Ægir - 01.03.2004, Side 16
16
F E R K F I S K Ú T F L U T N I N G U R
„Á fimmta og sjötta áratug síð-
ustu aldar var Grimsby stærsta
fiskihöfn heims. En þegar fór að
hrikta í stoðum útgerðarinnar og
margir á svæðinu misstu vinnu þá
var eiginlega spurning um að
duga eða drepast. Eftir að hafa
skoðað alla þá möguleika sem
voru fyrir hendi ákváðu bæjaryfir-
völd í Grimsby og nágrannasveit-
arstjórnir að nýta þá þekkingu
sem var til staðar. Ákveðið var að
stofna til samvinnu milli sveitar-
félaganna og einkafyrirtækja á
svæðinu, með áherslu á þær at-
vinnugreinar sem fyrir voru,
þ.e.a.s. fiskvinnslu, hafnir og
efnaframleiðslu. Stefnan var þá
tekin á uppbyggingu matvæla-
vinnslu sem aðal atvinnugreinar
og tuttugu árum síðar er árangur-
inn farinn að sjást og vel það,“
segir Andrew Moore, efnahags-
þróunarstjóri (Economic
Development Officer) svæðis-
stjórnar Norðaustur-Lincolnskíris
(Economic Regeneration, North
East Lincolnshire Council), sem
var staddur á Íslandi fyrir stuttu,
ásamt fimm öðrum úr svæðis-
stjórninni.
„Matvælabær Evrópu
Tilgangur heimsóknarinnar var að
skoða nokkur af helstu tækni-,
vinnslu- og flutningsfyrirtækjum
í sjávarútvegi hér á landi, auk
tengdra stofnana, með það að
markmiði að efla enn frekar
tengsl á milli þeirra og Grimsby
og nágrennis.
„Samspil hins opinbera og
einkageirans í svæðisstjórn Norð-
austur-Lincolnskíris gerir stofn-
unina að einstöku fyrirbæri,“ út-
skýrir Moore. „Með náinni sam-
vinnu hefur okkur tekist að skapa
Grimsby verðugan sess sem
„Matvælabær Evrópu,“ og við
höfum fengið til okkar marga
stærstu og þekktustu fisk- og
matvælaframleiðendur í álfunni í
dag. Sem dæmi má nefna að 75%
af öllum fiski og fiskafurðum sem
seldar eru á Bretlandi eru unnin á
svæðinu og þessi tala fer hækk-
andi. Í dag er Grimsby og ná-
grenni stærsta fiskvinnslusvæði
Englands og eitt stærsta í Evr-
ópu, með yfir 100 starfandi fisk-
vinnslufyrirtæki,“ bætir hann við.
Hafnarsvæðið endurnýjað
Eins og nafnið gefur til kynna
getur Grimsby rakið rætur sínar
allt aftur til víkingatímans og
hefur staðsetning bæjarins við
Norðursjóinn gegnt mikilvægu
hlutverki í sögu hans. Bærinn
liggur á mið-austurströnd Eng-
lands við ós Humber árinnar, á
suðurbakka hennar suðaustur af
borginni Hull.
Þróunin í kæli- og frystitækni
sem hefur átt sér stað undanfarin
ár hefur gjörbreytt vinnslutækni í
Grimsby sem annarsstaðar og í
dag er að finna hátt í 1,5
milljónir rúmmetra af frysti- og
kæliplássi í ýmsum verksmiðjum
og geymslustöðum í bænum, sem
er mesta rými sinnar tegundar á
einum stað í Evrópu. Árið 1995
var einnig opnaður nýr 8.000m2
fiskmarkaður í Grimsby, sem er
einn sá fullkomnasti sinnar teg-
undar í Evrópu.
Undanfarin ár hefur jafnframt
verið unnið markvisst að um-
fangsmiklum endurbótum og
stækkun hafnarinnar í Grimsby
og nágrannabænum Immingham,
sem er líklega best þekkt meðal
Íslendinga sem heimahöfn Sam-
skipa í Englandi. Í dag mynda
þessar tvær hafnir eitt stærsta
hafnarsvæði í Evrópu, en árið
2002 fóru um þær um 52,6 millj-
ónir tonna af vörum.
Um 500 matvæla-
framleiðslufyrirtæki
En Grimsby er ekki aðeins sjávar-
útvegs- og fiskvinnslubær. Bær-
inn er í hjarta eins gjöfulasta
landbúnaðarsvæðis Englands, sem
gerir það að verkum að mörg
kjöt-, kjúklinga- og grænmætis-
vinnslufyrirtæki reka verksmiðjur
í Grimsby. Þegar fiskvinnslufyrir-
tækin eru talin með starfa á þessu
svæði hátt í 500 matvælafram-
leiðslufyrirtæki eða fyrirtæki
tengd þeirri iðngrein t.d. flutn-
ingsfyrirtæki, verkfræðistofur og
pakkninga- og pappaframleiðend-
ur.
„Staðsetning Grimsby og ná-
grennis og nálægð okkar við
margar helstu hraðbrautir Eng-
lands gerir það að verkum að
hvorki fleiri né færri en 40 millj-
ónir manna búa innan við 4
„Viljum allan þann fisk
sem við getum fengið“
- segir Andrew Moore, efnahagsþróunarstjóri svæðisstjórnar Norðaustur- Lincolnskíris
Viðtal:
Rab Christie.
Opnaður árið 1995,
fiskmarkaðurinn í
Grimsby er einn
glæsilegasti sinnar
tegundar í Evrópu.