Frjáls verslun - 01.08.2006, Blaðsíða 154
154 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
STÆRSTU300 T T
A vion Group er algjörlega sér á báti og stærsta félagið í heimi á sínu sviði en ekkert annað félag í veröldinni sam-
einar flugvélaleigu, leiguflug, ferðaþjónustu,
sjóflutninga og allt sem því viðkemur,“ segir
stjórnarformaður félagsins,
Magnús Þorsteinsson. Mik-
ill vöxtur hefur einkennt
rekstur Avion Group síð-
ustu misseri. Félagið var
stofnað í upphafi ársins
2005 og innihélt þá félögin
Air Atlanta Icelandic og
Excel Airways Group og
Avia Technical Services og á
miðju árinu 2005 var Eim-
skip keypt. Í dag er Avion
Group alhliða flutningafélag
með um 6.500 starfsmenn og starfsemi á yfir
110 stöðum í veröldinni.
Framlegðin er mismunandi
Avion Group samanstendur af þremur
rekstrareiningum. Shipping & Logistics er
hin fyrstnefnda; þar innanborðs eru Eimskip
og dótturfélög þess: Innovate í Bretlandi,
Faroe Ship í Færeyjum, Eimskip CTG í
Noregi, Containerships Group í Finnlandi
og Kursia Linija í Litháen. Að auki rekur
félagið skrifstofur víða um heim. Önnur
afkomueiningin er Aviation Services sem
samanstendur af Air Atlanta Icelandic, Avion
Aircraft Trading og Avia Technical Services.
Þriðja og síðasta einingin er svo XL Leisure
Group sem samanstendur af Excel Airways
Group í Bretlandi, Star Europe í Þýskalandi
og Star Airlines í Frakklandi. Að auki hefur
félagið nýlega fjárfest í frönskum ferðaskrif-
stofum og er nú fimmti stærsti ferðaþjón-
ustuaðili Frakklands.
„Það liggur í eðli starf-
semi þessara félaga að fram-
legðin er mjög mismunandi
og það sama má segja um
endanlegan hagnað,“ segir
Magnús
Höfum vaxið hratt
Magnús Þorsteinsson segir
markmið Avion Group
að vera öflugasta fjárfest-
ingarfélag í heimi á sviði
flutningastarfsemi. „Félagið
hefur vaxið mjög hratt með yfirtökum á
mörgum félögum og innri vexti. Við lögðum
upp með ákveðna framtíðarsýn sem er að
verða að veruleika. Ég orða það oft á þann
veg að flest púslin í stóru myndina eru
komin. Kostnaðurinn sem fylgir þessum
yfirtökum hefur einnig verið í lágmarki því
lítið hefur verið um eiginlegar sameiningar.
Því hefur okkur tekist að samnýta og ná
fram stærðarhagkvæmni án þess þó að þurfa
að leggja út í mikinn sameiningarkostnað,“
segir Magnús.
Af einstökum fjárfestingum Avion Group
á árinu má meðal annars nefna kaup á Star
Airlines, öðru stærsta leiguflugfélagi Frakk-
lands, sem gengið var frá í ferbrúar sl. Í
sumar keypti Eimskip 55% hlut í breska
fyrirtækinu Innovate Ltd sem sérhæfir sig í
geymslu og dreifingu á kældum og frystum
afurðum og hafa umsvif þess aukist talsvert
undanfarið. Svona mætti áfram telja.
„Á undanförnum árum höfum við verið
að byggja upp afkomueiningar félagsins
mjög markvisst og helstu möguleikar félags-
ins um vöxt liggja í áframhaldandi vexti
í sömu átt. Eimskip hefur markað skýra
stefnu um að verða leiðandi á Norður-
Atlantshafi í hitastýrðum flutningum og
hefur félagið breyst mjög mikið á síðustu
árum. Við sjáum einnig mikil tækifæri í því
að útvíkka viðskiptamódel Excel Airways
Group til meginlands Evrópu og störfum
nú á ferðamannamarkaði sem telur yfir 200
milljónir íbúa.“
Gífurlega öflug fyrirtæki
Avion Group kynnti markmið sín fyrir þetta
ár opinberlega í lok síðasta árs fyrir skráningu
félagsins í Kauphöll Ísland. Magnús segir
ljóst að þær spár gangi ekki eftir. „Tvö af
þremur afkomusviðum eru í takt við áætlanir,
en miklir hitar í Evrópu og hryðjuverkaógn
settu strik í reikninginn í ferðaþjónustu og
leiguflugshlutanum í Bretlandi og flugfélög í
allri Evrópu hafa þurft að súpa seyðið af því.
Ég hefði hins vegar viljað sjá hagnaðarmark-
mið ganga eftir – en við ráðum ekki við
veðurfar og hryðjuverkamenn. Ég hef fulla
trú á því að hagnaðarmarkmið fyrirtækisins
í framtíðinni eigi eftir að standast því sam-
stæðan samanstendur af mjög ólíkum en gíf-
urlega öflugum fyrirtækjum í örum vexti.“
AVION GROUP • MAGNÚS ÞORSTEINSSON
„Samstæðan
samanstendur
af mjög ólíkum
en gífurlega
öflugum
fyrirtækjum í
örum vexti.“
PÚSLIN Í MYNDINA
ERU KOMIN
Avion Group er alhliða flutningafélag og einstakt á heimsvísu.
Áætlanir að ganga eftir en stjórnendurnir ráða ekki við veður og hryðjuverk.
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON • MYND: GEIR ÓLAFSSON
NR. 3 Á AÐALLISTA