Frjáls verslun - 01.08.2006, Blaðsíða 102
102 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
STÆRSTU300 T T
MÁLMUR
FRAMTÍÐAR
S purn eftir áli er mikil og hefur í raun aukist jafnt og þétt milli ára, langt aftur í tímann. Nú er verið að byggja
ný álver víða í heiminum, til dæmis í Óman
og Kína, og því til viðbótar er verið að end-
urnýja eða stækka ýmsar eldri verksmiðjur.
Það efast fáir um að ál sé málmur framtíð-
arinnar. Fréttir af nýjum efnum sem sögð eru
leysa álið af hólmi eru ýktar,“ segir Rannveig
Rist, forstjóri Alcan í Straumsvík.
Minna en við óttuðumst
Góður gangur hefur verið í starfsemi Alcan
í ár – þrátt fyrir rafmagnsbilun snemma
sumars sem varð til þess að taka þurfti 160
ker í Skála 3 úr notkun um skeið. Viðgerðir
gengu hins vegar greiðar en vænta mátti og
er framleiðsla komin á fullt skrið aftur. „Við
ætluðum okkur að slá framleiðslumetið
okkar einu sinni enn eitt árið og framleiða
á árinu 180 þúsund tonn. Óhappið hjá
okkur í sumar varð auðvitað til þess að við
náum ekki því markmiði, en á hinn bóginn
er framleiðslutapið miklu minna en við ótt-
uðumst í upphafi. Nú gerum við ráð fyrir
því að framleiða rúmlega 166 þúsund tonn,
þannig að tapið verður aðeins um 9% af
árlegri framleiðslugetu.“
Framleiðslugeta Alcan nú er um 180 þús-
und tonn, sem fyrr segir, en fyrirhuguð stækkun
felur í sér 280 þúsund tonna aukningu á ári.
Stækkunarferlið er, að sögn Rannveigar, langt
á veg komið þó að enn eigi eftir að hnýta lausa
enda. Þannig eru skipulagsmálin, sem eru á
hendi Hafnarfjarðarbæjar, enn óútkljáð. Í við-
tali á dögunum sagði bæjarstjórinn, Lúðvík
Geirsson, að bæjarbúar hefðu síðasta orðið
þegar kæmi að því að taka endanlega afstöðu
til stækkunar álversins. Það verði þegar nið-
urstaða deiliskipulags liggi fyrir.
„Við höfum þegar samið við Orkuveitu
Reykjavíkur um 40% þeirrar raforku sem til
þarf og stefnum að því að ná samkomulagi
við Landsvirkjun fyrir árslok um það sem
upp á vantar. Einnig þarf að semja við Lands-
net um flutning og ganga frá málum er varða
Hafnarfjarðarbæ. Þegar þær forsendur liggja
allar fyrir mun móðurfélagið taka ákvörðun
um það hvort ráðist verður í framkvæmdir,“
segir Rannveig og bætir við að þarft sé
að auka framleiðslugetu Alcan á heimsvísu.
Þörfin fyrir ál fari sífellt vaxandi.
Stöðugt samfélag
„Helsti kosturinn við Íslands sem álfram-
leiðsluland er ekki orkuverðið, eins og oft
er fullyrt. Að mínu mati er það vinnuaflið,
því hér er mikið af vel menntuðu fólki sem
hefur áhuga á að starfa í greininni og hefur
byggt upp í landinu mikla þekkingu á fag-
inu. Vissulega skiptir raforkan miklu máli,
en það er ekki endilega verðið á henni heldur
að hún sé yfir höfuð fáanleg. Mörg af syst-
urfyrirtækjum okkar erlendis fá raforkuna
á mun lægra verði en við og það þurfum
Stækkun álvers Alcan í Straumsvík er á
teikniborðinu. Þörfin fyrir ál eykst stöðugt.
Ísland hentar vel til álframleiðslu.
ALCAN • RANNVEIG RIST
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON • MYND: GEIR ÓLAFSSON
NR. 18 Á AÐALLISTA