Læknablaðið - 01.04.2014, Side 14
214 LÆKNAblaðið 2014/100
2. maí og varð þar faraldur í kjölfarið sem breiddist út um allt
land.22,24,27 Helgi fann fyrir slappleika á leiðinni til Íslands og fór
beinustu leið í lyfjabúðina við Thorvaldsenstræti þegar hann kom
á land. Þar hitti hann Jón Tómasson afgreiðslumann og bað hann
um eitthvað hressandi því að „slen“ væri í sér. Tveimur dögum
síðar komu útbrot fram á Helga og hann varð það slappur að hann
lagðist í rúmið. Við þetta fóru viðvörunarbjöllur í gang og hús
Helga var sett í einangrun með það að markmiði að stöðva út-
breiðslu mislinganna.26 Þessar aðferðir dugðu ekki til, enda hafði
Helgi farið víða og nánast óhjákvæmilegt að hann hefði smitað
fleiri áður en hann lagðist. Afgreiðslumaður lyfjabúðarinnar
lagðist næst, síðan bæjarbúar hver á fætur öðrum.24 Jónas Jónassen
landlæknir sendi út rit til að sporna gegn útbreiðslu mislinganna
en allt kom fyrir ekki. Sóttin gerði fljótlega vart við sig í Latínuskól-
anum. Kennsla féll niður og flestum vorprófum frestað til næsta
hausts. Um það leyti sem Latínuskólanum var lokað var talið að
1000-1100 manns hefðu fengið mislingana. Illvíg lungnabólga var
algengur fylgikvilli. Margir fengu slæman hlustarverk og misstu
heyrn um tíma og sumir misstu sjón. „Breitt var fyrir alla glugga,
því sjúklingar þoldu illa birtuna, og þegar komið var inn í húsin
heyrðist ekki annað en veikindastunur í hálfrökkrinu.”24 Talið var
að nær allir þeir sem ekki höfðu fengið mislinga áður hafi veikst.
Þungaðar konur urðu hvað verst úti, ásamt ungbörnunum, og
mislingarnir höfðu þau áhrif að þær fæddu iðulega fyrir tímann.
Mörg börn fæddust því andvana og margar mæður létust af barns-
förum. Samkvæmt Þorvaldi Jónssyni, héraðslækni á Ísafirði árið
1882, var veikin sérstaklega hættuleg ungbörnum, veikluðu fólki
og barnshafandi konum. Flestar barnshafandi konur misstu fóstur
eða fæddu fyrir tímann og flest þau börn létust.24,28 Árið 1882 var
erfitt að mörgu leyti. Sumarið var óvenjukalt og samgöngur erf-
iðar. Ekki var hægt að fá mat frá útlöndum vegna samgönguleysis
og matvælaskortur var í verslunum víðs vegar um landið. Ofan á
allt bættust mislingarnir.24
Faraldurinn 1882 – töluleg gögn úr kirkjubókum
Fjöldi dauðsfalla eftir mánuðum árin 1881-1883 er sýndur á mynd
5. Sjá má að fjöldi dauðsfalla náði hámarki í júlí 1882, þegar 1084
létust. Það var rúmlega sexföld aukning á fjölda dauðsfalla miðað
við sama mánuð árið á undan og rúmlega fjórföld aukning miðað
við árið á eftir. Alls létust 1916 manns í júní, júlí og ágúst árið 1882
en aðeins 507 og 637 þessa sömu mánuði árin 1881 og 1883 hvort
um sig. Umframdánarhlutfall eftir sýslum meðan faraldurinn
stóð sem hæst er sýnt á mynd 4. Eins og sjá má af myndinni var
hlutfallið lægst í Þingeyjarsýslum, Múlasýslum og A-Skaftafells-
sýslu. Sýslan með hæsta umframdánarhlutfallið árið 1882 var
N-Ísafjarðarsýsla. Sú sýsla var með fimmta lægsta dánarhlutfallið
árið 1846.
Aldurs- og kynbundin dánartíðni Íslendinga sem létust á
meðan faraldurinn stóð sem hæst er sýnd á mynd 6. Sjá má að
stærsti hlutinn voru börn, 0-4 ára, og konur á barneignaaldri voru
í meirihluta miðað við karla á sama aldri. Samkvæmt gögnum
Hagstofunnar var meðalfjöldi látinna barna á fyrsta aldursári árin
1877-1881 386 börn á ári, en alls létust 1010 börn á fyrsta aldurs-
ári árið 1882. Ef gögn um fjölda fæðinga eru skoðuð sést að þeim
fækkaði mjög þegar faraldurinn náði hámarki, en einnig kemur
fram 50% fækkun 7-9 mánuðum síðar (mynd 7).
Umræða
Í þessari grein hefur verið leitast við að lýsa tveimur af stærstu
mislingafaröldrum sem þekktir eru með vissu hér á landi. Þrátt
fyrir að aðstæður séu nú gerbreyttar frá 19. öld þegar Ísland var
R A N N S Ó K N
Mynd 5. Fjöldi dauðsfalla á Íslandi í hverjum mánuði árin 1881 – 1883. Mynd 6. Aldurs- og kynbundið dánarhlutfall Íslendinga á aldrinum 0-36 ára, er
létust í júní, júlí og ágúst árið 1882.
Mynd 7. Áhrif mislingafaraldursins 1882 á fjölda fæðinga árið 1883. Rauðbrúna
flatarmálsgrafið sýnir fjölda dauðsfalla frá júní 1882 til og með maí 1883. Græna línan
sýnir meðalfjölda fæðinga í hverjum mánuði á 5 ára tímabilinu 1877-1881 með 95%
öryggisbili. Rauða línan sýnir fjölda fæðinga frá júní 1882 til maí 1883.