Frjáls verslun - 01.08.2006, Blaðsíða 228
228 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
FÓLK
SMÁÍS (Samtök mynd-rétthafa á Íslandi) voru stofnuð 1992 til að vera
hagsmunagæsluaðili rétthafa
myndefnis á Íslandi og hafa ýmis
hagsmunamál rétthafa á sínum
snærum. Félagsmenn samtak-
anna hafa rétt til dreifingar á
yfirgnæfandi hluta kvikmynda-
og sjónvarpsefnis og tölvuleikja
sem eru á íslenskum markaði.
Tinna Jóhannsdóttir er nýráðin
framkvæmdastjóri SMÁÍS.
„Auk þess að sjá um dag-
legan rekstur samtakanna heldur
framkvæmdastjóri utan um fjöl-
breytta starfsemi þeirra, svarar
fyrirspurnum og gætir hagsmuna
félagsmanna SMÁÍS í hvívetna.
Í því felst m.a. að fylgjast með
þróun og umræðu um höfundar-
rétt hér á landi og erlendis og
miðla upplýsingum um þau efni
til félagsmanna, fjölmiðla og neyt-
enda. Samtökin reka einnig gagna-
grunn upplýsinga um aðsókn
að kvikmyndahúsum og hafa að
auki nýverið tekið við hlutverki
Kvikmyndaskoðunar. Erum við
um þessar mundir að ganga frá
samningi við hollenskt fyrirtæki
um aðgang að skoðunarkerfi sem
við erum mjög ánægð með. Það
er skemmtilegt að segja frá því að
forveri minn, Hallgrímur Kristins-
son, samdi um það að SMÁÍS
mætti byggja á merkingum í evr-
ópska tölvuleikjaflokkunarkerfinu
PEGI, svo að Ísland er fyrsta
landið í heiminum þar sem ald-
urs- og efnismerkingar á sjón-
varpsefni og kvikmyndum annars
vegar og tölvuleikjum hins vegar
eru samræmdar.“
Tinna vann áður á Skjá einum:
„Ég hóf störf þegar stöðin var
stofnuð 1999 og vann þar fram
til ársins 2005. Verkefni mín á
Skjánum voru af ýmsum toga;
ég sá m.a. um þýðingadeildina,
skipulagði klippið og samræmdi
aðgerðir milli ólíkra deilda, svo
að eitthvað sé nefnt. Svo milli-
lenti ég aðeins hjá 365 á Sirkus
í nokkra mánuði og byrjaði hjá
SMÁÍS í ágúst síðastliðnum.“
Tinna er með BA-próf í heim-
speki frá HÍ og segir hún heim-
spekinámið hafa nýst sér vel í
því sem hún hefur tekið sér fyrir
hendur. „Ég útskrifaðist 1997,
eignaðist son minn, Jóhann Pál,
1998, og vann ýmis störf þar
til ég byrjaði á Skjánum. Stað-
reyndin er sú að heimspekinám
er frábær grunnur og líklega með
hagnýtasta námi sem í boði er.
Maður getur keypt allar tegundir
af þjónustu, en gagnrýna hugsun
og sæmilega færni í aðferðafræði
kaupir maður víst ekki.“
Tinna er í sambúð með
Einari Guðjónssyni sem rekur
innflutningsverslunina Kaffiboð
sem flytur inn ítalskar kaffi-
vélar, kaffi, húsgögn og fleira.
„Við höfum mjög gaman af að
ferðast og notum hvert tæki-
færi til þess. Við endum oftar
en ekki í heimsókn hjá vinum
á Ítalíu, ég fór sem skiptinemi
þangað einn vetur og tala málið
þokkalega. Í sumar fórum við
fjölskyldan, ásamt móðurbróður
mínum og fjölskyldu hans,
mömmu og litla bróður mínum,
til Ítalíu og leigðum okkur hús
rétt fyrir utan Flórens og það
var alveg frábært. Svo erum við
hjónaleysin á leiðinni til Mílanó
næstu daga, við erum að fara á
kaffinámskeið hjá einu af fyrir-
tækjunum sem Kaffiboð skiptir
við. Svo ákvað sonur okkar að
við færum á Ólympíuleikana
í Kína 2008. Annars fer tími
minn þessa dagana í að koma
mér inn í starfið hjá SMÁÍS
og vinna að undirbúningi fyrir
kvikmyndaskoðunina, sem er
ærið verkefni.“
framkvæmdastjóri SMÁÍS
TINNA JÓHANNSDÓTTIR
Nafn: Tinna Jóhannsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
13. 11. 1972.
