Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.2014, Side 21

Læknablaðið - 01.06.2014, Side 21
LÆKNAblaðið 2014/100 341 hina góðu stöðu sem íslenskar konur njóta nú, - á íslenskan en ekki síður alþjóðlegan mælikvarða. Hugtök um heilbrigði kvenna Kyn- og æxlunarheilbrigði er þýðing á enska hugtakinu sexual and reproductive health og tekur til allra þátta sem varða gerð og eðlilega líffræðilega starfsemi í kynfærum kvenna og tengdum líffærum, frá æsku til efri ára. Með því hugtaki er athygli beint að mikilvægi þessara hluta líkamans, ekki einasta vegna barneigna, heldur einn- ig til að leggja áherslu á miðlæga þýðingu þeirra í almennri heil- brigði karla og kvenna. Í víðara samhengi má hvað konur varðar tala um kvenheilbrigði (women´s health), sem þá tekur til sértækra heilbrigðismála kvenna þar sem öll líffæri og öll líkamsstarfsemi er tekin með á þann hátt sem hún er öðruvísi meðal kynjanna. Hvað sem líður öðrum jöfnuði milli kynjanna, þá eru líffræðileg hlutverk kvenna og karla frábrugðin og vart þarf að árétta það. Þó er ekki langt síðan skilningur á heilbrigði og sjúkdómum var að miklu leyti miðaður við það sem voru þekktar staðreyndir um karla, svo sem viðmiðunargildi í blóðrannsóknum, sjúkdómseinkenni (hjartaöng er gott dæmi) og forspár um gang sjúkdóma. Eðlileg aldurs- og kynjastöðluð gildi fyrir ýmsar líffræðilegar breytur hafa fyrst komið til á síðustu hálfu öldinni. Lítið var vitað um lífeðlisfræði og lífefnafræði kvenna og um kvenhormóna fyrr en upp úr miðri síð- ustu öld. Áherslan var á að lækna það sem úrskeiðis fór. Heilbrigði kvenna var mælt með tölum um mæðradauða. Burðarmálsdauða var farið að skoða upp úr 1960-70. Á seinni hluta aldarinnar komu til kynskiptar tölur um krabbamein, og þá hvað konur varðaði í lungum, brjóstum, eggjastokkum, legi og leghálsi, einkum eftir að krabbameinsskráin (1954) og skipulagða krabbameinsleitin (1964) höfðu orðið til. Með rannsóknum hjá Hjartavernd bættust við kynskiptar tölur um hjartasjúkdóma meðal kvenna. Þó heilsa við tíðahvörf og heilsufar tengt getnaðarvörnum, fóstureyðingumm og ófrjósemi kæmu inn í almenna umræðu í vaxandi mæli á 7.-9. áratugunum í tengslum við breytta þjóðfélagshætti, breytta fjöl- miðlun og vaxandi tölvu- og vefnotkun, var ekki farið að ræða um kynheilbrigði að marki fyrr en á síðasta áratug 20. aldar og æxl- unarheilbrigði á sér enn styttri og minna mótaða sögu sem hugtak í íslenskum veruleika. Mæðra- og burðarmálsumbætur Frá fyrri hluta 20. aldar lækkuðu hlutfallstölur um burðarmáls- dauða og mæðradauða hratt frá nær 400/100000 upp úr 19115 og niður í 4-5/100000 á síðustu árum6, sem er með því lægsta sem sést í heiminum. Margar samverkandi ástæður koma þar til, svo sem stórbætt almenn kjör fólks, fækkun barneigna, betri mæðravernd (nú oft nefnd meðgönguvernd með skírskotun bæði til móður og fósturs) með Rhesus-vörnum og gjöf K-vítamíns til að varna blæðingarheilkenni nýbura, með bættu öryggi í fæðingum sam- fara síritun og skyldum hjálparaðgerðum, margfalt betri meðferð langvinnra sjúkdóma, svo sem sykursýki, rauðum úlfum og lang- vinnum bólgusjúkdómum í þörmum og ristli hjá konum á barn- eignaaldri, vel skipulögð skimun fyrir fósturgöllum og meðgöng- urof ef alvarlegir gallar greinast, markviss framköllun á fæðingum þegar konur fara fram yfir væntanlegan fæðingartíma, og miklar framfarir í nýburalækningum. Á síðari árum hafa bættar leiðbein- ingar í meðgönguvernd komið til og gert kleift að færa hana í meiri mæli á heilsugæslustöðvar, en nýta um leið sérfræðiþjónustuna betur fyrir þær konur sem þess þurftu með. Tilkoma tæknifrjóvg- unar um 1990 breytti horfum fyrir þau 10% para sem áður gátu ekki eignast börn. Þó sumar þessara kvenna hefðu margvíslega áhættuþætti á meðgöngu, svo sem hærri aldur og vandamál sem tengdust því hefur samt ekki orðið aukning á mæðra- eða burðar- málsdauða. Vaxandi offituvandi íslenskra kvenna hefur heldur ekki haft áhrif á þessa þætti enda þótt verri horfur varðandi út- Landspítalinn með fæðingardeildinni um 1960, hornsteinninn fyrir kvennaheilbrigði gegnum árin. Ljósmyndari óþekktur.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.