Ægir - 01.03.2004, Page 41
41
F R É T T I R
Óskar lét þess hins vegar getið að
fyrir sjö árum hafi hann smíðað
skrokk af 30 tonna plastbáti. „Þá
sýndi enginn slíkum bátum
áhuga, en nú er allt annað uppi á
teningnum. Ég hef því í hyggju
að taka þennan bát inn hjá mér
og fullklára hann og setja á sjó
þannig að menn geti prófað risa-
Sóma. Þessi bátur er um margt
nokkuð merkilegur, um er að
ræða svokallaða samlokusmíði,
sem er PVC kjarnaefni og trefja-
plast beggja megin. Ég ætla að
setja tvær 650 hestafla vélar í bát-
inn og hann kemur til með að
ganga 30 sjómílur og 25 mílur
með 15 tonna afla,“ segir Óskar.
Nú starfa tólf manns hjá Báta-
smiðju Guðmundar.
Óskar Guðmundsson við skrokk af 30
tonna báti sem hann hyggst hefja vinnu
við aftur eftir langt hlé. „Ég byrjaði að
smíða þennan bát fyrir sjö árum, en þá
sýndi enginn honum áhuga, en nú er
allt annað uppi á teningnum. Ég hef því
í hyggju að taka þennan bát inn hjá
mér og fullklára hann og setja á sjó
þannig að menn geti prófað risa-Sóma.“
Myndir: Sverrir Jónsson.