Frjáls verslun - 01.08.2006, Blaðsíða 176
176 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
STÆRSTU300
Hvað hefur komið þér mest á
óvart í viðskiptalífinu á árinu?
Framhald á útrás íslenskra fyrir-
tækja, snögg aðlögun bankanna
að gagnrýni og í raun ótrúlegur
sveigjanleiki íslensks viðskipta-
lífs. Ég held að sveiflurnar í
okkar samfélagi undanfarna
áratugi og jafnvel aldir hafi gert
það að verkum að við erum
frekar búin undir óvæntar upp-
ákomur og fljót að bregðast við.
Hvað hefur einkennt rekstur
fyrirtækis þíns á þessu ári og
mun það ná settum mark-
miðum um afkomu?
Helsta einkennið er gífurlegur
vöxtur. Veltuaukningin á þessu
ári verður 25% en þá er rétt
að hafa í huga að undanfarin
þrjú ár þar á undan jókst veltan
um tæp 400% samanlagt.
Starfsemin hefur verið víkkuð
út með tilkomu nýs vörumerkis,
Mazda, og afkoman verður í
samræmi við markmið.
Telur þú að horfur í atvinnu-
lífinu séu góðar um þessar
mundir – eða eru blikur á lofti?
Gríðarlegar framfarir hafa orðið
í atvinnulífinu. Meira frjálsræði,
sterkari undirstöður, meiri fag-
mennska og öflugri fyrirtæki.
Núna er smá ókyrrð í lofti sem
hófst í mars sl. en maður finnur
að viðskiptalífið er á fullu að
nýta tímann í að styrkja inn-
viðina. Hreinsa til. Það er bjart
framundan.
Hvernig telur þú að gengi
krónunnar þróist á árinu
2007? Á hún eftir að veikjast?
Gengisvísitalan í september sl.
var 122,85. Ég tel að hún muni
sveiflist frá 119 upp í 128 árið
2007. Með því móti yrði meira
jafnvægi bæði fyrir inn- og
útflutning og það væri óskabil
vísitölunnar.
Hvaða líkur telur þú á því að
verðtrygging verði lögð af á
næstu þremur árum?
Engar líkur.
Telur þú að Seðlabankinn fari
offari í því að hækka stýrivexti
í baráttu sinni gegn verðbólg-
unni?
Seðlabankinn byrjaði allt of
seint að herða á peningamála-
stefnunni. Þeir hefðu þurft að
hækka hraðar og meira a.m.k.
ári fyrr. Almenningur og fyrir-
tæki blæða nú í viðleitni til að
bæta fyrir mistökin. Ef Seðla-
bankinn hefði byrjað ári fyrr
hefði vaxtatoppurinn sennilega
ekki farið hærra en 9-10%.
„Seðlabankinn
byrjaði allt of
seint að herða
á peningamála-
stefnunni.“
EGILL JÓHANNSSON
framkvæmdastjóri Brimborgar
Egill Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Brimborgar.
Hvað hefur komið þér mest á
óvart í viðskiptalífinu á árinu?
Neikvæð umfjöllun í erlendum
fjölmiðlum um íslenskt efnahags-
líf og bankana sérstaklega. Ég var
ánægður með viðbrögðin, t.d.
kynninguna á Mishkin-skýrsl-
unni. Þessi neikvæða umræða
hefur fært okkur dýrmæta reynslu,
sem nýtist okkur í framtíðinni.
Hvað hefur einkennt rekstur
fyrirtækis þíns á þessu ári og
mun það ná settum mark-
miðum um afkomu?
Miklar fjárfestingar og óhag-
stæðar gengissveiflur hafa
einkennt reksturinn. Vegna mik-
illa erlendra skulda er reksturinn
háður gengi krónunnar.
Telur þú að horfur í atvinnu-
lífinu séu góðar um þessar
mundir – eða eru blikur á lofti?
Að mínu mati eru horfurnar
nokkuð góðar og jafnvægi fram-
undan.
Hvernig telur þú að gengi
krónunnar þróist á árinu
2007? Á hún eftir að veikjast?
Í framtíðarspám Landsvirkjunar
er gert ráð fyrir að jafnvægis-
gengi krónunnar sé við gengis-
vísitölu 125-130.
Hvaða líkur telur þú á því að
verðtrygging verði lögð af á
næstu þremur árum?
Verðtryggingin verður varla
aflögð þegar verðbólgan er
jafn mikil og hún er nú. Við
hjöðnun verðbólgu minnkar
áhugi á breytingum af þessu tagi
og tel ég því að verðtrygging
verði ekki afnumin í bráð.
Telur þú að Seðlabankinn fari
offari í því að hækka stýrivexti
í baráttu sinni gegn verðbólg-
unni?
Ég tel að Seðlabankinn sé að
gera skyldu sína. Hann á ekki
margra kosta völ. Vilji menn
breytingar verða menn að breyta
leikreglunum.
„Neikvæð
umræða hefur
fært okkur
dýrmæta reynslu
sem nýtist okkur
í framtíðinni.“
FRIÐRIK SOPHUSSON
forstjóri Landsvirkjunar
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar.