Frjáls verslun - 01.08.2006, Blaðsíða 104
104 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
STÆRSTU300 T T
Á meðan skráðum félögum hefur fækkað hefur hlutabréfamarkaðurinn stækkað umtalsvert á undanförnum
árum. Ég tel að skráning Exista í Kauphöll
Íslands sé afar jákvætt skref fyrir íslenskan
hlutabréfamarkað. Félagið er öflugt og starf-
semi þess hefur sérstöðu á markaðnum.
Breiddin í Kauphöllinni eykst og nýir val-
kostir fyrir fjárfesta opnast,“ segir Erlendur
Hjaltason forstjóri Exista.
Viðtökurnar vonum framar
Lífleg viðskipti og góðar viðtökur hafa verið
við skráningu Exista á markað nú á haust-
dögunum. Fyrirtækið er hið annað stærsta
miðað við eigið fé – og raunar stöndugt
á íslenska vísu, sama hvaða mælikvarði er
notaður. „Ákvörðun um útboð var tekin
í sumar þegar markaðurinn var í daufara
lagi. Við töldum hins vegar að í ljósi styrk-
leika félagsins og vaxtamöguleika væru góðir
möguleikar á því að fjárfestar kæmu inn
í félagið. Það kom fljótlega í ljós að þetta
var rétt mat og má segja að viðtökurnar
hafi verið framar vonum,“ segir Erlendur
og bendir þar á að í hlutafjárútboðinu hafi
um 7.500 nýir hluthafar gengið til liðs við
félagið. Eftir arðgreiðslu Kaupþings til hlut-
hafa sinna muni svo væntanlega á fjórða tug
þúsunda bætast við hluthafahópinn. Að fá
svo breiðan eigendahóp er ánægjulegt – og
vonandi njóti þessir hluthafar ávöxtunar í
samræmi við sínar væntingar.
Rekstur Exista byggist upp á nokkrum
stoðum – tryggingarekstri m.a. undir
merkjum VÍS, eignaleigustarfsemi á vegum
Lýsingar og þriðji þátturinn eru svo eigin
viðskipti félagsins. Þessi rekstur myndar svo
grunninn fyrir fjárfestingarstarfsemi félagsins
í skráðum og óskráðum fyrirtækjum.
Góð fyrirtæki verði enn betri
„Við fjárfestingar erum við ekki að binda
okkur við ákveðnar greinar heldur leitum
fyrst og fremst að vel reknum fyrirtækjum
með gott fjárstreymi og öfluga stjórnendur.
Það má því segja að við leitum uppi góð
fyrirtæki til þess að
gera þau enn betri og
fá þannig hlutdeild í
arðsemi þeirra. Okkar
hlutverk er svo að end-
urskipuleggja það fjár-
magn sem fyrirtækin
ráða yfir og nýta það
til fullnustu til hags-
bóta fyrir hluthafa,“
segir Erlendur og bætir
við að við val Exista til
fjárfestinga sé einkum
horft á fyrirtæki í góðum rekstri og með
nægilega öflugt fjárstreymi til að standa
undir breyttri fjármagnsskipan.
„Við erum því ekki að binda okkur við
ákveðnar greinar eða landsvæði, á meðan
við teljum að viðunandi jafnvægi sé á milli
væntrar arðsemi og áhættu. Það er hins
vegar ljóst að við lítum einkum til Bretlands
og meginlands Evrópu hvað varðar frekari
vöxt.“
Eykur breiddina
Nú töldu sumir snemma á þessu ári að veislu-
höldin væru á enda sakir þeirrar gagnrýni
erlendra fjármálafyrirtækja sem kom erlendis
frá. Hvernig metur þú stöðuna á íslenska
markaðnum?
„Fyrirtækin í Kauphöllinni hafa mörg
hver sýnt framúrskarandi afkomu það sem
af er ári, þrátt fyrir að hlutabréfaverð hafi
dalað um skeið. Á meðan undirliggjandi
rekstur fyrirtækjanna er góður þurfum við
ekki að hafa áhyggjur af skammtímasveiflum
á markaði,“ segir Erlendur.
Erlendur var fram-
kvæmdastjóri Eim-
skips áður en hann
réðist til Exista. Hinn
forstjóri félagsins, Sig-
urður Valtýsson, var
áður forstjóri MP-fjár-
festingabanka. Stærstu
hluthafar Exista, bræð-
urnir Ágúst og Lýður
Guðmundssynir, eiga
hins vegar rætur sínar
í matvælaframleiðslu
– og hafa svo á seinni árum orðið einhverjir
umsvifamestu kaupsýslumenn landsins.
„Það er rétt að við komum úr ólíkum
áttum og í því liggur sameiginlegur styrkur
okkar. Mismunandi bakgrunnur eykur
breiddina og við getum þannig byggt á
víðtækari reynslu. Þetta á reyndar við um
starfsmenn Exista almennt en hingað hefur
valist einvala lið mjög reyndra starfsmanna
úr ólíkum áttum. Við leggjum megináherslu
á að mynda öflugan hóp fagfólks, bæði hér
í Reykjavík og í London, sem getur leitt
Exista áfram til frekari vaxtar.“
EXISTA • ERLENDUR HJALTASON
Viðtökur markaðarins við skráningu Exista hafa verið sérdeilis góðar.
Leitað að fyrirtækjum með gott sjóðstreymi og öfluga stjórnendur.
„Á meðan
undirliggjandi
rekstur fyrirtækjanna
er góður þurfum við
ekki að hafa áhyggjur
af skammtíma-
sveiflum.“
VIÐTÖKUR
VONUM FRAMAR
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON • MYND: GEIR ÓLAFSSON