Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.2014, Side 32

Læknablaðið - 01.06.2014, Side 32
352 LÆKNAblaðið 2014/100 Ágætu kollegar, ritrýnar, rektor og aðrir gestir, velkomin í Iðnó í tilefni af 100 ára samfelldri útgáfu Læknablaðsins. Við getum borið höfuðið hátt í dag. Engin önnur stétt hefur gefið út fagtímarit jafn- lengi og samfellt á Íslandi. Blaðið er einnig leiðandi meðal fræðitímarita hér á landi í frágangi og kröfum til fræðigreina og er skráð í alla helstu alþjóðlega gagnagrunna á sviði læknisfræði þótt það sé ritað á ís- lensku. Blaðið er í opnum aðgangi á netinu og fjölmiðlar fylgjast grannt með efni þess. Ritstjórnin ákvað síðastliðið haust að 100. árgangurinn yrði sem afmælisárgangur nýttur til að staldra við, kynna sögu blaðsins og þróun heilbrigðisþjónustu hér á landi í máli og myndum. Í dag er við hæfi að horfa yfir farinn veg. Við getum fæst sett okkur í spor þeirra frumkvöðla sem ýttu Læknablaðinu úr vör. Guðmundur Hannesson gerði það fyrst tímabundið 1901 til 1904, þegar hann handskrifaði og fjölritaði það sem hann nefndi „fyrirrennara íslensks Læknablaðs“ og sendi kollegum í norðausturamtinu. Guðmundur var 11 árum síðar, í árs- byrjun 1915, kjörinn, ásamt tveimur öðrum læknum, í fyrstu ritstjórn hins eiginlega Læknablaðs og hann hefur jafnan verið talinn aðalhvatamaður að útgáfu blaðsins. Guðmundur viðrar mikilvægi þess að stofna Læknablað á Íslandi í inngangi í fyrsta tölublaði fyrsta árgangs í janúar 1915 með þessum orðum: „Erlendis er það margreynt að læknar eru hin félags- lyndasta og starfsamasta stétt. Vér erum dreifðir sinn í hverju héraði út um alt þetta stóra land og eigum afar erfitt með að finnast og kynnast. Flestum er nánast ómögulegt að sækja læknafundi og auk þess er það lítt kleyft vegna kostnaðar. Oss eru allar bjargir bannaðar til að bæta úr einangrun vorri og tengja stétt vora saman nema þessi eina: að halda út Læknablaði. Það getum vér ef vér viljum og það getur nægt til að ræða þessi mál vor, nægt til þess að vér gætum hagsmuna lækna- stéttarinnar, ef þess gerist þörf, og tengt oss saman í félagslynda bróðurlega heild.“ … „Vér erum í engum vafa um að íslenskt læknablað hefur mikið og nauðsynlegt verk að vinna og vér berum það traust til íslensku læknastéttarinnar að hún styðji það, svo það geti orðið oss bæði til gagns og sóma.“ Góðir kollegar. Við skulum skála fyrir því að íslenskir læknar hafi staðið undir því trausti sem Guðmundur og félagar hans báru til sporgöngumanna sinna úr læknastétt og að við höfum borið gæfu til að gefa blaðið út samfleytt í 100 ár. Hin mikla þátttaka lækna í símenntun á Læknadögum í janúar ár hvert sýnir að íslenskir læknar eru nú á dögum upp til hópa félagslyndir og fróðleiksfúsir, ekki síður en hinir erlendu kollegar Guð- mundar sem hann horfði til árið 1915. Guðmundur hafði lært til læknis í Kaup- mannahöfn og hafði því samanburð sem margir kollega hans höfðu ekki. Því verður ekki neitað að mikið hefur reynt á samtakamátt lækna hér á landi á síðasta áratug. Sveiflur og óvissa hafa ein- kennt efnahagsmál, stjórnmál, fjölmiðlun og uppbyggingu heilbrigðisþjónustu í okk- ar ágæta landi. Vonandi fara tímar aukins jafnvægis í hönd. Í mínum huga eru Læknablaðið og Læknadagar það lím sem helst heldur stéttinni saman og sýnir styrk hennar, styrk sem stéttin sækir í þekk- ingu byggða á rannsóknum. Þar fáum við umgjörð til að ræða nýjungar í meðferð og greiningu, rannsóknir, sögu og félagsmál, og þar hafa læknar og læknanemar fag- legan vettvang til að kynna ranns óknir sínar á íslensku. Ritstjórar Læknablaðsins hafa alla tíð lagt mikið upp úr því að blaðið sé skrifað á móðurmálinu. Hefur sú stefna efalítið stuðlað beint og óbeint að myndun íðorða og nýyrða í íslenskri læknisfræði. Guð- mundur Hannesson skilaði þar drjúgu verki að vanda. Svokölluð Orðanefnd Ávarp í Iðnó Læknablaðið 1915-2014 Engilbert Sigurðsson ábyrgðarmaður og ritstjóri Læknablaðsins Karl Andersen hjartalæknir sem var í ritstjórn 2000-2007, Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor og Jens A. Guðmunds- son kvensjúkdómalæknir. Geir Gunnlaugsson landlæknir, Tómas Guðbjartsson brjóstholsskurðlæknir sem hefur verið í ritstjórn frá 2006 og Engilbert Sigurðsson geðlæknir sem hefur setið í ritstjórn frá 2005, ritstjóri og ábyrgðarmaður frá 2010.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.