Læknablaðið - 01.11.2014, Qupperneq 31
LÆKNAblaðið 2014/100 599
Í T i l E F n i 1 0 0 Á R a Ó S l i T i n n a R Ú T G Á F U l æ k n a b l a ð S i n S
Við héldum að við hefðum sigrað heiminn nokkrum árum
seinna þegar Merck lyfjafyrirtækið sem á þeim tíma var stærsta
lyfjafyrirtæki heims vildi gera stóran samning um eitt lyfjaformið
sem við vorum að vinna með. Segja má að það hafi verið fyrstu
stóru vonbrigðin í minni nýsköpunarsögu þegar Merck hætti við
á síðustu metrunum. Ég lærði það þarna að halda ró minni þó að
maður væri um það bil að sigra heiminn.
Sprotafyrirtækið okkar hét Cyclops (mynd 3) annars vegar eftir
grísku goðsagnaverunni og hins vegar af því að við vorum að
vinna með Cyclodextrín og Ophthalmos (auga).
Sprotafyrirtækið hélt áfram og lofaði góðu og undir lok tíunda
áratugarins keypti Íslensk erfðagreining fyrirtækið með manni og
mús. Verðið var greitt alfarið í hlutabréfum og því miður áttum við
megnið af þeim hlutabréfum ennþá þegar Íslensk erfðagreining fór
á hausinn allmörgum árum síðar. Þetta var kannski annar stóri
lærdómurinn: Að hafa vit á því að innbyrða aflann að minnsta
kosti að hluta til þegar hann er kominn í nótina.
Það var nokkrum árum seinna að Þorsteinn fann upp á því að
búa til nanóagnir úr Cyclodextrínsameindunum og þetta reynd
ist stórt framfaraspor sem nýttist vel til augnlyfjaþróunar. Við
stofnuðum nýtt fyrirtæki, Oculis ehf, og okkur tókst að þróa mjög
áhugaverð lyfjaform á grunni nanóagnanna. Við gerðum grunn
rannsóknir og dýratilraunir hér í Reykjavík, en leituðum sam
starfs við erlenda kollega um frekari klínískar rannsóknir. Gamlir
vinir mínir í Japan framkvæmdu rannsókn þar sem þeir prófuðu
augn dropana okkar við sjónhimnubjúg í sykursýki, sem er ein af
algengustu orsökum blindu í heiminum.5
Þeir sýndu fram á að það mætti bæta sjónina og minnka bjúg
inn með augndropunum einum saman, þar sem ella er gefið lyf
sem sprautað er inn í augað með sprautunál (mynd 4).
Í framhaldinu hafa kollegar og vinir víða um heim gengið til
samstarfs við okkur og eru klínískar rannsóknir nú í gangi eða að
fara af stað í Ísrael og Japan, Svíþjóð, Þýskalandi og Hollandi, svo
nokkur lönd séu nefnd. Enn og aftur eru stóru alþjóðlegu lyfja
fyrirtækin farin að veita þessu athygli og við erum aftur farin að
tala um tugi milljóna dollara (mynd 5). Í ljósi sögunnar höldum
við þó ró okkar og vitum að kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé
komið. Samstarf okkar Þorsteins hefur verið árangursríkt bæði á
sviði nýsköpunar og akademískra vísinda.6,7
Margir meistara og doktorsnemar hafa stundað rannsóknir á
þessu sviði og varið meistara og doktorsritgerðir, flestar frá lyfja
fræðideild.8
Súrefnisrannsóknir
Rannsóknir mínar í Bandaríkjunum snerust að verulegu leyti um
súrefnisefnaskipti í auganu og augnsjúkdóm í sykursýki.9,10
Augnsjúkdómur í sykursýki er ein af algengustu orsökum
blindu í heiminum og með því að sykursýki er í hröðum vexti
um allan heim er þetta ein helsta orsök blindu í heiminum. Ég
hef haldið áherslunni á augnsjúkdóm í sykursýki alla tíð, bæði
vísindalega og í mínu starfi sem augnlæknir. Augnlyfin sem við
Þorsteinn vorum að þróa beindust meðal annars að augnsjúkdómi
í sykursýki og súrefnisrannsóknirnar snerust að töluverðu leyti
um það líka.
Súrefnisrannsóknirnar leiddu okkur til þess að rannsaka líf
eðlisfræði glerhlaups augans og segja má að við höfum opnað það
rannsóknasvið. Glerhlaupið er seigt gel sem fyllir augað að innan
og temprar flutning efna milli einstakra vefja og milli hluta sjón
himnu. Við grófum upp gamla kennisetningu úr doktorsritgerð
Alberts Einstein,11 StokesEinstein jöfnuna, sem segir að flutningur
efna með sveimi (diffusion) sé línulega háður seigjustigi efnisins
sem sveimunin fer um.12
Sama gildir um vökvaflæði. Þessar kennisetningar dugðu vel
til að skýra rannsóknaniðurstöður okkar og varpa skíru ljósi á
hlutverk glerhlaupsins í lífeðlisfræði augans. Okkur tókst að skilja
hvernig glerhlaupsaðgerðir og náttúruleg glerhlaupslos hafa áhrif
á sjúkdómsferli og aldurshrörnun augans (mynd 6).13,14
Mynd 1. Teikning af dr. Róbert Machemer (1933-2010) sem er í fundarsal augndeild-
ar Landspítalans. Hann var helsti upphafsmaður glerhlaupsaðgerða.
Mynd 2. Cyclodextrín-sameind (sílinder) og lyfjasameind (gul) mynda fléttu. Cyclo-
dextrínsameindin verkar sem ferja sem flytur lyfjasameindina nær takmarki sínu.
Mynd 3. Gríska goð-
sagnapersónan Cyclops.