Frjáls verslun - 01.11.2007, Blaðsíða 142
Lífsstíll
142 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
Svo mörg voru þau orð
„Fréttir af fjármálamörkuðum eru nokkuð líkar veðurfréttum á
Íslandi, ef veðurspáin er sól og logn þá brosa allir sínu breið-
asta og ef hlutabréf hækka um 3 prósent eiga allir að vera
glaðir. Að vísu á stór hluti þjóðarinnar hlutabréf á íslenska
markaðnum hvort sem það er bein eign eða óbein í gegnum
lífeyrissjóði. Hins vegar er vert að hafa í huga að svo fremi
sem maður sé ekki að fara á eftirlaun á morgun eða neyðist
til að selja hlutabréf á næstunni gæti leiðrétting á markaði
verið góðar fréttir. Það er að segja ef þú áætlar að þú munir
kaupa fleiri bréf á næstu árum en þú selur.“
Þóra Helgadóttir, hagfræðingur hjá Kaupþingi.
Markaðurinn, 12. desember.
„Atvinnuþátttaka kvenna á Íslandi er meiri en gengur og ger-
ist í nágrannalöndunum. Á síðasta ári voru sex af hverjum sjö
konum hér á landi á aldrinum 25 til 54 ára á atvinnumarkaði.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar stunda einnig töluvert fleiri
konur en karlar nám á háskólastigi. Aukin reynsla kvenna af
vinnumarkaði og menntun þeirra virðist þó ekki skila sér að
fullu í auknu frumkvöðlastarfi þeirra og er kynjamunurinn á
þessu sviði hvergi meiri en hér á landi.“
Ásdís Jónsdóttir, sérfræðingur á greiningarsviði Rannís.
Morgunblaðið, 6. desember.
Úr Frjálsri verslun fyrir 32 árum:
Kolbrún Edda Gísladóttir, fram
kvæmdastjóri Kynnisferða, er
dugleg að ferðast um landið
enda segir hún að ísland sé fal
legasta landið það sé hreint
og fallegt.
„Mér finnst skemmtilegast
að fara á staði þar sem eru fáir
ferðamenn svo sem á hálend
inu.“
Aðspurð um uppáhaldsstað
ina á íslandi nefnir Kolbrún
Edda Þórsmörk þar sem hún
segir að sé mikil kyrrð, friður
og fegurð. Þá nefnir hún Land
mannalaugar og svæðið þar
í kring, Borgarfjörð, Mývatn,
ásbyrgi og Flatey.
Því fylgir oftast mikil af
slöppun að ferðast enda segir
Kolbrún Edda: „Mér finnst gott að
kúpla mig út úr umhverfinu sem
ég er í alla daga, fara í göngu
túra, slaka á og upplifa frið.“
Fyrir utan lengri ferðir fer
Kolbrún Edda reglulega í sum
arbústað í Grímsnesi. Hún situr
ekki auðum höndum á leiðinni
þegar sambýlismaðurinn ekur
bílnum. „Ég er dugleg að prjóna
og prjónaði nokkrar lopapeysur
í bílnum í sumar.“
Kolbrún Edda Gísladóttir. „Mér finnst gott að kúpla mig út úr um-
hverfinu sem ég er í alla daga, fara í göngutúra, slaka á og upplifa frið.“
Ferðalög innanlands:
Hreint og fallegt