Læknablaðið - 01.11.2014, Qupperneq 46
614 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Íris stendur í ströngu á þessu hausti
þegar fyrsta verkfall lækna er skollið
á. Hún segir áhuga hennar á réttindum
sínum og kjörum hafi orðið til þess að
hún bauð sig fram til ritara í stjórn FAL
haustið 2012 og tók svo við embætti for
manns nú í haust.
„Ómar (Sigurvin Gunnarsson, fráfarandi
formaður) lagði hart að mér að taka við
formennskunni en hann hafði verið for
maður í þrjú ár. Félagar innan FAL eru
mjög breiður og ólíkur hópur, allt frá
5. og 6. árs læknanemum til reyndra
deildarlækna. Það er himinn og haf á milli
reynslu þessara einstaklinga og ég tel
mikilvægt að formaður sitji ekki of lengi
þess vegna,“ segir Íris.
Hún gegnir nú hálfri stöðu deildar
læknis á bráðadeildinni í Fossvogi og segir
að það sé einn af fáum stöðum þar sem
deildarlæknum bjóðist að gegna hluta
starfi. „Það hentaði mér reyndar ágætlega
þar sem ég hef áhuga á vinnunni sem þar
fer fram en þar sem ég er með innan við
ársgamalt barn langaði mig ekki að taka
að mér meiri vinnu tímabundið.“
Og þar með erum við komin að kjarna
málsins sem er kjarabarátta lækna en Íris
Ösp segir að hálf staða deildarlæknis í
dagvinnu skili henni innan við 150.000
krónum eftir skatta svo það sé einmitt
þess vegna sem hægt sé að vera í hálfu
starfi á bráðamóttöku þar sem treyst er á
að menn taki vaktir. „Og ég er svo heppin
að maki minn er með ágætar tekjur svo
þetta gengur upp hjá okkur. En þetta er
ekki ástand sem maður vill lifa við til
frambúðar og það breytist ekki nema kjör
lækna verði bætt verulega.“
Hún dregur upp einfalda en skýra
mynd af stöðunni sem blasir við hennar
félögum í FAL á þessu hausti. „Við erum
flest á aldrinum 2735 ára. Við erum öll í
þeirri stöðu að velta fyrir okkur sérnámi
erlendis og viljum í rauninni flest starfa
hér á landi í framhaldi af því. Okkar hlut
verk sem leiðum þessa kjarabaráttu er
að tryggja hag lækna þannig að þeir geti
komið aftur heim að loknu sérnámi. Eins
og staðan er í dag er það ekki hægt. Ef við
skoðum hlutfall starfandi sérfræðinga hér
á landi sem útskrifuðust frá læknadeild
HÍ árin 20002004 eru það 37%. Hin 63
prósentin eru búsett erlendis þó allur þessi
hópur hafi lokið sérnámi sínu. Við höfum
í rauninni misst af þessum hópi því stað
reyndin er sú að því lengur sem fólk býr
erlendis, því minni líkur eru á að það flytji
heim aftur. Ef farið er 20 ár eða lengra
aftur í tímann er hlutfallið 7080% Íslandi
í vil. Kjör lækna hafa versnað til muna á
undanförnum árum og þessar tölur stað
festa það. Á sama tíma bjóðast læknum
mjög góð kjör og mun betri starfsaðstæður
á hinum Norðurlöndunum.“
Í huga Írisar eru starfsaðstæður meira
en bara steinsteypa, tæki og tól. „Það er
líka mannaflinn, samstarfið og samráðið
sem starfið verður að bjóða og að vera
ekki endalaust á vakt. Við viljum öll að til
staðar séu nægilega margir sérfræðingar í
hverri sérgrein svo vaktabyrðin verði ekki
óbærileg. Læknar á mínum aldri gera ein
faldlega þá kröfu að fá tækifæri til að gera
ýmislegt annað en vera læknir. Með því á
ég við að við viljum vera foreldrar, makar,
eiga tómstundir, stunda áhugamál, sinna
félagslífi. Okkur finnst það vera mann
réttindi að geta lifað af dagvinnu okkar.
Læknar eru skilgreindir í kjarasamingum
sem dagvinnufólk sem tekur vaktir og því
bætast vaktirnar ofan á 40 stunda vinnu
viku, en án vaktanna geta deildarlæknar
ekki framfleytt sér. Laun okkar fyrir dag
vinnu eru langt undir viðmiðunarmörkum
velferðarráðuneytisins um framfærslu.
Krafan sem ég heyri alls staðar í kringum
mig er að grunnlaunin verði hækkuð,
starfsaðstæður bættar og vaktaálag
minnkað. Þetta helst sannarlega í hendur,
því með hækkun grunnlaunanna tel ég
að fleiri læknar fáist til starfa og þar með
minnki vaktaálag og starfsandinn batnar.“
Hún segir að lokum að í haust sé
tækifæri stjórnvalda til að snúa þessari
óheillaþróun við. „Ég vil ekki svara þeirri
spurningu hvað við gerum ef ekki nást
samningar. Ég vil einfaldlega ekki hugsa
þá hugsun til enda. Hver læknir verður
þá að taka afstöðu til sinnar framtíðar og
ég tel líklegt að flestir muni greiða þeirri
niðurstöðu atkvæði með fótunum. Það
yrði líklega það versta sem hægt væri að
gera íslensku heilbrigðiskerfi.“
„Krafan sem ég heyri alls staðar í kringum mig
er að grunnlaunin verði hækkuð, starfsaðstæð-
ur bættar og vaktaálag minnkað,“ segir Íris
Ösp Vésteinsdóttir formaður FAL.
Við viljum öll
starfa á Íslandi
segir Íris Ösp
Vésteinsdóttir
formaður FAL
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Hér er 1 möguleiki á
að gleyma verknum
Hér eru 56 áminningar
um verkinn
1. www.serlyfjaskra.is
Margir sjúklingar með langvinna verki taka allt að 56 töflur á viku af stuttverkandi ópíóíðum og
eru því reglulega minntir á að þeir eru með verki. Norspan® forðaplástur veitir jafna og stöðuga
verkjastillingu í heila viku sem auðveldar sjúklingum að lifa með verkjunum og jafnvel gleyma
að þeir eru til staðar.
Ábending: Meðferð við frekar miklum verkjum sem ekki eru vegna illkynja sjúkdóma þegar þörf
er á ópíóíða til að ná fram fullnægjandi verkjastillingu. Norspan® hentar ekki til meðferðar á
bráðaverkjum1
LD1141012