Ægir - 01.03.2004, Blaðsíða 15
15
Þ J Ó N U S TA
Um síðustu áramót hófst rekstur
nýs fyrirtækis að Óseyrarbraut 2 í
Hafnarfirði sem nefnist Bátaland
ehf. Fyrirtækið, sem er í eigu
Óskars Guðmundssonar og Finns
Jónssonar, selur allar algengustu
rekstararvörur, tól og tæki, fyrir
smærri fiskibáta og skemmtibáta.
Einnig er Bátaland með umboð
fyrir ítölsku utanborðsmótorana
frá Selva Marina og sömuleiðis er
hægt að fá varahluti í Volvo
Penta vélar, í samstarfi við Brim-
borg.
„Allt fyrir báta, það er okkar
kjörorð,“ segir Finnur Jónsson,
annar eigenda Bátalands. „Við
erum ekkert að hugsa um stærri
skipin, okkar markaður eru eig-
endur smærri báta og skemmti-
báta,“ segir Finnur.
Bátaland er til húsa í Kænunni,
Skeljungsskálanum á hafnarsvæð-
inu í Hafnarfirði. Áfram eru þar
seldar olíuvörur frá Skeljungi og
sömuleiðis matvörur. „Það má því
segja að við höfum bætt við þess-
um sjávarútvegstengdu vörum,“
segir Finnur og segir reynsluna á
þessum fyrstu mánuðum hafa
sýnt fram á að full þörf hafi verið
fyrir þessa þjónustu í Hafnarfirði.
„Ég tel líka engan vafa á því að
tilkoma þessarar verslunar er af
hinu góða fyrir neytendur, þar
með er komin virk samkeppni á
þessum markaði hér á höfuðborg-
arsvæðinu, sem hlýtur að vera af
hinu góða,“ segir Finnur.
Bátaland ehf. - ný þjónusta í Hafnarfirði:
„Leggjum áherslu á að
hafa allt fyrir bátana“
Úr verslun Bátalands í Kænunni í Hafnarfirði. Mynd: Sverrir Jónsson.
Kringlunni 6 - 103 Reykjavík - Sími 561 8401