Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 35
LÆKNAblaðið 2014/100 295
u M F J ö l l u n O G G R E i n a R
vera haldinn starfsleiða. Áratug áður var
sambærilegt hlutfall 1%.
Í nýrri könnuninni kom í ljós að stór
hluti yngri lækna kvartar undan erfið-
leikum með svefn. Úti í samfélaginu nota
2-3% karla undir þrítugu svefnlyf en sú
tala er mun hærri meðal ungra lækna.
„Það er líka athyglisvert að þeir fáu sem
þó leita til læknis tala aldrei við hann um
geðheilsuna,“ sagði Kristinn.
Kristinn starfar hjá Vinnueftirlitinu og
benti á að víða í atvinnulífinu hefðu orðið
miklar framfarir í vinnuumhverfi, svo sem
í byggingariðnaði, landbúnaði og þunga-
iðnaði. Þetta er ekki bundið við Ísland og
heldur ekki það að heilbrigðiskerfið hefur
orðið útundan í þessari þróun. „Það má
því segja að nú sé töluvert heilsusamlegra
að starfa í álveri en á sjúkrahúsi,“ sagði
Kristinn.
Læknar erfiðir í meðferð
Kristinn hafði það eftir landlækni að
honum bærust mjög fá mál vegna veik-
inda eða annarra vandræða lækna. Þau
væru eitt eða tvö á ári og yfirleitt vegna
fíknivanda. Bjarni Össurarson geðlæknir
fjallaði sérstaklega um þann hluta af
heilsufari lækna og skýrði frá því að
fíkniraskanir væru álíka algengar meðal
lækna og annarra þjóðfélagshópa. Læknar
notuðu heins vegar meira af lyfseðils-
skyldum lyfjum en aðrir og væru líklegri
til að misnota þau. Þar væru ákveðnir
hópar í meiri hættu en aðrir og nefndi
hann sérstaklega bráðalækna, geðlækna,
svæfingalækna og einyrkja.
Læknar koma hins vegar síður í með-
ferð en aðrir sem glíma við fíkn. „Við verð-
um að halda stjórninni, megum ekki sýna
veikleika og óttumst að missa vinnuna,“
sagði Bjarni. Hann bætti því við að læknar
væru sjálfstæðir en þá vanti stuðning og
þeir ættu mjög erfitt með að horfast í augu
við erfiðleika annarra lækna. „Þeir eru
ótrúlega kollegíal,“ sagði hann.Þorbjörn formaður meðtekur boðskap Högna Óskarssonar geðlæknis.
Á formannafundi flytja formenn hinna ýmsu deilda LÍ skýrslur sínar og stjórnarmenn hlýða á þær: Magnús Baldvinsson röntgenlæknir, Sólveig Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri LÍ,
Anna Gunnarsdóttir barnalæknir og Jörundur Kristinsson heimilislæknir og formaður Orlofssjóðs.