Frjáls verslun - 01.08.2006, Blaðsíða 172
172 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
SKRIFSTOFUVÖRUR
Starfsfólkið
Við erum sérfræðingar á okkar sviði með áratuga reynslu í sölu á
skrifstofuvörum.
Þjónustan
Þjónustan okkar er framúrskarandi og margrómuð. Við erum með mikla
þekkingu á skrifstofu- og tölvurekstarvörum og tæknivætt vöruhúsakerfi
tryggir réttar afgreiðslur og skjóta afhendingu.
Áfyllingarþjónustan
Við komum í heimsókn og vinnum þarfagreiningu með þér. Við fyllum á
og sjáum um að aldrei vanti rekstrarvörur á skrifstofuna.
Þinn tengiliður
Fáðu tengilið sem þekkir þarfir fyrirtækis þíns og leysir öll mál fljótt
og örugglega.
Flott fyrirtækjaþjónusta
Höfðabakka 3 • 110 Reykavík • Sími 515 5100 • Fax 515 5101 • Opið virka daga kl. 8-17 • sala@oddi.is
O
D
D
I H
Ö
N
N
U
N
V
O
B
92
92
300STÆRSTU
Hvað hefur komið þér mest á óvart í
viðskiptalífinu á árinu?
Fjármögnunarvandi íslensku bank-
anna, eftir oft yfirborðskennda gagnrýni
erlendra samkeppnisaðila.
Hvað hefur einkennt rekstur fyrirtækis
þíns á þessu ári og mun það ná settum
markmiðum um afkomu?
Marel kynnti í upphafi metnaðarfull
markmið um þreföldun veltu á næstu 3-5
árum. Á hálfu ári hefur veltan tvöfaldast
og lítur út fyrir að markmiðið náist mun
fyrr en stefnt var að.
Telur þú að horfur í atvinnulífinu séu
góðar um þessar mundir – eða eru
blikur á lofti?
Horfur fyrir útflutningsfyrirtæki eru mun
betri en á sama tíma í fyrra. Áhyggjuefni
eru há verðbólga, mikil einkaneysla og
framkvæmdagleði hins opinbera, ríkis,
sveitarfélaga og fyrirtækja í þeirra eigu.
Hvernig telur þú að gengi krónunnar
þróist á árinu 2007? Á hún eftir að
veikjast?
Langvarandi viðskiptahalli, gríðarlegur
vaxtamunur við útlönd, 2-300 milljarðar
í skuldabréfum spákaupmanna sem fara
munu úr landi við vaxtalækkun tel ég
leiða til þess að krónan muni veikjast
umtalsvert til skamms tíma. Til lengri
tíma mun hún veikjast sem nemur
umframverðbólgu undanfarin ár á Íslandi
miðað við viðskiptalönd.
Hvaða líkur telur þú á því að verð-
trygging verði lögð af á næstu þremur
árum?
Því miður frekar litlar.
Telur þú að Seðlabankinn fari offari í
því að hækka stýrivexti í baráttu sinni
gegn verðbólgunni?
Seðlabankinn einn er látinn halda aftur
af þenslu. Vaxtahækkanir hans hafa í
raun aukið þenslu í stað þess að hamla
gegn henni. Seðlabankinn starfar innan
laga um Seðlabankann. Tímabært er að
endurskoða peningamálastefnuna í heild
sinni.
„Seðlabankinn
einn er látinn halda
aftur af þenslu.
Vaxtahækkanir hans
hafa í raun aukið
þenslu í stað þess að
hamla gegn henni.“
HÖRÐUR ARNARSON
forstjóri Marels
Hörður Arnarson, forstjóri Marels.
Hvað hefur komið þér mest á
óvart í viðskiptalífinu á árinu?
Sveiflur á verði hlutabréfa. Fyrst
miklar hækkanir í byrjun árs-
ins og síðan miklar lækkanir
í kjölfar neikvæðrar umræðu
um efnahagsástand á Íslandi og
stöðu bankakerfisins.
Hvað hefur einkennt rekstur
fyrirtækis þíns á þessu ári og
mun það ná settum mark-
miðum um afkomu?
Mikil gróska í starfseminni. Van-
skil og afskriftir útlána eru í lág-
marki og fjárfestingar hafa skilað
mikilli arðsemi. Það er ljóst að
afkomumarkmiðum verður náð.
Telur þú að horfur í atvinnu-
lífinu séu góðar um þessar
mundir – eða eru blikur á
lofti?
Líkur eru á að spennan í
atvinnulífinu muni minnka á
næstu misserum. Afkoma fyrir-
tækja og atvinnuástand eru nú
með besta móti og ætti þessi
þróun að leiða til meira jafn-
vægis.
Hvernig telur þú að gengi
krónunnar þróist á árinu
2007? Á hún eftir að veikjast?
Líklegt er að dragi úr styrk
krónunnar 2007. Viðskiptahall-
inn er mikill, en á móti kemur
áhugi erlendra fjárfesta sem
byggist á háu vaxtastigi á Íslandi.
Mikilvægt er að Seðlabankinn
slaki á vaxtastefnu sinni.
Hvaða líkur telur þú á því að
verðtrygging verði lögð af á
næstu þremur árum?
Ég tel engar forsendur fyrir
afnámi verðtryggingar og hef
enga trú á að hún verði aflögð.
Telur þú að Seðlabankinn fari
offari í því að hækka stýrivexti
í baráttu sinni gegn verðbólg-
unni?
Ég tel að hækkun stýrivaxta hafi
ekki lengur það gildi sem ætlað
er. Þegar stýrivextir eru orðnir
jafnháir og raun ber vitni, verða
neikvæð áhrif þeirra meiri en
þau jákvæðu sem þeim er ætlað
að hafa.
„Ég tel að
hækkun
stýrivaxta hafi
ekki lengur það
gildi sem
ætlað er.“
GUÐMUNDUR HAUKSSON
sparisjóðsstjóri SPRON
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON.