Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 33
LÆKNAblaðið 2014/100 293 ú R p E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í Heilsa og heilsuvernd lækna – hvað næst? Stjórn lÍ Þorbjörn Jónsson, formaður Orri Þór Ormarsson, varaformaður Magnús Baldvinsson, gjaldkeri Salome Á. Arnardóttir, ritari Björn Gunnarsson Guðrún Jóhanna Georgsdóttir Magdalena Ásgeirsdóttir Ólöf Birna Margrétardóttir Þórarinn Ingólfsson Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Fyrir stuttu gekkst Læknafélag Íslands fyrir málþingi um heilsu og heilsuvernd lækna. Læknarnir Kristinn Tómasson, Bjarni Össurarson, Magdalena Ásgeirs- dóttir og Haraldur Erlendsson fræddu um ýmislegt sem þessum málaflokki tilheyrir. Síðan tóku við pallborðsumræður sem margir fundarmenn tóku virkan þátt í. Undanfarið má segja að viss vakning hafi orðið meðal lækna um heilsu stéttar- innar. Fjölsóttir fundir hafa verið haldnir um læknaheilsu, bæði á Læknadögum og á Landspítalanum. Það er óhætt að segja að tími var kominn til að læknar láti þetta mál sig meiru varða en verið hefur. Rannsóknir á heilsu lækna í ýmsum löndum hafa í áranna rás ekki alltaf verið samhljóða. Þær gefa þó til kynna að til dæmis hjarta- og æðasjúkdómar séu álíka algengir meðal lækna og annarra. Andleg vanlíðan ýmisskonar, streita, þunglyndi, kvíði og sjálfsmorð eru hins vegar algeng- ari meðal lækna en hjá öðrum stéttum. Kulnun (burnout) í starfi er einnig alvarlegt einkenni sem þarf að vinna gegn. Orsakir þessara óæskilegu fylgifiska læknisstarfs- ins kunna að vera samverkandi þættir. Margir læknar lifa og starfa undir miklu álagi. Það er erfiður þröskuldur að ljúka strembnu læknanámi. Síðan tekur við krefjandi starfsnám og sérfræðiþjálfun, oft á erlendri grundu, með löngum vinnu- dögum og tíðum vöktum. Læknaskortur og vaxandi vinnuálag vegna hans getur gert ástandið enn verra. Læknisstarfið er ábyrgðarmikið enda snýst það um það sem mestu skiptir, líf og heilsu manna. Flestir læknar gegna stjórnunarhlutverki á sínum vinnustað og margir hafa umtalsverð mannaforráð. Fjölskyldutengsl og félagsleg samskipti ýmiskonar geta liðið fyrir þetta margþætta álag. Evrópusamtök læknafélaga (CPME), með Katrínu Fjeldsted í fararbroddi, gerðu fyrir stuttu könnun á því hvað evrópsk læknafélög hafa gert, eða hyggjast gera, fyrir félagsmenn sína. Þótt svarhlutfall væri fremur lágt, eða 55%, er ekki ástæða til að ætla annað en niðurstöðurnar gefi nokkuð raunhæfa mynd. Það sem kom greinarhöfundi einna mest á óvart var hve heilsumál lækna hafa víðast hvar verið stuttan tíma til umræðu hjá stjórnum læknafélaganna. Hjá tveimur þriðju læknafélaga voru innan við 10 ár síðan málið hafði fyrst verið rætt, hjá þriðjungi komu þau fyrst til umfjöllunar fyrir minna en 5 árum. Það sem algengast var að læknafélögin hefðu gert, var að gangast fyrir fræðslu- og umræðufundum eða koma á fót vinnuhópum til að ræða heilsufarsmál lækna. Í einhverjum til- vikum höfðu félögin tiltækar leiðbeiningar til lækna á netinu. Hjá sumum félögum, meðal annars þeim norrænu, hafði vinna verið lögð í að koma á fót kerfi til að hjálpa læknum, en önnur félög virtust lítið eða ekkert gera í þeim efnum. Í evrópsku samhengi má líklega segja að Læknafélag Íslands hafi tiltölulega snemma farið að huga að þessum málaflokki. Í langan tíma var starfandi á vegum Læknafélags Ís- lands hópur lækna sem félagsmenn gátu leitað til ef þeir lentu í ógöngum með heilsu sína. Ætlunin var að læknarnir veittu ráðleggingar og leiðbeindu, fremur en að þeir meðhöndluðu. Mál þróuðust þó þannig í áranna rás að fáir læknar leituðu sér hjálpar og starfsemin lagðist að mestu af. Til að hægt sé að halda svona starfi samfellt gangandi þurfa læknar að sýna áhuga og leita sér aðstoðar ef þarf. Svo reyndist því miður ekki vera. Nú virðist vera orðin viðhorfsbreyting hjá læknum og þeir eru tilbúnari að ræða heilsu sína og ef til vill leita sér aðstoðar. Nýverið hóf Heilsustofnun Nátt- úrulækningafélags Íslands í Hveragerði að bjóða þjónustu fyrir lækna sem þurfa að taka á sínum málum. Þar geta læknar fengið heilsufarsráðleggingar og aðra viðeigandi aðstoð auk afnota af húsnæði meðan á dvöl stendur. Þetta er mikilvægt frumkvæði og það ber að lofa. Reynslan mun síðan skera úr hve margir læknar kjósa að nýta sér þetta nýja úrræði. Í fyrirsögn þessa greinarkorns segir Heilsa og heilsuvernd lækna – hvað næst? Nú virðist vera runninn upp sá tími að læknar hafi vaxandi áhuga á heilsu sinni og hvernig megi hlúa að henni, þeim sjálfum og skjólstæðingum þeirra til heilla. Sum erlend læknasamtök, til dæmis finnsku og norsku læknafélögin, hafa staðið framar- lega þegar litið er til aðgerða og umræðu um heilsufarsmál lækna. Íslenskir læknar geta örugglega lært af þeim og lagað reynslu þeirra að sínum þörfum og getu. Á vegum félagsins er starfandi Fjölskyldu- og styrktarsjóður lækna. Meta má hvort rétt sé að sjóðurinn verði meira nýttur til að vinna að bættri heilsu lækna. Það gæti verið mögulegt, ekki síst ef fjárhagur sjóðsins styrkist, til dæmis með auknu framlagi við gerð nýrra kjarasamninga. Um þetta og fleira þurfa bæði stjórn Læknafélags Íslands og aðalfundur að fjalla. Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands, ónæmislæknir og blóðgjafafræðingur thorbjor@landspitali.is Cloxabix (celecoxib) er notað til meðhöndlunar á einkennum slitgigtar, iktsýki, og hryggiktar Góður liðstyrkur til meðferðar við gigt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.