Læknablaðið - 01.06.2014, Page 32
352 LÆKNAblaðið 2014/100
Ágætu kollegar, ritrýnar, rektor og aðrir gestir,
velkomin í Iðnó í tilefni af 100 ára samfelldri
útgáfu Læknablaðsins.
Við getum borið höfuðið hátt í dag. Engin
önnur stétt hefur gefið út fagtímarit jafn-
lengi og samfellt á Íslandi. Blaðið er einnig
leiðandi meðal fræðitímarita hér á landi í
frágangi og kröfum til fræðigreina og er
skráð í alla helstu alþjóðlega gagnagrunna
á sviði læknisfræði þótt það sé ritað á ís-
lensku. Blaðið er í opnum aðgangi á netinu
og fjölmiðlar fylgjast grannt með efni þess.
Ritstjórnin ákvað síðastliðið haust að 100.
árgangurinn yrði sem afmælisárgangur
nýttur til að staldra við, kynna sögu
blaðsins og þróun heilbrigðisþjónustu hér
á landi í máli og myndum.
Í dag er við hæfi að horfa yfir farinn
veg. Við getum fæst sett okkur í spor
þeirra frumkvöðla sem ýttu Læknablaðinu
úr vör. Guðmundur Hannesson gerði það
fyrst tímabundið 1901 til 1904, þegar hann
handskrifaði og fjölritaði það sem hann
nefndi „fyrirrennara íslensks Læknablaðs“
og sendi kollegum í norðausturamtinu.
Guðmundur var 11 árum síðar, í árs-
byrjun 1915, kjörinn, ásamt tveimur öðrum
læknum, í fyrstu ritstjórn hins eiginlega
Læknablaðs og hann hefur jafnan verið
talinn aðalhvatamaður að útgáfu blaðsins.
Guðmundur viðrar mikilvægi þess að
stofna Læknablað á Íslandi í inngangi í
fyrsta tölublaði fyrsta árgangs í janúar
1915 með þessum orðum: „Erlendis er
það margreynt að læknar eru hin félags-
lyndasta og starfsamasta stétt. Vér erum
dreifðir sinn í hverju héraði út um alt
þetta stóra land og eigum afar erfitt með
að finnast og kynnast. Flestum er nánast
ómögulegt að sækja læknafundi og auk
þess er það lítt kleyft vegna kostnaðar. Oss
eru allar bjargir bannaðar til að bæta úr
einangrun vorri og tengja stétt vora saman
nema þessi eina: að halda út Læknablaði.
Það getum vér ef vér viljum og það getur
nægt til að ræða þessi mál vor, nægt til
þess að vér gætum hagsmuna lækna-
stéttarinnar, ef þess gerist þörf, og tengt
oss saman í félagslynda bróðurlega heild.“
… „Vér erum í engum vafa um að íslenskt
læknablað hefur mikið og nauðsynlegt
verk að vinna og vér berum það traust til
íslensku læknastéttarinnar að hún styðji
það, svo það geti orðið oss bæði til gagns
og sóma.“
Góðir kollegar. Við skulum skála fyrir
því að íslenskir læknar hafi staðið undir
því trausti sem Guðmundur og félagar
hans báru til sporgöngumanna sinna úr
læknastétt og að við höfum borið gæfu til
að gefa blaðið út samfleytt í 100 ár.
Hin mikla þátttaka lækna í símenntun
á Læknadögum í janúar ár hvert sýnir
að íslenskir læknar eru nú á dögum upp
til hópa félagslyndir og fróðleiksfúsir,
ekki síður en hinir erlendu kollegar Guð-
mundar sem hann horfði til árið 1915.
Guðmundur hafði lært til læknis í Kaup-
mannahöfn og hafði því samanburð sem
margir kollega hans höfðu ekki.
Því verður ekki neitað að mikið hefur
reynt á samtakamátt lækna hér á landi á
síðasta áratug. Sveiflur og óvissa hafa ein-
kennt efnahagsmál, stjórnmál, fjölmiðlun
og uppbyggingu heilbrigðisþjónustu í okk-
ar ágæta landi. Vonandi fara tímar aukins
jafnvægis í hönd. Í mínum huga eru
Læknablaðið og Læknadagar það lím sem
helst heldur stéttinni saman og sýnir styrk
hennar, styrk sem stéttin sækir í þekk-
ingu byggða á rannsóknum. Þar fáum við
umgjörð til að ræða nýjungar í meðferð og
greiningu, rannsóknir, sögu og félagsmál,
og þar hafa læknar og læknanemar fag-
legan vettvang til að kynna ranns óknir
sínar á íslensku.
Ritstjórar Læknablaðsins hafa alla tíð
lagt mikið upp úr því að blaðið sé skrifað
á móðurmálinu. Hefur sú stefna efalítið
stuðlað beint og óbeint að myndun íðorða
og nýyrða í íslenskri læknisfræði. Guð-
mundur Hannesson skilaði þar drjúgu
verki að vanda. Svokölluð Orðanefnd
Ávarp í Iðnó
Læknablaðið
1915-2014
Engilbert Sigurðsson
ábyrgðarmaður og ritstjóri Læknablaðsins
Karl Andersen hjartalæknir sem var í ritstjórn 2000-2007, Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor og Jens A. Guðmunds-
son kvensjúkdómalæknir.
Geir Gunnlaugsson landlæknir, Tómas Guðbjartsson brjóstholsskurðlæknir sem hefur verið í ritstjórn frá 2006 og
Engilbert Sigurðsson geðlæknir sem hefur setið í ritstjórn frá 2005, ritstjóri og ábyrgðarmaður frá 2010.