Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 37
LÆKNAblaðið 2014/100 297
u M F J ö l l u n O G G R E i n a R
„Þar vinna menn fram í rauðan dauðann
og væru aldrei lasnir. Það gerir okkur að
góðum læknum en veika fyrir andlegum
vandamálum. Við erum þjónar almenn-
ings og það er hringt í okkur á nóttinni.
Við segjum aldrei nei og það gengur oft
nærri okkur. Þetta er bæði styrkur okkar
og Akkilesarhæll, göfugt en ekki alltaf
heilsusamlegt og leiðir til blindu á eigin
veikleika,“ sagði Haraldur.
Hann sagði að álagið á lækna hefði
aukist í kjölfar kreppunnar og nú væri svo
komið að þetta gengi ekki lengur, læknar
þyrftu að setja sér mörk. Kulnun í starfi
birtist í því að siðferðisreglur byrjuðu að
brotna, menn yrðu blindir fyrir sjálfum
sér og lentu í áfengi eða öðru rugli. „Við
gleymum gildunum sem komu okkur í
fagið,“ sagði hann og varaði lækna við því
að taka að sér of mikla vinnu, „því þótt
við þolum það kannski í skamman tíma
getum við ekki unnið svona í 20-30 ár.“
Eins og fleiri fundarmenn nefndi
Haraldur að skortur á sjálfræði lækna væri
oft hluti vandans. „Ef við getum stjórnað
tíma okkar sjálf er auðveldara að takast
á við álagið en inni á stofnunum er það
erfiðara.“ Þar gæti svarið legið í því að
læknahópurinn ræddi málin eins og gert
er í Bretlandi þar sem læknar þyrftu að
endurnýja starfsleyfi sitt á fimm ára fresti.
Þar væru læknar skikkaðir til að taka þátt
í hópstarfi með kollegunum þar sem þeir
styðja hver annan og gefa skýrslur sem
endurnýjun leyfisins væri byggð á.
Námsleyfi í Hveragerði?
Haraldur sneri sér síðan að því að lýsa því
starfi sem unnið er í Hveragerði og snertir
lækna. Hann sagði að í Noregi væri búið
að setja það í kerfi að þegar læknir lendi
í öngstræti gæti hann haft samband við
einhvern og talað við hann, fengið ráð og
leiðbeiningar um næstu skref – án þess að
það væri skráð í sjúkraskýrslur. „Af þessu
þurfum við að læra,“ sagði Haraldur.
Hann sagði að þótt ekki væri hægt að
líkja Hveragerði við Villa Sana í Noregi
sem sinnti heilsu lækna væri orðinn til
vísir að kerfi til að taka við þeim. Þeir
gætu fengið ráð hjá læknum þar án þess
að viðtalið væri skráð í Sögu og reynt
væri að koma þeim að í dvöl þar eystra
með skömmum fyrirvara þótt almennur
biðtími væri allt upp í tvo mánuði. Þar
gæfist þeim kostur á að átta sig á stöðunni,
farið í viðtöl og fengið sálfræðiþjónustu og
líkamlega meðferð.
Einn vandinn við þetta tilboð er sá
að ekki er gert ráð fyrir því í kjarasamn-
ingum lækna og stéttarfélagið tekur ekki
þátt í dvöl lækna í Hveragerði. Haraldur
skaut fram þeirri hugmynd hvort ekki
mætti nýta námsleyfi lækna í þessu skyni.
„Væri ekki hægt að koma á einhverju
fyrirkomulagi þar sem staða þeirra væri
skoðuð. Hvaða erfiðleika glímir hann við?
Er hann stressaður eða kvíðinn? Á hann í
erfiðleikum með samskipti? Út frá þessu
mætti svo skipuleggja námsleyfin,“ sagði
Haraldur.
Félagið undirbúi aðgerðir
Þetta síðastnefnda var talsvert rætt í pall-
borðsumræðunum að framsöguerindum
loknum. Sumum þótti þetta góð hugmynd
en aðrir vildu fara varlega í því að gera
námsleyfin að verslunarvöru. Þorbjörn
Jónsson upplýsti að nýtingin á náms-
leyfum lækna væri um 60% að meðaltali
svo ef til vill væri eitthvert svigrúm þar.
Hins vegar hefði komið fram í samræðum
stjórnar við fjölda lækna í tengslum við
kjarasamninga að enginn áhugi væri á að
fórna námsleyfum í þeim.
Annað sem menn nefndu var hvort
Styrktar- og fjölskyldusjóður gæti ekki
styrkt lækna sem þyrftu að dvelja í
Hveragerði. Haraldur benti á að mörg
stéttarfélög styrktu félagsmenn sína til
dvalar. Reynir Arngrímsson tók undir það
sjónarmið að þessi vandi væri mál fyrir
hópinn, ekki einstaklinginn einan. „Við
þurfum að huga að heilsuvernd og fyrir-
tækjamenningu og hluti af starfi okkar
er að hugsa um okkur sjálf. Kannski væri
hægt að koma því inn í kjarasamning að
læknar fái einn dag á ári til að stunda
heilsuvernd.“
Þorbjörn stjórnaði fundi og tók saman
í lokin þá niðurstöðu að greinilega væri
þörf á því að félagið tæki á þeim málum
sem varða heilsufar og heilsuvernd lækna.
„Þetta hefur verið í umræðunni af og til
án þess að nokkuð áþreifanlegt hafi gerst.
Kannski er umræðan orðin nógu þroskuð
núna til þess að svo verði,“ sagði hann
og var farinn að boða menn á fund til að
undirbúa tillögugerð fyrir aðalfund LÍ í
haust áður en hann sleit fundi.
Jón Gunnar Hannesson heimilislæknir í stjórn LR og Haraldur Erlendsson í Hveragerði. Bak við þá er málverk Gunn-
laugs Blöndal af Halldóri Hansen eldra. Myndir: Védís.