 30 þúsund krónur kílóið.
Svavar Guðmundsson.
Selur dýrasta kaffi í heimi,
Geisha, á 30 þúsund krónur kílóið.
texti: maría ólafSdóttir
Mynd: geir ólafSSon