Frjáls verslun - 01.08.2006, Blaðsíða 166
KYNNING166 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
Jarðboranir eru þekkingar- og hátæknifyrirtæki sem annast fram-kvæmdir á alþjóðlegum vettvangi. Fyrirtækið starfar undir ein-kunnarorðunum „Við opnum þér auðlindir” enda er hlutverkið
að skapa viðskiptavinum og eigendum verðmæti. Starfsemin felst
einkum í nýtingu auðlinda í jörð og orkutengdum rekstri, vinnslu
jarðefna, landgerð og gerð mannvirkja. Samstæða Jarðborana hf. sam-
anstendur auk móðurfélagsins af Jarðborunum innanlands, Iceland
Drilling (UK) og Björgun. Eitt helsta viðfangsefni samstæðunnar er
að skapa í sífellu ný tækifæri og vinna úr þeim á samvirkan og hag-
kvæman hátt.
Vel heppnuð einkavæðing Jarðboranir hf. voru stofnaðar 1986 í
þeim tilgangi að halda í einu öflugu fyrirtæki þeirri þekkingu og
verkkunnáttu sem áunnist hafði í íslenskum boriðnaði. Rætur fyr-
irtækisins liggja aftur til ársins 1945 þegar forverinn, Jarðboranir rík-
isins, varð til. Þegar í öndverðu var talið mikilvægt að tryggja hágæða
borþjónustu hérlendis, einkum þegar haft er í huga mikilvægi jarð-
hitaorku fyrir hagkerfi Íslands.
Árið 1992 var efnt til almenns útboðs á hlutabréfum Jarðbor-
ana. Þessi atburður markaði tímamót því að þetta var í fyrsta sinn
sem hlutabréf félags í eigu ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar voru seld
almenningi á markaði. Félagið var skráð í Kauphöllinni árið 1993 og
urðu hluthafar flestir um 1.500 talsins 1997. Árið 2002 varð Atorka
kjölfestuhluthafi í félaginu og er það nú alfarið í eigu Atorku Group.
Alþjóðleg forysta í nýtingu háhita Jarðboranir eru forystufyrirtæki
á alþjóðamarkaði um öflun jarðvarma og búa yfir verðmætri sérþekk-
ingu á háhitaborunum við afar erfiðar og flóknar aðstæður. Borverk-
taka félagsins lýtur að öðru leyti að öflun drykkjarvatns og borun eftir
jarðsjó, auk þess sem fyrirtækið tekur að sér rannsóknarboranir vegna
verðmætra málma, gass og olíu, ásamt grunnborunum og rannsókn-
arborunum vegna mannvirkjagerðar. Ráðgjöf, hönnun og alverktaka
borframkvæmda eru vaxandi þáttur í þjónustunni en jafnframt tekur fyr-
irtækið þátt í samstarfsverkefnum um tækniþróun og nýtingu auðlinda.
Jarðboranir hafa áunnið sér sterka stöðu á íslenskum markaði eftir
áralangt árangursríkt starf fyrir stærstu orkufyrirtæki landsins. Helstu
viðskiptavinir hérlendis eru Orkuveita Reykjavíkur, Hitaveita Suð-
urnesja og Landsvirkjun en jafnframt þjónar fyrirtækið sveitarfélögum
og annast fjölbreytileg verkefni fyrir ýmsa smærri aðila.
Kraftmikil dótturfélög Dótturfélagið Iceland Drilling (UK) er skráð
í Wales. Aðalstarfsvettvangurinn er Portúgal, Írland, Ungverjaland og
önnur lönd Evrópubandalagsins. Stærstu verkefni ID (UK) hafa verið
á Azoreyjum þar sem íslensk sérþekking á sviði jarðhita nýtist vel,
JARÐBORANIR:
ÞEKKINGARFYRIRTÆKI
SEM SÉRHÆFIR SIG Í
NÝTINGU AUÐLINDA Í JÖRÐ
Jarðboranir líta
svo á að skipulögð
vandvirkni, samfara
frumkvæði samhentra
starfsmanna, sem
tryggir viðskiptavinum
góða og vel skilgreinda
þjónustu, sé vænleg
leið til árangurs.
Óðinn - nýr stórbor
Jarðborana.
LJ
Ó
S
M
Y
N
D
IR
:
G
U
N
N
A
R
S
V
A
N
B
E
R
G
.