Frjáls verslun - 01.08.2006, Blaðsíða 150
150 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
STÆRSTU300 T T
Þetta eru merk tímamót í útrásarsögu Samskipa,“ segir Ásbjörn Gíslason, annar forstjóra Samskipa. Þann 30.
september sl. var öll flutningastarfsemi félags-
ins sameinuð undir einu nafni og sam-
tímis var nýtt merki félagsins kynnt til sög-
unnar. Þar með sér jafnframt fyrir endann
á þrotlausri vinnu sem staðið hefur yfir frá
því að Samskip keyptu
flutningafélögin Seaw-
heel og Geest North Sea
Line á síðasta ári, sem
hvort um sig voru af svip-
aðri stærð og Samskip og
leiðandi í gámasiglingum
milli Bretlandseyja og
meginlands Evrópu.
Sterkari ímynd á alþjóðavettvangi
„Það hefur verið mikið verk að sameina
þessi þrjú félög í eitt og samhliða þeirri
vinnu höfum við einnig markvisst verið að
styrkja innviði félagsins. Þegar á heildina er
litið er útkoman í samræmi við þær áætlanir
sem lagt var af stað með í upphafi, þ.e. að
skapa stærsta og öflugasta gámaflutningafélag
á Evrópumarkaði,“ segir Ásbjörn sem leitt
hefur þessa umfangsmiklu vinnu ásamt koll-
ega sínum, Michael F. Hassing, sem kom til
liðs við Samskip sem forstjóri fyrir rúmu ári.
Sameining allrar starfseminnar undir
vörumerkinu Samskip var endanlega ákveðin
fyrr á þessu ári, að lokinni ítarlegri úttekt. Er
endurmörkuninni ætlað að styrkja enn frekar
ímynd Samskipa á alþjóðavettvangi jafnframt
því sem áhersla er lögð á að rækta áfram hjá
hinu sameinaða félagi þann frumkvöðlaanda
sem einkennt hefur starfsemi Samskipa frá
upphafi.
Veltan tífaldast á áratug
Starfsemi Samskipa hefur vaxið gríðarlega
á þeim tæpa áratug
sem er liðinn frá því
að útrás félagsins byrj-
aði. Árið 1996 námu
rekstrartekjurnar um sex
milljörðum króna en nú
stefnir í að velta félagsins
verði rúmir 60 milljarðar
króna. „Heilt á litið hafa
áætlanir félagsins fyrir árið 2006 gengið eftir.
Það hafa verið heldur meiri flutningar og
vöxtur hér heima en við gerðum ráð fyrir og
heldur minni flutningar í Evrópu, en þegar á
heildina er litið erum við að ná settum mark-
miðum,“ segir Ásbjörn.
Þriðja meginstoðin í rekstri Samskipa,
ásamt Íslandsstarfseminni og gámaþjónustu í
Evrópu, er frystiflutningastarfsemin þar sem
umsvifin eru jafnt og þétt að aukast. Tóku
tvær skrifstofur nýlega til starfa í Brasilíu og
fimmta skrifstofan í Asíu var opnuð nýlega.
„Mikil áhersla hefur einnig verið lögð á
innri uppbyggingu félagsins. Við vinnum
eftir fastmótaðri framtíðarsýn og ætlum
okkur að stækka, bæði með innri vexti og
með uppkaupum á öðrum félögum.“
Uppgangur bæði heima og erlendis
Það hefur verið skammt stórra högga á
milli hjá Samskipum undanfarin misseri.
Nýjar höfuðstöðvar félagsins hér á landi
voru teknar í notkun í ársbyrjun 2005. Tvö
ný skip, sem voru sérsmíðuð fyrir Samskip,
leystu af hólmi eldri skip félagsins á sigl-
ingaleiðinni milli Íslands og Evrópu, auk
þess sem tveimur skipum var bætt við á
þessari siglingaleið til að anna eftirspurn.
Um mitt þetta ár veitti félagið síðan við-
töku tveimur nýjum sérsmíðuðum skipum
fyrir gámaflutninga milli Bretlandseyja og
meginlandsins og tvö ný skip sömu teg-
undar voru afhent félaginu í síðasta mán-
uði. Þá eru framkvæmdir langt komnar
við nýjar höfuðstöðvar félagsins erlendis
á gamla hafnarsvæðinu í Rotterdam og
er stefnt að því að flytja þangað í byrjun
næsta árs.
Spurður um framtíðarhorfur og stöðu
efnahagsmála á Íslandi segir forstjóri Sam-
skipa ljóst að draga muni úr almennum
innflutningi tímabundið, eins og þegar séu
farin að sjást merki um, sem og flutningum
tengdum stórframkvæmdum.
„Við stefnum auðvitað að enn frek-
ari uppbyggingu félagsins,“ segir Ásbjörn.
„Eins og staðan er núna erum við með
starfsemi í fjórum heimsálfum, nánar til
tekið í 23 löndum, og starfsmenn eru um
1.400 talsins, þar af starfar um helmingur
hér á landi þó að veltan hér heima sé aðeins
um fjórðungur af heildarveltunni.“
SAMSKIP UNDIR
EINU NAFNI
Öll starfsemi Samskipa hefur verið sameinuð undir einu nafni. Gert til að styrkja
enn frekar ímynd félagsins á alþjóðavettvangi. Velta hefur tífaldast á 10 árum.
„Það hefur verið
mikið verk að
sameina þessi þrjú
félög í eitt.“
SAMSKIP • ÁSBJÖRN GÍSLASON
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON • MYND: GEIR ÓLAFSSON
NR. 13 Á AÐALLISTA