Læknablaðið - 01.06.2014, Side 41
LÆKNAblaðið 2014/100 361
Forstöðulæknir skurðlækninga
Laus er til umsóknar 100% staða forstöðulæknis skurðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri.
Staðan veitist frá 1. september 2014 eða nánara samkomulagi og er veitt til 5 ára.
Ábyrgðarsvið: Forstöðulæknir veitir skurðlækningum faglega forstöðu, ber rekstrarlega ábyrgð og starfsmannaábyrgð. Forstöðulæknir ber
ábyrgð á kennsluhlutverki og tekur þátt í klínísku starfi.
Hæfniskröfur: Umsækjandi skal hafa lækningaleyfi á Íslandi og fullgild réttindi í skurðlækningum, auk faglegrar reynslu, fræðilegar þekkingar
og reynslu af stjórnun og kennslu. Lögð er áhersla á leiðtogahæfileika og hæfileika á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Skurðlækningasvið Sjúkrahússins á Akureyri þjónar aðallega íbúum Norður- og Austurlands á sviði skurðlækninga.
Starfsemin er fjölbreytt. Sérfræðingar sviðsins sjá um vaktir í almennum skurðlækningum við sjúkrahúsið, sinna skurðstofustarfsemi og sjúk-
lingum á legudeildum og göngudeildum. Þeir taka einnig þátt í kennslu nema í læknis- og hjúkrunarfræði.
Næsti yfirmaður er Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri handlækningasviðs sem gefur nánari upplýsingar um starfið í tölvupósti
ses@fsa.is eða í síma 4630100.
Starfskjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Skurðlæknafélags Íslands.
Umsóknarfrestur er til 21. júní 2014.
Umsóknum skal skilað á umsóknareyðublaði Embættis landlæknis um læknisstöður sem fæst á vef sjúkrahússins fsa.is, til Þóru Ákadóttur
starfsmannastjóra sjúkrahússins eða á netfang thora@fsa.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt upp-
lýsingum um fræðilegar rannsóknir, rit- og kennslustörf og staðfest afrit af fylgigögnum.
öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: öRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem
er reyklaus vinnustaður. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og
helstu sérgreinameðferðir, það er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins og er kennslusjúkrahús.
WMA -
fundur
Fundur WMA var haldinn í
Tókýó 24.-26.apríl síðastliðinn.
Fulltrúi Íslands var Jón G Snædal.
Á myndunum má sjá formann
ráðsins, Chair of WMA Council,
Dr. Mukesh Haikerwal frá Ástr-
alíu, Dr. Otmar Kloiber fram-
kvæmdastjóra WMA ( secretary
general) og konurnar þrjár eru
sem hér segir: Forseti Americal
Medical Association: Dr.Ardis
D.Hoven, forseti World Medical
Association: Dr. Margaret Mung-
herera frá Uganda og forseti
Evrópusamtaka lækna, CPME:
Katrín Fjeldsted.
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R