Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.2014, Page 19

Læknablaðið - 01.04.2014, Page 19
LÆKNAblaðið 2014/100 219 Inngangur Sár eru stórt heilbrigðisvandamál en talið er að allt að 1,5% fólks á Vesturlöndum glími við einhvers konar sár á hverjum tíma.1 Kostnaður vegna sára og sáraumbúða er mikill, eða sem nemur 2-4% af útgjöldum til heilbrigðis- mála í Skandinavíu.2 Á síðustu árum hafa orðið miklar framfarir í meðferð sára og gerð sáraumbúða. Ein helsta nýjungin er sárasogsmeðferð (negative pressure wound therapy, NPWT). Sárasogsmeðferð var fyrst lýst í nú- verandi mynd árið 1997 og kom í stað vættra saltvatns- grisja sem löngum hafa verið uppistaðan í hefðbundinni sárameðferð.3 Á síðustu árum hefur sárasogsmeðferð rutt sér til rúms um allan heim og telja margir að það sé bylting í sárameðferð. Meðferðin byggir á því að myndaður er undirþrýstingur staðbundið í sárbeðnum með loftþéttum umbúðum og sárasugu sem tengd er við umbúðirnar. Með þessu móti er sárið hreinsað og um leið flýtt fyrir sárgræðslu. Sárasogsmeðferð er hægt að nota á flestar tegundir sára en þó sérstaklega við sýkt skurðsár og langvinn sár sykursýkissjúklinga.4-12 Með- ferðin er dýrari en hefðbundnar sáraumbúðir en á móti kemur að sárgræðsla er hraðari sem getur stytt legutíma og minnkað kostnað.5,7 Virkni sárasogsmeðferðar Að örva gróningu sára með undirþrýstingi er gamalt ráð, til dæmis voru á miðöldum sett hituð glös á húðsár til að örva blóðflæði í þeim. Upp úr 1980 hófust rann- sóknir á því að nota sogkera með lokuðum umbúðum til að græða langvinn sár og sárafistla.13 Áratug síðar var farið að reyna meðferðina við venjuleg sár þar sem beitt var samtímis svampi í sárinu og undirþrýstingi.14 Það var síðan 1997 að Frakkarnir Argenta og Morykwas lýstu fyrstir sárasogsmeðferð eins og hún þekkist í dag.3 Sárasogsmeðferð hefur fjölþætt áhrif á gróningu sára eins og sýnt er á mynd 1. Með því að beita neikvæðum Sárasogsmeðferð til að örva sárgræðslu var fyrst lýst í núverandi mynd árið 1997. Meðferðin byggir á því að undirþrýstingur er myndaður staðbundið í sárbeðnum með umbúðum og sárasugu sem tengd er við umbúðirnar. Með þessu er sárið hreinsað og flýtt fyrir sárgræðslu. Sárasogsmeðferð hefur verið notuð hér á landi í rúman áratug en um er að ræða nýja nálgun í meðferð sára sem hefur nýst í meðferð ýmissa sjúk- lingahópa, meðal annars sjúklinga með útlimasár en einnig djúpar sýking- ar í kviðar- og brjóstholi. Í þessari yfirlitsgrein er farið yfir ábendingar og árangur sárasogsmeðferðar. Greinin er skrifuð með breiðan hóp lækna og hjúkrunarfræðinga í huga og byggð á nýjustu heimildum þar sem meðal annars er vísað til nýlegra íslenskra rannsókna. ÁGRIp þrýstingi í sárinu eru gröftur og millifrumuvökvi fjar- lægðir úr sárinu en þeir geta tafið gróningu sára.3 Auk þess veldur neikvæður þrýstingur togi á frumur í sár- beðnum. Togið örvar myndun vaxtarþátta sem hvetja til nýmyndunar æða og auka þannig blóðflæði til sársins. Auk þess örvast myndun holdgunarvefs sem flýtir fyrir gróningu sársins.3,15 Loks dregur neikvæður þrýstingur sárkantana saman og minnkar sárið16. Í eldri rannsókn- um var talið