Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 26
286 LÆKNAblaðið 2014/100
Í T i l E F n i 1 0 0 Á R a Ó S l i T i n n a R ú T G Á F u l æ k n a b l a ð S i n S
Fjallabaksleið nyrðri þar til komið er að merktum slóða til norð-
austurs. Slóðinn er merktur Langasjó og Sveinstindi og liggur
sunnan Grænafjallgarðs, rétt norðan Eldgjár. Hann er fær jepp-
lingum frá júlí og fram í september og aðeins tekur um hálftíma
að aka að rótum fjallsins. Stikuð gönguleið liggur á toppinn frá
merktu bílastæði. Flestir ná toppnum á skemmri tíma en klukku-
stund (mynd 2).
Af toppnum sést á góðum degi yfir Langasjó, Fögrufjöll, upp-
tök Skaftár, Skaftárafrétt, Lakagíga, vesturhluta Vatnajökuls og
hrjóstrugt miðhálendið með ótal tindum, vötnum, ám og söndum.
Gönguleiðin hentar göngufólki á öllum aldri, jafnt öldruðum sem
fjölskyldum með börn.5 Útsýnið yfir fagurbláan Langasjó er einkar
fallegt á uppgöngunni og fá fjöll hér á landi trompa það útsýni
sem við blasir af tindinum á góðviðrisdegi (mynd 3).
Sveinstindur í Öræfajökli
Það eru ekki margir sem vita að tindurinn er sá næsthæsti á Ís-
landi, 2044 metrar yfir sjávarmáli. Hann myndar hluta af austur-
brún öskjunnar í Öræfajökuli og sést toppurinn ágætlega frá þjóð-
veginum þegar ekið er í vesturátt frá Breiðamerkurlóni (mynd 4).
Reyndar er þekkt að menn telji Sveinstind vera Hvannadals-
hnjúk frá þessu sjónarhorni (mynd 5), en þótt Hvannadalshnjúkur
sé 66 metrum hærri sést hann ekki úr austri frá þjóðveginum, þar
sem hann stendur við norðvesturbrún öskjunnar (mynd 6).
Fáir hafa lagt leið sína á Sveinstind í Öræfajökli, ólíkt nágranna
hans, Hvannadalshnjúk, sem trónar fjórum kílómetrum vestar og
Mynd 3. Útsýni af toppi Sveinstinds til norðurs yfir Langasjó. Fögrufjöll til hægri og Vatnajökull í baksýn. Mynd: Óðinn Árnason.
Mynd 4. Öræfajökull séður úr austri. Sveinstind (2044 m) ber hæstan við himin og
vinstra megin við hann er Sveinsgnípa (1925 m). Skriðjökullinn fyrir miðri mynd er
Hrútárjökull og til hægri er Fjallsjökull. Mynd: Ólafur Már Björnsson.
Mynd 5. Horft yfir hluta gönguleiðarinnar á leiðinni til baka. Þessi brekka er án efa ein
lengsta skíðabrekka landsins. Mynd: Tómas Guðbjartsson.