Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2004, Blaðsíða 41

Ægir - 01.03.2004, Blaðsíða 41
41 F R É T T I R Óskar lét þess hins vegar getið að fyrir sjö árum hafi hann smíðað skrokk af 30 tonna plastbáti. „Þá sýndi enginn slíkum bátum áhuga, en nú er allt annað uppi á teningnum. Ég hef því í hyggju að taka þennan bát inn hjá mér og fullklára hann og setja á sjó þannig að menn geti prófað risa- Sóma. Þessi bátur er um margt nokkuð merkilegur, um er að ræða svokallaða samlokusmíði, sem er PVC kjarnaefni og trefja- plast beggja megin. Ég ætla að setja tvær 650 hestafla vélar í bát- inn og hann kemur til með að ganga 30 sjómílur og 25 mílur með 15 tonna afla,“ segir Óskar. Nú starfa tólf manns hjá Báta- smiðju Guðmundar. Óskar Guðmundsson við skrokk af 30 tonna báti sem hann hyggst hefja vinnu við aftur eftir langt hlé. „Ég byrjaði að smíða þennan bát fyrir sjö árum, en þá sýndi enginn honum áhuga, en nú er allt annað uppi á teningnum. Ég hef því í hyggju að taka þennan bát inn hjá mér og fullklára hann og setja á sjó þannig að menn geti prófað risa-Sóma.“ Myndir: Sverrir Jónsson.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.