Ægir - 01.03.2004, Page 5
jaga vatnshitablásarar í úrvali
smáir sem stórir • 5 - 50 kW
með jaga-AVS loftdreifikerfi
®
Danfoss hf
Skútuvogi 6 Sími 510 4100
www.danfoss.isGæði • Reynsla • Þjónusta
J
A
G
A
A
4
ORKUSPAR-verkefnið
Árið 2002 notuðu Íslendingar tæplega 860 þús. tonn af olíu.
Þar af notuðu fiskiskip um 250 þús tonn. Í ítarlegri grein
þriggja vísindamanna, sem eru Eva Yngvadóttir, efnaverkfræð-
ingur á Rf, Sigurjón Arason, efnaverkfræðingur á Rf og Baldur
Jónasson, dósent/sviðstjóri véla- og iðnaðartæknisviðs Tækniháskóla Íslands, gera þau ít-
arlega grein fyrir verkefninu ORKUSPAR - samstarfsverkefni nokkurra innlendra og erlendra
aðila sem hafði það meginmarkmið að þróa hugbúnað eða hermi, sem nýta mætti sem
hjálpartæki til að draga úr orkunotkun skipa og fiskvinnslu.
Breytingar á skipaskoðun
Þann 1. mars sl. fluttist skipaskoðun frá Siglingastofnun til einkarekinna
skoðunararstofa. Siglingastofnun hefur til þessa annast skoðanir á óflokkuð-
um fiskiskipum að 400 brúttótonnum, olíuflutningaskipum allt að 150
brúttótonnum og farþegaskipum að 24 metra lengd, sem voru smíðuð fyrir
1. júlí 2001. Þessi skoðun hefur sem sagt færst til einkarekinna skoðunar-
stofa, en eftir sem áður mun Siglingastofnun sinna skoðunum á óflokkuðum skipum, sem
eru utan framangreindra skilgreininga. Ægir fjallar um þessar breytingar á skipaskoðun og
ræðir við forráðamenn allra fjögurra skoðunarstofanna sem hafa hafið starfsemi.
Nýjung fyrir línuveiðar minni báta
Fyrirtækið Elcon hf. hefur sett á markað nýjan búnað við línuveiðar fyrir minni báta sem
nefnist „Line Control“. Um er að ræða stjórnbúnað sem stjórnar hraða og átaki á línuspil-
inu. Breytileg hraðastilling býður upp á að auka eða minnka hraðann á línudrættinum, t.d.
er auðvelt að stilla inn hversu mörg bjóð á að draga á klukkustund.
Vinnum náið með kaupendum
„Ýmsir sem reynt hafa fyrir sér í fiskútflutningi hafa verið í viðskiptum við marga aðila á
hverju markaðssvæði. Fyrir vikið geta menn fljótt komist í samkeppni við sjálfa sig. Okkar
nálgun hefur því verið sú að skilgreina Nýfisk sem þjónustufyrirtæki gagnvart viðskiptavin-
um erlendis sem valdir eru af kostgæfni og við vinnum náið með kaupendum til lengri
tíma. Framleiðsla okkar stjórnast af óskum þeirra,“ segir Birgir Kristinsson framkvæmda-
stjóri Nýfisks í Sandgerði. Birgir og Gunnar Bragi Guðmundsson, aðstoðarframkvæmdastjóri
Nýfisks, eru í Ægisviðtali.
Ægir fékk Óskarinn!
Siglfirðingurinn Ægir Björnsson, sem hefur verið búsettur í Svíþjóð í áratugi, hefur verið að
gera það gott að undanförnu. Hann er uppfinningamaður og hefur þróað Europa filter olíu-
hreinsikerfið fyrir smurolíur og glussa. Fyrir þessa uppfinningu fékk Ægir fyrstu verðlaun á
risastórri vörusýningu í Gautaborg, sem var haldin dagana 9. til 12. mars sl. og skákaði þar
mörgum stórfyrirtækjum. Ægir spjallar við nafna sinn um verðlaunin og þýðingu þeirra.
Mikið að gera í bátasmíðinni
Eftir mörg mögur ár er sannarlega komið mikið líf í smíði plastbáta hér á landi. Ægir ræddi
við forsvarsmenn nokkurra þeirra fyrirtækja sem smíða smábáta og alls staðar var sömu
sögu að segja - meira en nóg að gera.
Í B L A Ð I N U
Útgefandi: Athygli ehf.
ISSN 0001-9038
Ritstjórn: Athygli ehf.
Hafnarstræti 82, Akureyri
Sími 461-5151
Bréfasími 461-5159
Ritstjóri: Óskar Þór Halldórsson (ábm.)
Sími: 461 5135
GSM: 898 4294
Netfang: oskar@athygli.is
Auglýsingar: Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
Netfang: augl@athygli.is
Auglýsingastjóri:
Inga Ágústsdóttir
Sími 515-5206
GSM 898-8022
Netfang: inga@athygli.is
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
Prentun: Gutenberg ehf.
Áskrift: Ársáskrift Ægis árið 2004
kostar 6800 kr.
Áskriftarsímar 515-5200 & 515-5207
Forsíðumyndina tók Sverrir Jónsson í
Reykjavíkurhöfn.
ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári. Eftirprentun og
ívitnun er heimil, sé heimildar getið.
11
22
20
18
32
Frystigeymsla
1,5%
Lyftarar
0,6%
Hitun
2,7%
Annað (3%)
2,9%
Vélbúnaður
5,3%
Lýsing
3,2%
Loftræ
1,
Ísfram
3,
Frostgeymsla
10,9%
Frysting
68,0%
a bolfisks
tkun ORKUSPAR
The Energy Effi
38