Læknablaðið - 01.11.2014, Síða 55
LÆKNAblaðið 2014/100 623
Hann sýnir mér mynd sem tekin var
fyrr í haust í lok vel heppnaðrar veiði
ferðar upp á Víðidalsheiði. „Við fórum
þrír saman, Stefán Gissurarson og Vigfús
Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur með
tvo hunda, en annan hundinn á ég, Orku,
unga tík sem var að fara í sinn fyrsta
veiðitúr og stóð sig ljómandi vel.“
Og þá komum við að einni helstu
undirgrein skotveiðanna sem er þjálfun
og félagskapur við góðan veiðihund. Það
er reyndar algengur misskilningur að fólk
heldur að veiðihundar séu þjálfaðir til að
elta uppi og drepa bráðina. Það er fjarri
sanni. Hið rétta er að veiðihundar sækja
fallna bráð og leita uppi særða fugla og
eru hundarnir hreinlega ómissandi við
slíkt og margir á þeirri skoðun að siðlaust
sé með öllu að stunda skotveiðar á fuglum
án sækjandi veiðihunda.
„Ég er alveg sammála því,” segir Felix
enda eru aðstæður við heiðagæsaveiðar
að kvöldlagi á haustin yfirleitt þannig að
engin leið er fyrir veiðimanninn að finna
sjálfur fugla sem fallið hafa á rökkvaða
jörðina. „Hundarnir þefa þá uppi og sér
„Ég er rétt að byrja að átta mig á því hvað svona hundur getur lært mikið,” segir Felix um Kolkuós Orku, efnilega
labradortík og framtíðarveiðifélaga.
Felix með myndar-
legan tarf sem hann felldi í
sumar uppaf Fossárdal við
Berufjörð.
staklega koma þeir að góðu gagni við að
finna særða fugla sem skriðið hafa í felur.
Oftar en ekki lenda fuglarnir í vötnum
eða tjörnum þangað sem aðeins hundur
getur þá.“
Góður hundur er ómissandi
Felix kveðst lengst af hafa notið þess að
veiðifélagar hans hafi átt góða hunda en
nú er hann búinn að koma sér upp eigin
hundi, tíkinni Orku af Kolkuósræktun en
hundar af þeirri ræktun hafa vakið verð
skuldaða athygli fyrir frábæra hæfileika
og mikinn vinnuvilja. Kolkuóshundarnir
eru labradorhundar af svokallaðri vinnu
hundalínu (field trial)en ræktun labrador
hunda hefur með tímanum þróast í tvær
nokkuð vel aðskildar greinar, vinnu
hunda og sýningarhunda.
„Ég hefði ekki trúað því að óreyndu
hversu öflugir og vinnusamir þessir
hundar eru og er rétt að byrja að átta
mig á því hvað svona hundur getur lært
mikið. Ég var búinn að eiga tvo hunda
áður, golden retriever og labrador sem
hvorugur var veiðihundur og þeir lifðu
reyndar ekki lengi, annar varð fyrir bíl
og hinn var hjartveikur. Svo fyrir einu
og hálfu ári fékk ég Orku frá Sigurmoni
Hreinssyni á Akranesi sem ræktar undir
nafninu Kolkuós. Orka er einfaldlega
ótrúleg og ég hlakka til þess að mæta
vikulega á veiðiþjálfunarnámskeið til
Sigurmons. Það er svo gaman að þjálfa
svona hund og maður getur nánast talið
sér trú um að vera mikill hundaþjálfari
því áhuginn og vinnuviljinn er svo mikill
að hún gerir þetta nánast allt upp á eigin
spýtur.”
Felix er ekki einn um að uppgötva
ánægjuna sem fylgir því að þjálfa áhuga
saman veiðihund og hann tekur heilshug
ar undir að þarna sé áhugamál sem hann
hafði ekki hugmynd um að væri svona
skemmtilegt. Á vegum retrieverdeildar
Hundaræktarfélags Íslands eru haldin
á annan tug veiðiprófa frá því snemma
vors og fram í haustbyrjun. „Þetta bætir
manni upp hversu fáir dagar það eru sem
maður kemst til veiða og ég hugsa mér
gott til glóðarinnar að taka þátt í veiði
prófum næsta sumar með Orku.”
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R