Frjáls verslun - 01.11.2007, Blaðsíða 9
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
Skattalína í miklum vexti Eins og áður sagði er skattalína LOGOS
einn af þeim þáttum sem skapa stofunni hvað mesta sérstöðu.
Á skattalínu LOGOS starfa 8 sérhæfðir lögmenn frá þremur
þjóðlöndum en 6 þeirra eru með meistaragráður í alþjóðlegum
skattarétti eða í alþjóðlegum viðskiptarétti. Þeir leysa úr fjölbreyttum
viðfangsefnum fyrir erlenda fjárfesta og lánastofnanir, flest af stærri
fyrirtækjum landsins, auk miðlungsstórra félaga og efnameiri
einstaklinga. Bjarnfreður Ólafsson, hdl. og einn eigenda LOGOS,
veitir skattalínunni forystu: „Annars staðar á Norðurlöndum eru
það yfirleitt endurskoðendur sem fást við skattalöggjöfina. Okkur
hefur hins vegar gengið mjög vel og náð að skila viðskiptavinum
okkar miklum árangri og ávinningi með bættri skipulagningu á öllu
sem varðar skatta og skyldur fyrirtækja. Skattaverkefni LOGOS
spanna allt frá skipulagi á fjármögnun og kaupum á fyrirtækjum í
fjarlægum heimsálfum til vinnu við ágreiningsmál við skattyfirvöld
á stjórnsýslustigi eða fyrir dómstólum. Við hjálpum mönnum
að leggja upp alla fjármögnun og skipulagningu fjárfestingar í
útlöndum út frá skattasjónarmiðum þannig að menn lendi ekki í
tvísköttun eða verði að öðru leyti fyrir óþarfa skattkostnaði vegna
verkefnisins. Rétt skipulag á alþjóðlegum fjárfestingum getur
hreinlega skilið á milli þeirra sem ná árangri og þeirra sem ekki
gera það,“ segir Bjarnfreður. Mikið er lagt upp úr því að lögmenn
skattalínu starfi í þverfaglegum teymum með öðrum sérfræðingum
LOGOS sem hafa á að skipa sérfræðiþekkingu í kauphallarrétti,
félagarétti, fjármunarétti, afleiðusamningum, fasteignaviðskiptum
og svo framvegis.
LOGOS fremst samkvæmt erlendu matsfyrirtæki Enska fyrir
-tækið Chambers and Partners hefur metið LOGOS í fremstu röð
lögfræðiráðgjafa á öllum þeim sviðum sem metin voru á Íslandi.
Einnig voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS taldir skara fram úr á
sínum sviðum. Í þessu er fólgin mikil viðurkenning fyrir LOGOS
þar sem Chambers er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í
mati á gæðum lögfræðiþjónustu. Á þessum merku tímamótum
fyrirtækisins er það mat Helgu Melkorku að LOGOS standi vel að
vígi. „Við teljum okkur hafa leitt þróunina á lögfræðimarkaðinum
á Íslandi og viljum halda áfram á sömu braut. Það ætlum við að
gera með því að halda áfram að laða til okkar hæfasta fólkið. Í þeim
efnum hefur okkur gengið mjög vel og er hópurinn á LOGOS
skipaður frábæru fólki sem fer í verkin af mikilli kunnáttu og færni.
Sveinn Björnsson væri mjög stoltur af LOGOS í dag!“
Efstaleiti 5 • 103 Reykjavík
Sími 540 0300 • Fax: 540 0301
Netfang: logos@logos.is
Netsíða: www.logos.is
Þrír af sérfræðingum skattalínu: Bjarnfreður, Jón Elvar og Dhaval.
Rétt skipulag á alþjóðlegum fjárfestingum getur skilið á milli þeirra
sem ná árangri og þeirra sem gera það ekki.
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
Það hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því að Sveinn Björnsson opnaði
fyrstu lögmannsstofu landsins árið 1907.
