Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 46
306 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Nýting erfðaupplýsinga – Skálholtsumræðan Gagnreyndar rannsóknir eru í flestum tilfellum undirstaða heilbrigðisþjónustu eins og við þekkjum í dag. Vísindi tengjast framförum. Þar gildir að kröfur um sönn- unarbyrði eru miklar og árangur umfram óvissu og áhættu þarf að vera ótvíræður. Ferli sem felur í sér að meta þýðingu og síðan hrinda í framkvæmd nýtingu á niðurstöðum grunnrannsókna getur verið langdregið og mörg nálaraugu sem þarf að komast í gegnum. Þetta getur átt við um nýjungar í lyfjameðferð, handlækningum og lækningarannsóknum og greiningu. Þýðingarrannsóknir (translational research) meta mikilvægi og þýðingu niður- staðan grunnrannsókna til hagnýtingar í læknisfræði. Fyrir rétt um ári síðan var að undirlagi Íslenskrar erfðagreiningar í samstarfi við læknadeild HÍ og fleiri aðila efnt til málfundar í Skálholti um hvernig mætti með jákvæðum hætti nýta miklar upplýsingar og niðurstöður sem fyrir hendi eru úr víðtækum erfðarann- sóknum fyrirtækisins og samstarfsaðila þeirra. Í kjölfarið hefur umræða, sem vísað hefur verið til sem Skálholtsumræðunnar, um hvernig nýta mætti aðgengilegar niðurstöður úr vísindarannsóknum sem heilsufarsupplýsingar, haldið áfram. Þó áhersla hafi verið á erfðaupplýsingar, á þetta ekki síður við aðrar rannsóknar- niðurstöður. Mikilvægur þáttur í slíkri umræðu er að skilgreina álitaefni og meta aðgengi að slíkum upplýsingum. Skoða fordæmi og efna til samræðna þeirra sem málið varðar. Í fyrsta lagi fagaðila með reynslu og þekkingu á málefninu og síðar á almennum grunni í samfélaginu. Huga þarf að hefðum og reglum í vísindarann- sóknum. Svara spurningum sem lúta að siðfræði og lagalegum hliðum. Meta hagsmuni þátttakenda í rannsóknunum og síðan þjóðfélagsþegnanna á breiðari grunni. Með hliðsjón af erfðaupplýsingum hafa ættingjar sérstöðu sem þarf að taka tillit til. Gögn sem um ræðir Í fyrsta lagi er um að ræða niðurstöður vísindarannsókna, til dæmis úr erfðarann- sóknum sem framkvæmdar eru með upp- lýstu samþykki þátttakenda og varðveittar með dulkóðuðu persónuauðkenni og al- mennt ekki aðgengilegar eða skilgreindar sem heilsufarsgögn við núverandi að- stæður. Krafa um fullkominn aðskilnað persónugreinanlegra upplýsinga og ein- stefna á upplýsingaflæði, það er að segja frá þátttakanda og ábyrgðaaðila til rann- sóknarstofu en ekki til baka, hefur verið að mestu allsráðandi fram til þessa dags en er að breytast hægt og bítandi. Umræðan hlýtur því að snúast um hvort tímabært sé að breyta með afgerandi hætti afstöðu til þessarar meginreglu og möguleikans á að opna fyrir bakflæði á niðurstöðum beint til þátttakenda. Slík þróun á sér þegar stað og í reynd er farið að beita sveigjanlegra upplýstu samþykki sem stuðlar að tvíátta samvinnu þessara aðila. Þetta hefði átt erfitt uppdráttar fyrir skemmstu og af- stöðubreytingin er tímanna tákn. Þessu hefur ráðið breyttur skilningur á mögu- leika á nýtingu á rannsóknarniðurstöðum, afstöðu þátttakenda og kröfur ekki síður en tækniframfarir upplýsingasamfélagsins og að einhverju leyti krafa um klæðskera- sniðnar heilbrigðisúrlausnir. Í öðru lagi er um að ræða afleidd gagnasöfn sem hægt er með tiltölulega einföldum hætti að nýta fyrir aðra en þátt- takandann sjálfan og þá fyrst og fremst ættingja en einnig í víðtækari faralds- fræðilegum rannsóknum. Þetta geta verið erfðaupplýsingar, bæði sameindaerfða- fræðilegar arfgerðargreiningar og áhættu- mat svipgerðar unnið með samtengingu á skrám með heilsufarsupplýsingum (til dæmis Krabbameinsskrá) og ættfræði- gagnagrunnum. Það síðarnefnda er nú þegar nýtt við krabbameinserfðaráðgjöf, til dæmis við mat á hvort áhætta eða líkur á BRCA meinvaldandi stökkbreytingum hjá þeim sem leitar krabbameinserfðaráð- gjafar sé af þeirri stærðargráðu að rétt sé að standa að sameindaerfðarannsókn til greiningar og meðferðarákvörðunar. Auðvelt er að yfirfæra slíka aðferðafræði á önnur heilbrigðisvandamál og búa til sér- tækar eða víðfeðmar ættfræðimeinaskrár. Hverjum til hagsbóta Hverjir gætu haft gagn af því að aðgengi að persónubundnum fremur en dulkóð- uðum vísindarannsóknaniðurstöðum yrði gert auðveldara? Þeir sem taka þátt í slíkum rannsóknum eru hópur sem vegna veikinda sinna telur að þátttaka geti leitt til framfara á einhvern hátt fyrir hópinn sem á við þann heilsuvanda að stríða, þar með talið þá sjálfa. Yfirleitt er dregið úr þessum væntingum í kynningargögnum sem lagðar eru fyrir áður en þátttakendur eru beðnir um að taka upplýsta ákvörðun um vilja sinn. Þetta geta verið niður- stöður tengdar sjúkdómum sjálfum sem hafa beina þýðingu fyrir þátttakandann, fjölskyldu hans eða fjarskyldari ættingja. Uppgötvun um aðra undirliggjandi sjúk- dóma eða óvæntar niðurstöður sem mælt hefur verið með að greina sjúklingum frá ef þeir koma fram í lækningarannsóknum eða skimunarprógrammi. Aðgengi að víðtæku sameindaerfða- fræðigagnasafni sem nær til stórs hluta þjóðarinnar gæti nýst einstaklingum sem óska eftir skimun eða áhættumati vegna erfðasjúkdóma eða heilbrigðisvandamála Reynir arngrímsson sérfræðilæknir og dósent, erfða- og sameinda- læknis fræðideild Landspítala reynirar@landspitali.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.