Ægir - 01.03.2004, Blaðsíða 20
20
T Æ K N I
Breytileg hraðastilling býður
upp á að auka eða minnka hrað-
ann á línudrættinum, t.d. er auð-
velt að stilla inn hversu mörg
bjóð á að draga á klukkustund.
Stjórnbúnaður fyir átak og hraða
er allur við hliðina á línuspilinu.
Árni Marinósson hjá Elcon hf.
segir að með þessum nýja búnaði
vinni línuspilið á allt annan hátt
og allur línudráttur verði mýkri
og betri. „Markmiðið er að geta
dregið línuna inn þannig að sem
fæstir fiskar slitni af. Þetta á til
dæmis við um ýsuna og aðrar teg-
undir, sem taka mjög tæpt og
jafnvel slitna af við minnsta rikk,
þegar veður tekur að versna,“ seg-
ir Árni.
Góð reynsla af Trax-línukerfinu
Fyrir tveimur árum setti Elcon
á markaðinn tölvuplotter með
sérbúnaði fyrir línuveiðar, sem
gefur þann möguleika að skrá
öngla, telja fiska og sýna í mynd-
rænu formi á skjá hvernig fiskur-
inn kemur á línuna. Nýjung í
kerfinu er straumkort sem unnt
er að nota til að sjá hvernig línan
kastast til í því sjávarfalli þegar
hún er lögð. Inn í þennan búnað
er hægt að fá 2D og 3D svo og
botnhörkugreiningarbúnað þar
sem skráður er í lit mismunandi
harður eða linur botn.
Þessi búnaður hefur reynst
mjög vel á línuskipum, en nú er
búið að laga búnaðinn að minni
bátunum þar sem 2-3 menn eru
um borð. Búnaðinum er vel kom-
ið fyrir og allur stjórnbúnaður er
vatnsheldur og öruggur.
Hugmyndin kviknaði í kjölfar
heimsóknar vestur
Árni Marinósson segir að hug-
myndin að því að ákveðið var að
útfæra þennan tölvubúnað fyrir
minni bátana hafi kviknað
snemma síðasta árs þegar hann
var á ferð vestur á Hólmavík og
Drangsnesi. „Bæði á Hólmavík
og Drangsnesi ræddu menn mik-
ið um hvort ekki væri hægt að
koma með einhvern búnað sem
stjórnaði línuspilinu þannig að
það gæfi eftir á drættinum og allt
væri miklu mýkra í vinnslu sem
þýddi að fiskurinn slitnaði ekki
eins af, eins og gerðist oft þegar
mikill veltingur væri. Menn settu
upp áhugaverð dæmi sem sýndu
fram á um hversu stórt hags-
munamál væri að ræða. Í fram-
haldinu var farið að hanna búnað-
inn og hann hefur nú verið reynd-
ur um borð í Kristbjörgu ST-6 frá
Drangsnesi með mjög góðum ár-
angri. Veðurskilyrði í þessum
prufutúr voru þannig að vind-
styrkurinn var 13-14 metrar á
sekúndu. Það var sérstaklega
gleðilegt að við þessar aðstæður
kom búnaðurinn mjög vel út,“
segir Árni.
„Betra andóf“
Elcon hefur einnig hannað það
sem kallað er „Betra andóf“, en
um er að ræða byltingarkenndan
búnað sem auðveldar mjög veið-
arfæradrátt. Með hliðarskrúfu-
búnaði, sem er samhæfður sjálf-
stýringu, sjálfvirkt eða handvirkt
út á dekk, er unnt að stjórna
framenda skips hvort heldur er
dregið á móti vindi, á hlið eða
undan vindi. Stjórnbúnaðurinn
miðar við að unnt sé að stjórna
„andófinu“ sjálfvirkt eða hand-
virkt á sem auðveldastan hátt úti
á dekki, til að auðvelda þeim sem
stjórnar drættinum, því það er
hann sem þarf bæði fylgjast með
línuspilinu og „andófinu“. Árni
Marinósson segir það hafa sýnt
Elcon ehf. hefur þróað nýjan búnað fyrir línuveiðar á minni bátum:
Athyglisverð nýjung sem
hefur reynst okkur vel
- segir Guðmundur R. Guðmundsson, útgerðarmaður Kristbjargar á Drangsnesi
Að undanförnu hefur Elcon hf. verið að prufu-
keyra nýjan búnað við línuveiðar fyrir minni
báta sem nefnist „Line Control“. Um er að
ræða stjórnbúnað sem stjórnar hraða og átaki
á línuspilinu. Unnt er að stilla inn það átak
sem hentar óháð hraða og öfugt.
Hinn nýi búnaður var
reyndur um borð í
nýjum báti Guðmund-
ar R. Guðmundssonar,
Kristjbörgu ST-6 á
Drangsnesi.