Foreldrar: Sigrún Björnsdóttir
kennari og Jóhann Pálsson
framkvæmdastjóri (látinn).
Maki: Einar Guðjónsson.
Börn: Jóhann Páll, 8 ára.
Menntun: BA í heimspeki frá
Háskóla Íslands.
„Staðreyndin er sú að heimspekinám er frábær grunnur, og líklega með hagnýtasta námi sem í boði er.“
Það er auðvelt að spila á hvaða hljóðfæri sem er:
þú þarft bara að hitta á réttu nótuna á réttum tíma
og hljóðfærið sér um rest.
– J.S. Bach
Það er eins með verðbréfamarkaðinn. Það er auðvelt að byrja
að spara: þú þarft bara að hitta á rétta verðbréfasafnið á
réttum tíma (til dæmis núna?) og SPRON Verðbréf sjá um rest.
En það er misjafnt hvað hentar hverjum og einum og við
bjóðum allan skalann – þrjú fjárfestingarsöfn með mismunandi
markmið um ávöxtun og áhættu.
23,90% ávöxtun.
Fjárfest að miklum meirihluta í innlendum og
erlendum hlutabréfasjóðum eða 75%, á móti 25% í
innlendum og erlendum skuldabréfasjóðum.
Markmiðið er að ná góðri áhættudreifingu með
erlendum og íslenskum verðbréfum. Í þessu safni
eru meiri sveiflur og áhætta og hærri væntingar
um ávöxtun til lengri tíma.
Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is
Netbankinn býður viðskiptavinum sínum
verðbréfaþjónustu og ráðgjöf í samstarfi
við SPRON Verðbréf. Þú sækir um rafrænt
á www.nb.is.
Re
ks
tr
ar
fé
la
g
SP
RO
N
s
ér
u
m
re
ks
tu
r þ
ei
rr
a
fim
m
s
jó
ða
s
em
e
ru
v
er
ðb
ré
fa
sj
óð
ir
sk
v.
lö
gu
m
n
r.
30
/2
00
3.
N
án
ar
i u
pp
lý
si
ng
ar
m
á
ná
lg
as
t í
ú
tb
oð
sl
ýs
in
gu
h
já
S
PR
O
N
V
er
ðb
ré
fu
m
.
Sjóðastýring: Miðað er við 5 milljóna kr. lágmark í sjóðastýringu SPRON Verðbréfa. Stýringin felst í því að viðskiptavinur gefur sérfræðingum SPRON Verðbréfa heimild til þess að fjárfesta
í verðbréfasjóðum eftir fyrirfram ákveðinni samsetningu sem kemur fram í vali á sjóðasafni. Kaup í ofangreindum söfnum sem sérfræðingar SPRON Verðbréfa hafa sett saman miðast við að
keypt sé fyrir lágmark 20.000 kr.
Allar ávöxtunartölur eru miðaðar við 01.01. 2006 til 01.10. 2006 á ársgrundvelli. Ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um ávöxtun í framtíð. Gengi verðbréfa getur hækkað jafnt sem lækkað.
Sparnaður eftir
þínum nótum
ÖRUGGA SAFNIÐ HEFÐBUNDNA SAFNIÐ ÁVÖXTUNARSAFNIÐ
Hlutabréfa-
sjóðir 25%
Skuldabréfa-
sjóðir 75%
Hlutabréfa-
sjóðir 50%
Skuldabréfa-
sjóðir 50%
Hlutabréfa-
sjóðir 75%
Skuldabréfa-
sjóðir 25%
16,28% ávöxtun.
Áhersla á stöðuga ávöxtun og lágmarkssveiflur.
Hentar vel fyrir þá sem vilja taka litla áhættu.
Að mestu fjárfest í innlendum og erlendum
skuldabréfasjóðum eða 75% á móti 25%
í hlutabréfasjóðum.
19,14% ávöxtun.
Áhersla á góða ávöxtun og áhættudreifingu.
Fjárfest er 50% í innlendum og erlendum
skuldabréfasjóðum ásamt 50% í innlendum og
erlendum hlutabréfasjóðum. Áhættan í þessari
leið er í meðallagi. Ákjósanleg leið fyrir þá sem
vilja vera varkárir en vænta jafnframt góðrar
ávöxtunar.
Hægt er að fjárfesta í ákveðinni leið eða vera í reglulegri áskrift.
�
��
��
��
�
�
��
��
��
��
��
��
��
�
�
�
�
�
