Ægir - 01.03.2004, Síða 18
18
S K I PA S K O Ð U N
Þann 1. mars sl. fluttist skipa-
skoðun frá Siglingastofnun til
einkarekinna skoðunararstofa.
Siglingastofnun hefur til þessa
annast skoðanir á óflokkuðum
fiskiskipum að 400 brúttó-
tonnum, olíuflutningaskipum
allt að 150 brúttótonnum og
farþegaskipum að 24 metra
lengd, sem voru smíðuð fyrir
1. júlí 2001. Þessi skoðun hef-
ur sem sagt færst til einkarek-
inna skoðunarstofa, en eftir
sem áður mun Siglingastofnun
sinna skoðunum á óflokkuðum
skipum, sem eru utan framan-
greindra skilgreininga, en þau
skip eru um fjörutíu.
Siglingastofnun Íslands mun
einnig hafa með höndum útgáfu
skipsskírteina, hafa eftirlit með
starfsemi skoðunarstofa skipa og
búnaðar og vinna að samstarfs-
verkefnum með skoðunarstofum,
meðhöndla og skrá ágreiningsmál
sem upp kunna að koma, hafa eft-
irlit með flokkunarfélögum, hafa
eftirlit með starfsleyfum fyrir
hvers konar atvinnustarfsemi,
hafa markaðseftirlit með
skemmtibátum, framkvæma
skyndiskoðanir (átaksverkefni) og
gera úttektir á öryggisstjórnun
(ISM-úttektir). Einnig mun Sigl-
ingastofnun annast lokaúttekt á
allri nýsmíði, hafa eftirlit með
nýsmíði fiskiskipa 15-24 metrar,
hafa eftirlit með innflutningi á
skipum og flutningi á hættuleg-
um varningi, sinna hafnarríkiseft-
irliti og sjá um útgáfu allra skír-
teina sem varða viðkomandi skip.
Nýja skoðunarkerfið
Með nýrri reglugerð um skoðanir
á skipum og búnaði þeirra, mun
tíðni skoðana breytast ásamt því
svigrúmi sem útgerðarmenn hafa
til að framkvæma lögbundnar
skoðanir á skipum sínum. Þetta
skoðunarkerfi er samkvæmt Evr-
óputilskipun um samræmdar
reglur um öryggi fiskiskipa, sem
eru 24 metrar eða lengri.
Samkvæmt eldra skoðunarkerfi
var öxulskoðun framkvæmd á
fjögurra ára fresti, sömuleiðis
þykktarmæling á skipum eldri en
tólf ára, öðrum en plastskipum,
farið var yfir bol í plast-, ál- og
stálskipum á tveggja ára fresti,
bol í tréskipum á ársfresti, sömu-
leiðis vélbúnað og öryggisbúnað
og rafmagn var skoðað við ný-
smíði, breytingar og vélaskipti.
Með þessu nýja fyrirkomulagi
við skipaskoðun verður sú breyt-
ing að vélaskoðun skal fram-
kvæmd á tveggja ára fresti og raf-
magnsskoðun skal fara fram sam-
hliða vélarskoðun.
Útboð Vestfirðinga
Skiptar skoðanir hafa verið um
ágæti þessarar breytingar á skipa-
skoðun. Talsmenn smábátasjó-
manna hafa til dæmis gagnrýnt
breytinguna og talið hana til þess
fallna að stórauka kostnað útgerða
smábáta. Smábátasjómenn á norð-
anverðum Vestfjörðum ræddu
þessi mál á fundi í byrjun mars
og ákváðu þar að ná samstöðu
smábátasjómanna á Vestfjörðum
um að fara í sameiginlegt útboð á
skoðun báta. Guðmundur Hall-
dórsson, formaður Eldingar, segir
að þetta sé leið smábátasjómanna
vestra til þess að lækka kostnað
við þessa skoðun, sem hann segir
ótvírætt telja að sé nýr lands-
byggðarskattur. Guðmundur seg-
ir að smábátamenn vestra setji
það sem skilyrði í sínu útboði að
viðkomandi skoðunarfyrirtæki
hafi staðsettan starfsmann á Vest-
fjörðum. „Við teljum afar mikil-
vægt að við getum haft góðan að-
gang að skoðunarmanni hér fyrir
vestan, enda getum við ekki alltaf
stólað á flug vestur,“ segir Guð-
mundur Halldórsson.
Skipaskoðun færðist 1. mars sl. frá Siglingastofnun til einkarekinna skoðunarstofa:
Þetta er nýr landsbyggðarskattur
- segir Guðmundur Halldórsson, formaður Eldingar á Vestfjörðum
Nýja skoðunarkerfið er
samkvæmt Evróputil-
skipun um samræmdar
reglur um öryggi fiski-
skipa, sem eru 24
metrar eða lengri.
Guðmundur Halldórsson, formaður Eldingar.