Ægir - 01.03.2004, Síða 12
12
O R K U N Ý T I N G
vinnslu- og útgerðarfyrirtækja,
skipahönnuðum, fyrirtækjum í
sjóflutningum og rannsókna-
stofnunum í fiskiðnaði. ORKU-
SPAR er ætlaður til kennslu í
tækni- og háskólum til að vekja
nemendur til umhugsunar um
orkunotkun þar sem þeir munu
verða mikilvægustu notendur
framtíðarinnar.
Mikilvægt hjálpartæki
Orkuspar-orkuhermir fyrir fiski-
skip er byggður upp af eftirfar-
andi þáttum. Ílag er fiskiskipið,
veiðarfæri og veiðiferð. Frálag er
niðurstaða veiðiferðar og saman-
burður veiðiferða. Unnt er að
geyma upplýsingar um mismun-
andi skip með mismunandi bún-
að, mismunandi veiðarfæri og
mismunandi veiðiferðir.
Í ORKUSPAR-orkuhermi er
til staðar skilgreint skip, Þerney,
með öllum búnaði og veiðarfær-
um, þar sem allar nauðsynlegar
upplýsingar hafa verið settar inn.
Í herminum er einnig skilgreind
veiðiferð. Orkuspar tekur tillit til
veðurskilyrða og aldurs veiðar-
færa, en þessir þættir hafa mikil
áhrif á olíunotkun. Trosnað veið-
arfæri getur aukið mótstöðu veið-
arfæris um allt að 10%. Einnig
má skoða áhrif mismunandi veð-
urskilyrða.
Notendur hermisins geta notað
Þerney til að átta sig á hvernig
hugbúnaðurinn vinnur og hvern-
ig mismunadi aðgerðir hafa áhrif
á olíunotkunina, t.d. ef skipt er
um veiðarfæri, vél eða álagi á vél
breytt.
Notandinn getur sett inn í
herminn nauðsynlegar upplýsing-
ar um sitt skip og veiðarfæri.
Hann getur skilgreint mismun-
andi veiðiferðir með mismunandi
veiðarfæri og borið síðan raun-
ferðir saman við hermdar ferðir.
Unnt að spara verulegar
fjárhæðir
Eftirfarandi eru niðurstöður úr
herminum frá skilgreinda skipinu
(myndir 4, 5 og 6). Eins og sést á
mynd 4 er mesta olíunotkunin
við veiðar, eða allt að 75% hjá
fullvinnsluskipi sem veiðir með
botntrolli. Samanburður á mis-
munandi veiðarfærum sýnir að
það getur verið allt að 25% mun-
ur á olíueyðslu á hvert veitt tonn,
þannig að val á hentugu veiðar-
færi getur skipt miklu máli. Mót-
staða netsins getur verið 50 til
60% af heildarmótstöðu við tog
Iðnaður
36%
Jarðhiti
5%
Fiskiskip
20%
Heimili
1%
Annað
12% Bifreiðar og tæki
26%
d ild l ð h l f d f i i i iðMynd 2. Heildarlosun gróðuhúsalofttegunda eftir atvinnugreinum árið 2001
(www.ust.is).
Olíur
12%
Veiðarfæri
5%
Viðhald
9%
Annað
19%
Aflahlutir og laun
55%
Frystitogarar
Olíur
14%
Annað
21%
Viðhald
10%
Veiðarfæri
5%
Aflahlutir og laun
50%
Ísfisktogarar
Mynd 3. Skipting gjalda vegna rekstrar frystitogara og ísfisktogara. (www.hagstofan.is)
3%1%3%0%
3%
0%
2%
8%
2%
78%
Sigling á miðin
Fiskileit
Köst
Tog
Híf ing
Meðhöndlun veiðarfæara um borð
Sigling milli veiðisvæða
Tapaður tími á miðum
Sigling til hafnar
Skip í höfn
Mynd 4. Hlutfallsleg skipting olíunotkunar við ýmsar aðgerðir fullvinnsluskips sem veiðir með botntrolli.