Þangað rekur stærsta lögmannsstofa lands-
ins LOGOS sögu sína, en hún hefur haft
forystu í lögmannsþjónustu á Íslandi um
áraraðir. LOGOS er með 66 starfsmenn,
þar af 45 lögfræðinga, og rekur skrifstofur
í Reykjavík og London. Í janúar verður
svo opnuð skrifstofa í Kaupmannahöfn
og verður það kynnt betur á nýju ári. Þó
að margt hafi breyst á hundrað árum eru
gildin enn þau sömu, heiðarleiki, fag-
mennska og metnaður. Þetta er lykillinn
að velgengni LOGOS.
Góður vöxtur og útrás í þágu
viðskiptavina
Það er ekki auðvelt að lýsa hinni fjölbreyttu
starfsemi sem fram fer í stórri lögfræðiskrif-
stofu. Með hæfilegri einföldun má segja að
LOGOS sérhæfi sig í alhliða lögfræðiþjónustu
fyrir viðskiptalífið. Viðskiptavinir LOGOS
eru því fyrirtæki sem þurfa sérfræðiráðgjöf,
einkum í félagarétti, í öllu sem snýr að fjár-
festingum og fjármögnun, samkeppnisrétti
og kauphallarreglum. Síðast en ekki síst má
nefna skattarétt, en á því sviði hefur LOGOS
mikla sérstöðu og yfirburði á íslenskum lög-
fræðimarkaði. Helga Melkorka Óttarsdóttir
hdl., sem stýrir fyrirtækjalínunni, segir það
hafa reynst LOGOS mjög vel að hafa markað
sér skýra stefnu í þjónustu við viðskiptalífið.
„Góður vöxtur og árangur stofunnar er því
að þakka hversu ákveðið hefur verið gengið
til verks á kjarnasviðum okkar. Fyrirtæk-
inu var skipt í fjórar línur; fyrirtækjalínu,
skattalínu og almenna línu, sem m.a. ann-
ast málflutning, auk rekstrar- og nýsköp-
unarlínu. Með þessu náum við fram kostum
sérhæfingar, en auk fyrrgreindra sviða erum
við að sjálfsögðu líka að fást við verkefni í
hvers konar skaðabótamálum, flutninga- og
flugrétti, hugverkarétti, útboðs- og verktaka-
málum, svo eitthvað sé nefnt“, segir Helga.
„Við höfum líka haft í miklu að snúast í
tengslum við íslensku útrásina, til dæmis í
fjármögnunar- og fjárfestingarverkefnum frá
útibúinu okkar í London. Við urðum fyrsta
íslenska lögmannsþjónustan til að fara í útrás
þegar við opnuðum þar.“
Stærð og sérhæfing skilar árangri
Helga segir stærð stofunnar, ásamt sérhæf-
ingunni, vera lykilatriði til að LOGOS
haldi áfram forystuhlutverki sínu. „Vöxtur
LOGOS hefur verið ör og mikill. Frá árinu
2000 hefur vöxturinn í veltunni hjá okkur
að jafnaði verið um 25% og enn meiri síð-
ustu tvö árin. Hvað varðar starfsfólkið þá
voru 18 lögfræðingar hjá okkur árið 2000
og rúmlega 30 starfsmenn samtals, þannig
að á þessum árum hefur fjöldi starfsmanna
meira en tvöfaldast. Í dag vinnum við fyrir
mörg af stærstu fyrirtækjum landsins og
meira og minna fyrir þriðjung af þeim fyr-
irtækjum sem eru í kauphöllinni, auk vinnu
fyrir stórar erlendar lánastofnanir. Hinar
miklu fjárfestingar fyrirtækja hafa kallað á
heilmikla vinnu í kringum lánasamninga og
skipulagningu á fjárfestingum, meðal annars
vegna samruna.“
Skattalína í miklum vexti
Eins og áður sagði er skattalína LOGOS
einn af þeim þáttum sem skapa stofunni
hvað mesta sérstöðu. Á skattalínu LOGOS
starfa 8 sérhæfðir lögmenn frá þremur þjóð-
löndum en 6 þ irra eru með meistaragráður í
alþjóðlegum skattarétti ða í alþjóðlegum við-
skiptarétti. Þeir leysa úr fjölbreyttum viðfangs-
efnum fyrir erlenda fjárfesta og lánastofnanir,
flest af stærri fyrirtækjum landsins, auk miðl-
ungsstórra félaga og efnameiri ei staklinga.