að sárasogsmeðferð hefti vöxt baktería í sárinu en nýrri rannsóknir hafa ekki getað staðfest það.17 Við sárasogsmeðferð er algengast að beita 125 mmHg neikvæðum þrýstingi.3 Nýrri rannsóknir benda hins vegar til þess að árangur sé ekki síðri þegar beitt er lægri undirþrýstingi, eða allt að 50mmHg,17,18 en blóðflæði við sárkanta er svipað við 50 mmHg og 175 mmHg undirþrýsting.19 Sami þrýstingur er notaður við grisjur og svampa. Oft ræðst af verkjum sjúklings hversu miklum undirþrýstingi er beitt þar sem mikið sog getur aukið verki. Við stór sár og sár sem vessa mikið er þó oft Greinin barst 23. október 2013, samþykkt til birtingar 4. mars 2014. Engin hagsmunatengsl gefin upp. Sárasogsmeðferð – yfirlitsgrein Ingibjörg Guðmundsdóttir1 hjúkrunarfræðingur, Steinn Steingrímsson1 læknir, Elsa Valsdóttir1,2 læknir, Tómas Guðbjartsson1,2 læknir 1Skurðsviði Landspítala, 2læknadeild Háskóla Íslands. Fyrirspurnir: Tómas Guðbjartsson tomasgud@landspitali.is Y F I R L I T Mynd 1. Teikning sem sýnir verkun sárasogsmeðferðar. Sjá nánari út- skýringar í texta. Myndin er birt með leyfi KCI® Medical. Victoza 6 mg/ml stungulyf, lausn í áfylltum lyfjapenna. NovoNordisk. A 10 BX 07. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS – Styttur texti SPC Innihaldslýsing: Einn ml af lausn inniheldur 6 mg af liraglútíði. Einn áfylltur lyfjapenni inniheldur 18 mg af liraglútíði í 3 ml. Victoza er ætlað til meðferðar áÁbendingar: fullorðnum með sykursýki af tegund 2 til að ná stjórn á blóðsykri: Í samsettri meðferð með metformíni eða súlfónýlúrealyfi hjá sjúklingum með ófullnægjandi stjórn á blóðsykri þrátt fyrir stærsta þolanlegan skammt af metformíni eða súlfónýlúrea einu sér, eða í samsettri meðferð með metformíni og súlfónýlúrealyfi eða metformíni og tíazólidíndíóni hjá sjúklingum sem hafa ófullnægjandi stjórn á blóðsykri þrátt fyrir tveggja lyfja meðferð. Til að auka þolSkammtar og lyfjagjöf: Skammtar: meltingarfæra er upphafsskammturinn 0,6 mg af liraglútíði á sólarhring. Eftir a.m.k. viku á að auka skammtinn í 1,2 mg. Búast má við því að sumir sjúklingar hafi ávinning af því að auka skammtinn úr 1,2 mg í 1,8 mg og með hliðsjón af klínískri svörun má auka skammtinn í 1,8 mg eftir a.m.k. eina viku til að bæta blóðsykurstjórnun enn frekar. Ekki er mælt með sólarhringsskömmtum sem eru stærri en 1,8 mg. Victoza má bæta við metformín meðferð sem er þegar til staðar eða við samsetta meðferð með metformíni og tíazólidíndíóni. Halda má áfram að gefa óbreyttan skammt af metformíni og tíazólidíndíóni. Victoza má bæta við meðferð með súlfónýlúrealyfi sem er þegar til staðar eða við samsetta meðferð með metformíni og súlfónýlúrealyfi. Þegar Victoza er bætt við meðferð með súlfónýlúrealyfi má íhuga að minnka skammt súlfónýlúrealyfsins til að draga úr hættu á blóðsykurslækkun. Ekki er nauðsynlegt að sjúklingur fylgist sjálfur með blóðsykri til að stilla af skammtastærð Victoza. Við upphaf samsettrar meðferðar með Victoza og súlfónýlúrealyfi gæti á hinn bóginn reynst nauðsynlegt að sjúklingur fylgdist sjálfur með blóðsykri til að stilla af skammtastærð súlfónýlúrealyfsins. Ekki er þörfSérstakir sjúklingahópar: Aldraðir sjúklingar (>65 ára): á skammtaaðlögun vegna aldurs. Reynsla af meðferð er takmörkuð hjá sjúklingum sem eru 75 ára. : Ekki er þörf á skammtaaðlögun hjá≥ Sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi sjúklingum með væga skerðingu á nýrnastarfsemi (kreatínínúthreinsun 60 90 ml/mín.).