Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 21
LÆKNAblaðið 2014/100 281
Inngangur
Uppkastafælni (emetophobia), eða áköf og órökrétt
hræðsla tengd uppköstum, hefur hingað til verið flokkuð
sem sértæk kvíðaröskun í alþjóðlegum flokkunarkerfum
og þá í flokki sértækrar fælni. Þessi kvilli hefur þó verið
dulinn í mörgum tilfellum hjá þolendum og því lítið
rannsakaður samanborið við flestar kvíðaraskanir.1-3
Kenningar hafa verið settar fram um að uppkastafælni
falli í eðli sínu vart í flokk sértækrar fælni. Hún sé frem-
ur undirflokkur felmtursröskunar eða félagsfælni, í raun
kvíðaröskun með fælniþætti þar sem þolendur forðast
aðstæður sem gætu leitt til uppkasta.1, 2 Einnig hefur hún
verið talin skarast við áráttu og þráhyggjuröskun.2 Hins
vegar er ljóst að þessi kvíðaröskun getur líkt og sumar
aðrar kvíðaraskanir verið þrálát og valdið miklu álagi í
einkalífi, vinnu og hamlað félagslegri virkni. Hún getur
einnig valdið því að konur forðast eða seinka því að
eignast börn.4
Margt er enn á huldu um algengi uppkastafælni, þar
sem það hefur lítið verið rannsakað.2, 4 Eina stóra faralds-
fræðirannsóknin sem lagði mat á algengi sértækar fælni
og greindi uppkastafælni frá, taldi algengi hennar vera
0,1%.5 Þetta kann að vera vanmat, þar sem einkenni upp-
kastafælni skarast oft við einkenni felmtursröskunar,
heilsukvíða, áráttu og þráhyggju og jafnvel við lystarstol
(tafla I).6 Mat nokkurra annarra rannsakenda á algengi
uppkastafælni er allt frá 1,7 til 3,1% hjá körlum og frá 6
til 7% hjá konum.3, 7, 8 Hér ber mikið í milli. Erfitt hefur
reynst að finna mun milli kynja í sumum rannsóknum6
en í öðrum hafa konur verið í miklum meirihluta,4, 6 líkt
og á við um flestar kvíðaraskanir.4
Erfitt er að rannsaka sjúkdóminn, ekki síst vegna
lítilla tengsla þessa hóps við heilbrigðiskerfið. Fólk
með uppkastafælni virðist almennt ekki leita sér að-
stoðar nema það veikist af öðrum sjúkdómum, svo sem
þunglyndi eða annarri kvíðaröskun. Það er hugsanlega
vegna þess að það skammast sín iðulega fyrir uppkasta-
Emetophobia, sem nefna má uppkastafælni, er áköf og órökrétt hræðsla
tengd uppköstum og ógleði. Emetophobia er flokkuð sem sértæk fælni í
alþjóðlegum flokkunarkerfum. Þessi kvilli er dulinn í mörgum tilfellum hjá
þolendum þar sem þeir skammast sín fyrir sjúkdóminn, og hefur hann
því lítið verið rannsakaður samanborið við flestar kvíðaraskanir. Fátt er
því vitað um algengi uppkastafælni, meðferð og afdrif. Lýst er konu á
fertugsaldri sem glímt hefur við uppkastafælni frá barnæsku, þar sem hún
upplifði slæma gubbupest tvö aðfangadagskvöld í röð. Æ síðan hefur ótti
við uppköst litað margt í daglegu lífi hennar.
ÁGRIp
fælnina.9, 10 Einnig kemur fram í umfjöllun þolenda á
internetinu að það geri þeim erfitt um vik að fáir læknar
viti hvað uppkastafælni er og margir viti í raun ekki að
uppkastafælni sé til.9-11
Konan sem hér er til umfjöllunar hefur glímt við upp-
kastafælni frá barnsaldri. Þessi órökrétti kvíði og hliðr-
un hefur háð henni allar götur síðan. Hún á góð og slæm
tímabil en er aldrei einkennalaus. Að því leyti minnir
gangurinn frekar á áráttu og þráhyggju eða félagskvíða
en á felmtursröskun. Tilgangurinn með birtingu þessa
sjúkratilfellis er að vekja athygli á þessari duldu og ef
til vill sjaldgæfu kvíðaröskun og til að auka þekkingu
heilbrigðisstarfsmanna og almennings á þessum kvilla.
Með því móti væntum við að auðveldara verði fyrir
þolendur að leita sér hjálpar og fyrir fagfólk að greiða
götu þeirra.
Sjúkratilfelli
Um er að ræða vel menntaða konu á fertugsaldri, í góðu
starfi og í hjónabandi. Hún á börn á leikskólaaldri. Kon-
an hefur aldrei reykt né notað áfengi eða aðra vímugjafa.
Hún hefur haft kvíða og uppkastafælni frá barnsaldri og
hefur nokkrum sinnum legið á geðdeild vegna þessa, og
stundum jafnframt með þunglyndiseinkenni. Gegnum
tíðina hefur hún reynt mörg meðferðarúrræði við sinni
uppkastafælni en ekkert af þeim hefur borið góðan ár-
angur að hennar mati. Hún hefur einnig farið í ítarlegt
greiningarviðtal með tilliti til átröskunarsjúkdóms en
engin slík einkenni komu þar fram. Sjálf segir hún át-
röskun aldrei hafa verið vandamál hjá sér.
Upphaf einkenna sjúklings má rekja til þess að hún
fékk gubbupest tvö aðfangadagskvöld í röð, sjö og átta
ára gömul. Á aðfangadag ári síðar fékk hún fyrsta ofsa-
kvíðakastið. Síðan hefur hún jafnan tengt uppköst við
minningar um að hafa eyðilagt jólin fyrir fjölskyldunni.
Greinin barst
11. janúar 2014,
samþykkt til birtingar
26. mars 2014.
Engin hagsmunatengsl
gefin upp.
Emetophobia: sjúklegur ótti
við uppköst og ógleði
Kolfinna Snæbjarnardóttir1 læknanemi, Engilbert Sigurðsson1,2 læknir
1Læknadeild Háskóla
Íslands, 2geðsviði Land-
spítala Hringbraut
Fyrirspurnir:
Engilbert Sigurðsson
engilbs@lsh.is
S J ú k R a T i l F E l l i
Benidette
– Getnaðarvörn til inntöku
Barneignir
ekki á dagskrá
Hver tafla inniheldur 150 µg af desógestreli
og 20 µg af etinýlestradíóli.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
c
ta
v
is
3
1
6
0
8
1