Frjáls verslun - 01.11.2007, Blaðsíða 130
130 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
texti: hrUnd haUkSdóttir • Mynd: geir ólafSSon
new york timeS Bað Hann um áLit:
Hannaði merki
á gulu leigubílana
Þ að hefur ekki mikið farið fyrir Oscari Bjarnasyni, grafískum hönnuði, í íslensku pressunni. En New York Times hafði rekið augu í vörumerki hans og fylgst með honum. Það leitaði síðan álits hans og sex annarra
grafískra hönnuða víða um heim í kjölfar þess að nýtt merki
hafði verið hannað á hina heimsþekktu gulu leigubíla í New
York og íbúar stórborgarinnar reynst óánægðir með það.
New York Times bað þessa hönnuði um að hanna nýtt merki
fyrir leigubílana – geri merki eins og þeir hefðu hannað það.
Það gerði Oscar. Jafnframt gaf hann það álit að merkið sem
upphaflega hefði verið hannað á bílana og íbúar New York
reynst óhressir með væri óþarflega flókið og lagði hann til aðrar
praktískari lausnir.
En hvers vegna var óskað eftir liðsinni hans?
„Hönnunarstjóri heimasíðunnar New York Times.com hafði séð
verk eftir mig á einhverjum hönnunarvef og fór að fylgjast með
mér og því sem ég var að gera,“ segir Oscar.
„Þegar NYC Taxi kynnti svo til sögunnar nýtt merki á gulu
leigubílana við lítinn fögnuð almennings, og ekki síst hönnuða,
þá flaug þeim á New York Times í hug að fá gagnrýni og tillögur
frá nokkrum hönnuðum. Ég var einn af þeim sex eða sjö sem var
haft samband við strax í upphafi.
Eins og allir þekkja sem hafa komið nálægt útgáfu þá er tími
til svona verkefna oftast af skornum skammti og upphaflega
fékk ég einn dag til umráða til að rýna í þetta og koma með
mína útfærslu. Og þar sem ég vinn á Fíton á daginn varð ég að
gera þetta um kvöldið. Þrátt fyrir allt er ég nokkuð sáttur við
útkomuna og það voru þeir á New York Times líka.“
Voru verðlaun í boði?
„Nei, ekki beinlínis. Þar sem þetta var bara ákveðið innlegg í
umræðuna sem New York Times.com ákvað að standa fyrir,
þá voru í raun engin verðlaun önnur en ánægjan yfir að hafa
new york times bað Oscar Bjarnason, grafískan hönnuð á Íslandi,
og sex aðra hönnuði, um að hanna merki fyrir hina heimsþekktu gulu
leigubíla í new york. Þetta gerði blaðið í kjölfar þess að nýtt merki
hafði verið hannað og íbúar stórborgarinnar reynst óánægðir með það.
Oscar Bjarnason, grafískur hönnuður.
maRKaðsmál