- Mjög takmörkuð reynsla er af meðferð hjá sjúklingum með miðlungsmikla skerðingu á nýrnastarfsemi (kreatínínúthreinsun 30 59 ml/mín.) og engin reynsla er af meðferð hjá- sjúklingum með verulega skerðingu á nýnastarfsemi (kreatínínúthreinsun minni en 30 ml/mín.). Sem stendur er ekki hægt að mæla með notkun Victoza hjá sjúklingum með miðlungsmikla eða verulega skerðingu á nýrnastarfsemi, þ.m.t. sjúklingum með nýrnabilun á lokastigi. Reynsla af meðferð hjáSjúklingar með skerta lifrarstarfsemi: sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, á hvaða stigi sem er, er of takmörkuð til að hægt sé að mæla með notkun Victoza hjá sjúklingum með væga, miðlungsmikla eða verulega skerðingu á lifrarstarfsemi. Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun VictozaBörn: hjá börnum og unglingum yngri en 18 ára. Engar upplýsingar liggja fyrir. Lyfjagjöf: Ekki má gefa Victoza í bláæð eða í vöðva. Victoza á að gefa einu sinni á sólarhring hvenær dagsins sem er, óháð máltíðum og það má gefa undir húð á kvið, læri eða upphandlegg. Skipta má um stungustað og tímasetningu án þess að aðlaga skammta. Hins vegar er mælt með því að gefa Victoza inndælingu á u.þ.b. sama tíma dags þegar búið er að finna hentugasta tíma dagsins. Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverjuFrábendingar: hjálparefnanna. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is Markaðsleyfishafi: Novo Nordisk A/S, Novo Allé, DK-2880 Bagsværd, Danmörk. Umboðsaðili á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabær. Sími: 535-7000. Textinn var síðast samþykktur í mars 2013. Ath. textinn er styttur. Sjá nánar undir Lyfjaupplýsingar á vef Lyfjastofnunar: www.lyfjastofnun.is Pakkningastærð(ir):Tveir pennar í pakka. Hver penni inniheldur 3 ml lausn með 6mg/ml. Hver penni er því 15 skammtar miðað við 1,2 mg/skammt eða 10 skammtar miðað við 1,8mg/skammt. Afgreiðslutilhögun (afgreiðsluflokkun): Verð (samþykkt hámarksverð, 1. marsR. 2014): 6 mg/ml, 3ml x 2 pennar. Kr. 21.498,- Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga: O. Sjá nánari upplýsingar á vef Lyfjaafgreiðslunefndar www.lgn.is Heimildir: 1. 2.DSAM, type 2-diabetes - et metabolisk syndrom, Klinisk vejledning for almen praksis, 2012 Pratley RE et al. One year of Liraglutide treatment offers sustained and more effective glycaemic control and weight reduction compared with sitagliptin, both in combination with metformin, in patients with type 2 diabetes: a randomised, parallel-group, open-label trial. Int J Clin Pract 2011; 65(4):397-407 Inngrip snemma í sjúkdómsferlinu með árangursríkri blóðsykurstjórn getur bætt fleiri góðum árum við lífið1 Victoza einu sinni á dag samhliða töflumeðferð leiðir til:® marktækrar lækkunar á HbA1c2 marktæks þyngdartaps2 IS /L R / 0 6 1 3 /0 1 6 0

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.