Frjáls verslun - 01.08.2006, Blaðsíða 157
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6 157
AÐALLISTINN
Rétt eins og póstmagnið sem berst til landsmanna á hverjum degi eykst jafnt og þétt, hefur rekstur Íslandspósts á
þessu ári gengið vel og raunar betur en þær
áætlanir sem stjórnendur félagsins lögðu upp
með. Hagnaður á fyrri hluta ársins var 196
millj. kr. „Útgjöldin eru ívið meiri en reiknað
var með og þá einkum launaliðurinn. Kjara-
samningarnir í júní höfðu talsverð áhrif á okkar
rekstur, því hjá okkur er hlutfallslega nokkuð
stór hópur starfsmanna á lágum launatöxtum,
en þeir hækkuðu einmitt mest í þessum samn-
ingum eins og að hefur verið stefnt,“ segir for-
stjórinn, Ingimundur Sigurpálsson.
Póstþjónustan að breytast
Hver maður þekkir á eigin skinni að það
póstmagn sem berst á heimili og til fyrir-
tækja eykst með hverju ári. Þar er einkum
átt við svonefndan fjöl- og markpóst og
stærri bögglasendingar, sem aukast ár frá
ári. Íslandspóstur hefur einkarétt á dreif-
ingu allra skráðra bréfa sem eru undir 50
gr. að þyngd og kemur um helmingur af
veltu fyrirtækisins frá þeirri starfsemi. Þá
tekur Íslandspóstur á sig svonefnda alþjón-
ustuskyldu, en hún felst í því að sjá um
póstdreifingu frá ystu annesjum til innstu
dala jafnt sem í borg og bæjum. Einkaréttur
Íslandspósts gildir út árið 2008.
„Ljóst er að eftir þann tíma verða breyt-
ingar á póstþjónustunni, en á þessari stundu
liggur ekki fyrir hverjar þær verða,“ segir
Ingimundur. Skv. tilskipun Evrópusam-
bandsins er stefnt að því að einkaréttur falli
niður í árslok 2008 og verða þá væntanlega
ýmsir tilbúnir til þess að sinna póstþjónust-
unni þar sem hún gefur eitthvað af sér, en
óvíst er hvernig þjónustunni verður sinnt á
þeim landssvæðum þar sem flutningsgjöld
standa ekki undir kostnaði. Ingimundur telur
fyllilega tímabært að hefja umræður um þetta
og marka stefnu um hvernig þjónustunni
verði best fyrir komið.
Dreifileið dagblaða í skoðun
Kemur til greina að Íslandspóstur taki að sér
blaðaútburð, samanber að fyrirtækið annaðist
dreifingu Blaðsins til skamms tíma?
„Við erum að sjálfsögðu tilbúin til þess að
sinna allri þjónustu sem spurn er eftir, á þeim
markaði sem Íslandspóstur er sérhæfður á.
Slíkt á vissulega meðal annars við um blaða-
útburð. Okkur hafa borist óskir frá útgáfu-
fyrirtækjum um að skoða möguleikana á að
setja upp dreifileið fyrir dagblöðin, sem þurfa
að vera komin til lesenda árla morguns. Sú
dreifing er annars eðlis en dreifing á árituðum
sendingum svo sem bréfum og markpósti og
við metum þetta sem tvær dreifileiðir sem
ekki fari saman. Skipulagið og umgjörðin
eru hins vegar í meginatriðum af sama toga
og því er ekkert því til fyrirstöðu að Íslands-
póstur sinni því verkefni.“
Fyrr á þessu ári kynnti Íslandspóstur áætl-
anir um byggingu póstmiðstöðva víða um
land sem er í samræmi við endurskoðun á
öllu þjónustuframboði fyrirtækisins. Byggð
verða tíu ný pósthús víða um land og sex
önnur endurbyggð. Á höfuðborgarsvæðinu
verður póstþjónustan stokkuð upp, horfið
verður frá því fyrirkomulagi að starfsfólk mat-
vöruverslana sinni póstafgreiðslu enda hefur
það fyrirkomulag ekki þótt gefast nægilega
vel. Því mun fyrirtækið setja upp sjálfstæðar
póstafgreiðslur víða um borgina, jafnframt
því sem Íslandspóstur stefnir að því að auka
þjónustu á ýmsum fleiri sviðum.
Friðurinn tryggður
Ingimundur Sigurpálsson er formaður Sam-
taka atvinnulífsins, en sl. vor framlengdu
samtökin gildandi kjarasamninga við ASÍ út
næsta ár. Meginmarkmið með samningunum
var að slá á þenslu í þjóðfélaginu og stuðla
að því að verðbólga verði sem næst 2,5%
verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands á síð-
ari hluta árs 2007.
„Óhætt er að fullyrða að öllum sé til
hagsbóta að samningar haldi út upphaflegan
samningstíma, sem er til ársloka 2007. Ef
komið hefði til uppsagnar kjarasamninga um
næstu áramót, sem allt benti til, hefðu kjara-
samningar orðið lausir í aðdraganda kosn-
inga, og að fenginni reynslu hefði mátt búast
við því að meiri háttar kaupmáttarrýrnun
hefði fylgt í kjölfarið. Friður á vinnumarkaði
hefur verið tryggður út næsta ár og sömuleiðis
erum við mjög nálægt þeim viðmiðum sem
áætluð voru við gerð samninganna í júní sl.
Gangi þær fyrirætlanir stjórnvalda eftir, sem
byggt var á, munu samningarnir tvímælalaust
stuðla að stöðugleika í íslensku efnahagslífi,
en slíkur stöðugleiki er grundvallarforsenda
þess að efla megi íslenskt atvinnulíf. Á þann
hátt verður kaupmáttur best tryggður og við
þær aðstæður er helst hægt að bæta hag lands-
manna á varanlegan hátt.“
PÓSTÞJÓNUSTAN
STOKKUÐ UPP
Póstmagnið sem berst landsmönnum eykst stöðugt. Íslandspóstur er í góðum
rekstri en breytingar framundan. Friður á vinnumarkaði er mikilvægur,
segir forstjórinn sem einnig er formaður SA.
ÍSLANDSPÓSTUR • INGIMUNDUR SIGURPÁLSSON
NR. 63 Á AÐALLISTA
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON • MYND: GEIR ÓLAFSSON