Ægir - 01.03.2004, Síða 14
14
O R K U N Ý T I N G
Ýmsir möguleikar
Til að geta notað reiknilíkanið
þarf að velja samsetningu aflans
og til að einfalda líkanið eru valin
þrjú form á dreifingu aflans, þ.e.
normaldreifð, jafntdreifð og allur
fiskur af sömu stærð. Með þessum
upplýsingum er hægt að reikna
út þann tíma sem fer í að flaka
aflann.
Í reiknilíkaninu er að finna
upplýsingar um hvernig orku-
notkunin er reiknuð út fyrir ís-
framleiðslu, frystingu, lýsingu
o.fl. Þar getur notandi breytt for-
sendum til að laga líkanið að sín-
um aðstæðum. Við val á vélbún-
aði í vinnsluna og frystiaðferðum
þarf að setja inn í líkanið helstu
vélategundir en grunnupplýsing-
ar frá tækjaframleiðendum eru
inni í líkaninu til að geta spáð
fyrir um orkunotkun.
ORKUSPAR - reiknilíkanið er
því gott verkfæri til að átta sig á
orkunotkunni í frystihúsi og
hentar vel við greiningu á orku-
notkun í hverju einstöku vinnslu-
þrepi og til þess að hafa heildar-
mynd á orkukostnaði við vinnslu-
ferlið. Það getur einnig nýst við
ákvörðunartöku við nýsmíði og
einnig við að gera breytingar á
vinnsluferlinu. Reiknilíkanið
mun geta nýst við hönnun eða
endurhönnun á vinnsludekki og
frystilestum frystitogara þar sem
að þessir þættir eru svipaðir og í
landvinnslu.
Lokaorð
ORKUSPAR er notaður við
kennslu í THÍ, HÍ og HA þar
sem framtíðarstarfsmenn í sjávar-
útvegi eru við nám. ORKUSPAR
nýtist til að gera notendur með-
vitaðri um orku-, umhverfis- og
orkusparnaðarmál sem hægt er að
segja að sé yfirmarkmið ORKU-
SPAR.
Hugbúnaðurinn er núna notað-
ur við kennslu í Tækniháskóla Ís-
lands. Nemendur safna upplýs-
ingum yfir mismunandi búnað og
veiðarfæri og setja inn í herminn
og bera síðan saman niðurstöður
mismunandi athugana. Með tím-
anum má reikna með að þar verði
aðgangur að gagnlegum upplýs-
ingum.
Hægt er nálgast forritið ókeyp-
is á slóðinni http://www.rf.is/eng-
lish/about/
Heimildir:
Heimasíða Orkuspánefndar: www.orkuspa.is
Heimasíða Umhversistofnunar: www.ust.is
Heimasíða Hagstofu Íslands: www.hagstofan.is
Heimasíða ORKUSPAR: www.rf.is/english/about/
Heimsíða Sjávarútvegsráðun: www.fisheries.is
LÍÚ: www.liu.is
Rafmagn
8,3% Olía
4,7% Tryggingar
3,3%
Umbúðir
25,9%
Flutningskostnaður
10,8%
Viðhald
20,4%
Önnur aðföng
26,7%
k kMynd 7. Rekstrarkostnaður frystihúss að frádregnum launa- og hráefniskostnaði fyrir
2002. (Hagstofa Íslands 2002).
Rafmagnsnotkun (kWh/dag) Hlutfall
Vélbúnaður 241 kWh 5,35%
Lýsing 144 kWh 3,19%
Loftræsting 52 kWh 1,16%
Ísframleiðsla 166 kWh 3,68%
Frysting 3.070 kWh 68,05%
Frostgeymsla 492 kWh 10,90%
Frystigeymsla 70 kWh 1,54%
Lyftarar 25 kWh 0,55%
Hitun 120 kWh 2,66%
Annað (3%) 131 kWh 2,91%
Samtals 4.512 kWh 100,00%
Orka á hvert kíló hráefnis kWh/kg 0,129
Orka á hvert kíló afurðar kWh/kg 0,270
Mynd 8. Töfluform af útprentun úr ORKUSPAR-orkureikni fyrir bolfiskvinnslu.
Frystigeymsla
1,5%
Lyftarar
0,6%
Hitun
2,7%
Annað (3%)
2,9%
Vélbúnaður
5,3%
Lýsing
3,2%
Loftræsting
1,2%
Ísframleiðsla
3,7%
Frostgeymsla
10,9%
Frysting
68,0%
Landvinnsla bolfisks
Rafmagnsnotkun ORKUSPAR
The Energy Efficency Improvement Simulator
Mynd 9. Myndrænt
from af útprentun úr
ORKUSPAR-orkureikni
fyrir bolfiskvinnslu.