Bjarnfreður Ólafsson, hdl. og einn eigenda
LOGOS, veitir skattalínunni forystu: „Ann-
ars staðar á Norðurlöndum eru það yfirleitt
endurskoðendur sem fást við skattalöggjöfina.
Okkur hefur hins vegar gengið mjög vel og
náð að skila viðskiptavinum okkar miklum
árangri og ávinningi með bættri skipulagn-
ingu á öllu sem varðar skatta og skyldur
fyrirtækja. Skattaverkefni LOGOS spanna
allt frá skipulagi á fjármögnun og kaupum á
fyrirtækjum í fjarlægum heimsálfum til vinnu
við ágreiningsmál við skattyfirvöld á stjórn-
sýslustigi eða fyrir dómstólum. Við hjálpum
mönnum að leggja upp alla fjármögnun og
skipulagningu fjárfestingar í útlöndum út frá
skattasjónarmiðum þannig að menn lendi
ekki tvísköttun eða verði að öðru leyti fyrir
óþ rfa skattkostnaði vegna verkefnisin . Rétt
skipulag á alþjóðlegum fjárfestingum get r
hreinle a skilið á milli þeirra sem ná árangri
og þeirra sem ekki gera það,“ segir Bjarn-
freður. Mikið er lagt upp úr því að lögmenn
skattalínu starfi í þverfaglegum tey um með
öðrum sérfræðingum LOGOS sem hafa á
að skipa sérfræðiþekkingu í kauphallarrétti,
félagarétti, fjármunarétti, afleiðusamningum,
fasteignaviðskiptum og svo framvegis.
LOGOS fremst samkvæmt erlendu
matsfyrirtæki
Enska fyrirtækið Chambers and Partners
hefur metið LOGOS í fremstu röð
lögfræðiráðgjafa á öllum þeim sviðum sem
metin voru á Íslandi. Einnig voru ýmsir
lögmenn hjá LOGOS taldir skara fram úr
á sínum sviðum. Í þessu er fólgin mikil
viðurkenning fyrir LOGOS þar sem Chambers
er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í mati
á gæðum lögfræðiþjónustu. Á þessum merku
tímamótu fyrirtækisins er það mat Helgu
Melkork að LOGOS standi vel að vígi.
„Við teljum okkur haf leitt þróunina á
lö fræðimarkaðinum á Íslandi og viljum halda
áfram á sömu braut. Það ætlum við að gera
með því að halda áfram að laða til okkar
hæfasta fólkið. Í þeim efnum hefur okkur
gengið mjög vel og er hópurinn á LOGOS
skipaður frábæru fólki sem fer í verkin af
mikilli kunnáttu og færni. Sveinn Björnsson
væri mjög stoltur af LOGOS í dag!“
Efstaleiti 5
103 Reykjavík
Sími: 5400300 - Fax: 54003001
Netfang: logos@logos.is
Netsíða: www.logos.is
Rétt skipulag á alþjóðlegum fjárfestingum getur skilið á
milli þeirra sem ná árangri og þeirra sem gera það ekki.
Helga Melkorka Óttarsdóttir hdl, einn eigenda LOGOS. Þrír af sérfræðingum skattalínu: Bjarnfreður Ólafsson, Jón Elvar Guðmundsson, Dhaval J. Sanghavi.
Ætlum að leiða
áfram þróunina
í íslenskri lög-
mannsþjónustu
LOGOS ætlar að halda áfram ótvíræðri forystu
á sviði lögmannsþjónustu fyrir atvinnulífið.
LOGOS er í samstarfi við lögfræðistofur um
allan heim og er vel í stakk búin til að hjálpa
viðskiptavinum sínum við að ná markmiðum
sínum hvar sem er í heiminum.